Vikan - 17.05.1973, Page 23
„Halló, island, halló!” (Ljósni. Ómar Valdimarsson.)
„ÞAÐ VAR
KINDAKJÖTSLYKT
Á ÍSLANDI
segir Gitte Henning i viðtali við Vikuna
Ómar Valdimarsson blaðamaður hitti hana að máli i Gautaborg
Þegar minnzt er á Gitte
Henning i bjöðum á Islandi er
þvi gjarnan bætt við, að hún sé
,,okkur íslendingum góðkunnug
frá þvi að hún var hér um árið og
lék i kvikmyndinni Rauða
skikkjan og þó kannski enn betur
frá þeim tima er hún kom til
Islands sem barn og skemmti i
Austurbæjarbiói.” Ef til vill eru
þessar athugasemdir ekki alveg
svona langar, en þetta er alla-
vega tónninn i þeim. Vissulega
gerir þetta svo að verkum, að
maður fær á tilfinninguna að
Gitte Henning sé raunverulega
eitthvert íslandsbarn. Það var
sennilega þess vegna að ég
ákvað að reyna að fá hana til að
spjalla litillega við mig —
lesendum Vikunnar til andlegrar
uppörvunar og hollustu — þegar
ég sá þess getið i dagblöðum
Gautaborgar ,að hún myndi
skemmta á Lorensberg allan
aprilmánuð, það er að segja eftir
að lokið væri söngvakeppni
sjónvarpsstöðva Evrópu i
Luxemburg þann 7. april sl.
Mér gekk illa að ná sambandi
20. TBL. VIKAN 23