Vikan - 17.05.1973, Side 34
höfuölausan búk, heldur á háls
annars hunds, sem hélt likama
slnum óskertum.
Þessir tvlhöfða hundar lifa allt
aö 29 dögum. Allan tímann hefur
höfuöið, sem fest er á búkinn fulla
meðvitund. t>að sperrír eyrun, ef
kallað er, það sér og finnur lykt.
Stöku sinnum kemur upp á-
greiningur milli höfðanna
tveggja. Hundurinn, sem auka-
höfuðið er grætt á, reynir að
hrista þetta aðskotadýr af sér.
Ágrædda höfuðið kennir þá sárs-
auka og reynir aö hefna sin með
þvl að glefsa I eyra hins
hundsins. Taugaskurðlæknarnir I
Celveland fara aðra leið. Robert
White segir höfuöágræðslu þvi
aöeins hafa tilgang að starfhæfan
llkama vanti höfuð. Slikt á sér
óneitanlega stað. Til dæmis ferst
fólk oft af höfuðáverkum I
umferðarslysum, þótt aðrir
hlutar llkamans séu óskaðaðir.
Llfinu er oft haldið i sllkum
sjúklingum vikum saman með
súrefnistækjum, unz ákveöið er
að láta llkamann deyja lika og
súrefnisgjöf er hætt. Tilraunir'
Roberts White miða að þvi að
hægt verði aö græða heilbrigt
höfuð á sllka likama i stað þeirra
óhæfu, sem skaddazt hafa.
Vísindamenn skera höfuðin af
tilraunadýtunum, sjá bolnum
fyrir súrefni, loka blóðrásinni og
llkamarnir lifa áfram höfuð-
lausir. Hjartað heldur áfram að
slá og likaminn starfar eins og
ekkert hafi I skorizt.
>á er komið að næsta skrefi til-
raunanna. Hvernig er unnt aö
græða nýtt höfuð á höfuðlausan
búk á minna en fjórum mlnútum?
Robert White vann lengi aö
undirbúningi þessarar tilraunar.
1 meir en hundrað tilraunum
tókst honum að halda lifandi, ekki
einungis öllu höföinu, heldur
einnig einöngruöum hlutum.
heilans. Við þessar tilraunir lagði
hann Rhesusapa á skurðarborðið,
svæfði hann og hóf að hluta
sundur heila dýrsins. Hann fjar-
lægði hauskúpubeinin hvert af
öðru, fyrst hnakkabeiniö, þá
ennisbeinið, kinnbeinin og
kjálkana unz heilinn var laus úr
umgjörö sinni.
Övarinn heilann tengdi White
blóðrás Spenderapa. Séu
viökvæmar heilafellingarnar
snertar mjúklega sýnir llffærið
strax eðlíleg viðbrögð.
Llkamslausu heilarnir I
Cleveland heyra froska kvaka og
engisprettur tlsta af segulbandi.
Þeir geta næstum því séð. í einni
tilraun tengdi White eitt auga viö
heilann. Það hékk á heilanum I
taugaböndum eins og köngurló I
vef. Þegar skært ljós var borið að
þessu auga, dróst augasteinninn
saman eins og hjá lifandi dýri.
Vlsindamennirnir eru ekki
vissir um hvort heilinn kenni ekki
sársauka eins og lengi hefur veriö
álitið. Rannsóknirnar á heilanum
sem framkvæmdar eru I
Cleveland eru of mikilvægar til
þess að þeir geti sett það fyrir sig.
Taugasérfræðingar geta nú
rannsakað heilann og rafvirkni
hans einan sér.án áhrifa llkamans
ög lifefnafræðingar hafa fengið
kost á þvl að rannsaka frekar
efnasamsetningu hans.
Heilarnir eru einnig ómetanleg
hjálp við höfuðágræðsluáfórm
Whites, þvf að vlsindamönnunum
gefst með þeim kostur á þvl að
rannsaka frekar hina flóknu blóö-
rás til heilans.
Fjórar slagæðar flytja blóð til
heilans og fjórar bláæðar flytja
það frá honum. Það sem gerist ef
einhverjar þeirra lokast var nú
leitt I ljós með endurteknum
prófunum. Heilinn kemst af með
helming æðanna. Þótt tveimur
slagæðanna og tveimur blá-
æðanna sé lokaö starfar hann
eðlilega.
