Vikan - 17.05.1973, Síða 12
SMÁSAGA EFTIR JAMES HOLDING
HEIMAS/
Hehni nægðu heimilisstörfin og hún naut sin bezt
við sauma og matreiðslu. Hvað átti hún til
bragðs að taka, ef maðurinn hennar hefði hrifizt af
annarri konu? Hún ákvað að leita aðstoðar einka-
spæjara . . .
Eileen staðnæmdist i dyrunum á vinnuherbergi
Jerrys. Hann sat við ritvélina, niðursokkinn i starf
sitt. — Jerry, ég ætla að skreppa til bæjarins og
verzla svolitið, sagði hún.
Jerry leit upp^— Halló, sagði hann og virti hana
fyrir sér. — Ég sé að þú ert i kjólnum, sem mér
þykir svo fallegur. Viltu að ég komi með þér?
Hún hristi höfuðið. — Nei, vertu bara heima og
ljúktu við þessa leiðinda morðsögu. Ég verð ekki
lengi.
— Ertu viss um, að þú sért nógu frisk til þess að
aka ein? Hann gekk til hennar og kysti hana. — Þú
ert óskaplega föl, ástin min.
Hún gretti sig ofurlitið. — Ég hef ekki hugsað mér
að láta smá magakveisu stjórna öllu lifi minu.
Auðvitað er ég nógu frisk til þess að aka ein, og ég
kem heim i tæka tið til þess að finna hádegismat
handa þér.
— Vertu ekkert að flýta þér. Ég fer hvort sem er
út um ellefuleytið.
— Nú? Meiri rannsókn?
— Já, ég þarf að komast að þvi, hvað tvö kiló af
isköku erti lengi að bráðna á sumardegi.
— Ég hefði nú haldið, að það færi eftir þvi, hve
heitur dagurinn væri. Hvar ætlarðu að borða
hádegisverð?
— Á kaffihúsinu við almenningsbökasafnið. Hann
horfði á hana rannsakandi og vottaði fyrir áhyggju i
svipnum. — Heldurðu að það sé allt i lagi að þú
akir?
— Já, auðvitað, sagði hún þótt hún ætti aftur erfitt
með andardráttinn og hjartað barðist eins og litill,
hræddur froskur i brjóstinu á henni. — Vertu ekki
hræddur, elskan. Hafðu það gott á meðan. Sé þig
seinna.
Hún ók gætilega i átt til bæjarins i litla, rauða
bilnum sinum. Veðrið var drungalegt, dökk ský
byrgðu fyrir sólina og það leit út fyrir, að það færi
að rigna.
Hún lagði bilnum á bilastæðið bakvið Garner-
bygginguna, læsti honum, hljóp inn i anddyrið og
tók lyftuna upp á áttundu hæð. Þar nam hún staðar
andartak fyrir framan hurð sem á stóð Arthur
Cummings. Hún hafði valið nafnið úr simaskránni,
eingöngu vegna þess hve sakleysislega það leit út.
Hún reyndi að setja upp hressilegan og frjálslegan
svip, þótt henni liði ekki of vel, siðan opnaði hún
dymar og gekk inn.
Arthur Cummings reyndist vera litill fyrir mann
12. VIKAN 20. TBL.