Æðarnar fjórar, sem hægt er að
skaðlausu að taka úr sambandi
eru hinar sömu og valdið hafa
erfiðleikum við höfuðágræöslu.
Þurfi skurðlæknar ekki. lengur að
tengja þær, vinna þeir dýrmætan
tlma, sem getur hjálpað þeim viö
að ná fjögurra mlnútna markinu.
Fjórir læknar og tveir
aðstoöarmenn unnu að þvl með
Robert White að græða höfuð
tveggja ára gamals Rhesusapa á
annan. Það var uppskurður, sem
opnar leið að störkostlegum og
jafnframt ógnvekjandi afrekum á
sviöi skurðaðgerða. Á öpunum
var gerð nákvæmlega undirbúin
aögerö, sem I framtíðinni verður
ef til vill gerð á mönnum. Hún tók
átta og hálfa klukkustund. Tvær
og hálf klukkustund liðu til við-
bótar, áður en deyfilyfin hættu
að verka. Þá gerðist undriö.
Apinn opnaði augun. Hann gaf
ekkert hljóð frá sér, enda voru
aðeins æðar höfuðsins tengdar
búknum, en ekki taugarnar.
Veröld þessa litla apa hefur stór-
breyzt. Hann getur ekki hreyft
fæturna lengur, þvl að raunveru-
lega hefur hann enga fætur. Hann
getur ekki rétt út armana, þvl aö
þá hefur hann enga. Rhesus-
apinn, 3em um morguninn stökk
um I búrinu sfnu'er siödegis ekki
annaö en höfuðið.
En þetta höfuð er algjörlega ó-
skaddaö, það sýndu rannsóknir,
sem gerðar voru eftir aðgerðina.
Robert White skýröi svo frá eftir
fjórar tilraunir: „Höfuðið fylgir
okkur eftir með augunum. Það
getur ekki hreyft sig á búknum,
en augu þess fylgjast náið meö
umhverfinu. Það sér okkur eins
vel og viö það, á þvl leikur enginn
vafi. öll önnur starfsemi og viö-
brögð koma smám saman I ljós.
Allt er fullkomlega eðlilegt hjá
höföinu, sem við höfum grætt á
nýjan búk. Tilfinningaskynið
starfar eölilega. Það sést á þvl að
sé apahöfuðið kitlað I nefið reynir
það að losa sig við „fluguna”.
Heyrnin hefur reynzt vera I
lagi. Hún var prófuð með þvl aö
láta bjöllu klingja óvænt til hliðar
við höfuðið. Það renndi aúgunum
samstundis I viðkomandi átt.
Sé hnefa beint að andlitinu eins
og til þess að slá það, lókar þaö
augunum, sem eru I fyllzta máta
eðlileg viðbrögð.
Höfuðið er fært um að hreyfa
tungu, kjálka og varir. Sé banani
réttur aö þvi, opnar það kjaftinn
til þess að blta I.
Tveir apar. Af öðrum lifir
aðeins höfuðið, en af hinum
aðeins bolur og útlimir. Þessir.
hlutar tengdir saman. Skapnaður
búinn til úr tveimur lifandi
verum.
Robert Whitesegir : „Égveitað
þetta hljómar ólikindalega. En
þetta er niðurstaðan og aðgeröir,
sem framkvæmanlegar eru á
öpum er einnig hægt að gera á
mönnum. Árangur tilraunanna á
öpurtum er yfirfæranlegur á
menn. Verði höfuðrmanns grætt á
annan llkáma getur það haldið
áfram aö lifa og tala. En
árangurinn er ehn. ekki full-
kominn, þvl að höfuðið gæti ekki
hreyft nýja Iikamann.
011 boö og hreyfihgar likamans
sendir heilinn um mænuna. Hún
er sett saman úr milljörðum
taugafruma. Þegar höfuöið er
skorið af, er hún einnig tekin I
sundur. Mænan grær ekki saman
eins og æðar og vöðvar. Tauga-
frumurnar I henni er ekki hægt að
tengja.
Virkt höfuð á lömuðum llkama
— er slfkt llf nokkurs virði?
Robert White hefur þetta að
segja: „Það er það sama og fyrir
ungan mann, sem hefur stungið
sér til sunds I of grunnt vatn og
hálsbrotnaö. Bolur hans og út-
limir eru lamaðir. Hann þarf á
tæknilegri aðstoð að halda við
öndun. Hann hefur aðeins stjórn á
höfuðvöðvum slnum eins og hvert
það höfuö, sem viö myndum
græða á nýjan likama.”
En ætli til sé fólk, sem vill
ganga undir sllka höfuöágræöslu-
aðgerð til þess að höfuð þess geti
haldið áfram aö lifa? Robert
White kveðst aöeins geta sagt til
um slna sjúklinga og segir þá fúsa
til þess.
VlflTAL via
ÁSU SÖLVEIGU
Framhald af bls. 29.
þyki ekki gaman að búa til mat,
þá ertu ónormal, og það er
náttúrlega ekki gott að fá það
óorð á sig. Sko, mér er sem ég sæi
það, ef karlmenn ættu allt I einu
allir að veröa trésmiðir og þar aö
auki að vera hæstánægðir með
það!
— Það er ekki nema von, að
konur dragist aftur úr á andlega
sviðinu, eins og að þeim er búið.
Ég er viss um það, aö húsmóður-
starfiö er vanþakklátasta starf,
sem hægt er að hugsa sér, og það
er beinllnis andlega niður-
drepandi, eins og hver einasta
kona veit. Hún getur ekki einu
sinni glaðst með öðrum yfir eigin
-verkum. Þegar hún er búin að
taka virkilega vel til og er til-
tölulega ánægð með sitt verk, þá
þýðir ekki fyrir hana að vonast
eftir viðurkenningu. Þetta er
bara eins og það á að vera, þetta
er hennar skylda, og hún á hvorki
skiliö hrós né þakkir, þó það
standi auövitað ekki á þvi að láta
hana vita, ef hún stendur ekki I
stööu sinni. Hún er þarna heima,
og hún gefur og gefur sinni fjöl-
skyldu bæði af andlegum og
llkamlegum kröftum, og hún fær
ekkert til uppbyggingar I staðinn,
það verður ekkert til þess aö
endurnýja hana, og það endar
auðvitað meö þvi, að hún verður
tóm.
r— Ekki vilja nú allar konur
skrifa undir þetta.
— Mér virðist það einkum vera
miðaldra konur, sem ekki vilja
viðurkenna, aö þetta sé svona. Ég
hef svolltið hugsað um þetta, og
ég er að Imynda mér, að ég skilji
þeirra sjónarmið. Þær taka þetta
fyrst og fremst sem persónulega
árás, og þær snúast til varnar, og
mér finnst bara ágætt, aö það
skuli þó vera svona mikiö líf i
þeim, að þær skuli yfirleitt snúast
til varnar. En mér finnst aö við
ungu konurnar verðum aö reyna
að spyrna við fótum, þvl það er
ekki hægt að búast viö þvl, að
eiginmenn okkar séu neitt sér-
staklega að hugsa um okkar
andlega þroska og okkar
áhugamál, ef við nennum þvl ekki
sjálfar.
— Við getum tekiö dæmi um
konu um fertugt. Hún lifir við
svona hér um bil tvöfalt öryggi.
TCrt á viö er hún kona mannsins
slns, og hann skaffar henni
peninga, hefur hana sem sagt á
slnu framfæri, og þegar hún fer út
á meðal fólks, þá er hún i hans
samfylgd. Hún kemur yfirleitt
aldrei fram út á við sem ábyrgur
einstaklingur. Inn á við er hún á
sinu heimili, þar þekkir hún
hvern hlut og kann yfirleitt vel við
sig þannig séð, og þó ekki sé ausið
yfir hana þökkum og lofsyrðum,
þá þarf hún yfirleitt ekki að svara
fyrir slnar gerðir gagnvart einum
eða neinum. Og þetta tvöfalda
öryggi byggist allt á einum
einasta manni.
— Svo lengi sem ástandiö er
svona, þá er náttúrlega aðal-
atriðið fyrir konuna aö halda I
þennan mann, sem öll hennar
tilvera byggist á. Þessi maður
getur hreinlega lagt hennar heim
34 VIKAN 20. TBL.