Vikan - 17.05.1973, Side 41
VERÐIÐ BRÚN - BRENNIÐ EKK9
NOTIÐ
COPPERTONE er langvinsælasti sólaráburðurinn í Bandaríkiunum. Vísindalegar lannsóknir framkvæmdar af hlutlausum aðila, sýna að Copper-
tone sólaráburður gerir húðina á eðlilegan hátt brúnni og fallegri á skemmri tíma, en nokkur annar sólaráburður sem völ er á.
Heildverzlunin Vmir Haraldur Árnason
Stmi 14191. heildverzlun, sími 15583.
COrPERTONE
peningana. — Vísiö þér þá
manninum inn.
— Hr. Nupied?
— Já, hvað er það?
— Mér var rétt að detta það i
hug. Munið þér eftir lögreglutil-
kynningunni fyrir þremur
dögum?
— Hvað um hana? Við fáum
hundrað svona tilkynningar.
— Lögreglan er að lýsa eftir
demanti,- svona slipuöum, 12-13
karat á þyngd, með rauðleitum
blæ og alveg tærum.
Forstjórinn strauk langa,
niöurmjóa hökuna. — Ég las hana
ekki, viö fáum svo margar. Hvar
er tilkynningin?
Ég setti hana.vist i bókina.
— Náið þér þá I bókina.
Búðarmaðurinn fór aftur fram i
búöina, brosti til Mathews, og tók
siðan úr úr skáp undir
búöarborðinu bókina, sem hafði
inni að halda svona tilkynningar
frá lögreglunni. Hann fann þá,
sem hann leitaði aö og fór með
hana inn til forstjórans.
— Geriðþérsvovel, hr. Nupied.
Forstjórinn tók tilkynninguna
og las hana. Hann athugaði
demantinn mældi hann og vó og
las svo tilkynninguna aftur. Hann
bölvaði. — Og ég sem heföi getað
fengiö frú Picot til að kaupa hann,
tautaði hann. Hann reiknaði út
ábatann af þeirri s.ölu og bölvaöi
aftur.
6. kafli.
Wright ýtti á sibasta takkann á
hússimanum og spuröi um
Barnes. Honum var sagt, að
Barnes væri ekki við - væri ein-
hversstaöar i Liverpool. Wright
mundi þá, að hann hafði sent
Barnes til Liverpool daginn áöur.
Hann lokaöi augunum og svefninn
ætlaði að ná tökumá honum enda
var hann svo úrvinda, að hann
hefði ekki geta hugsað sér aöra
meiri sælu en að fá að sofa i stif-
heila tvo sólarhringa, einhvers-
staöar þar sem allir simar væru
milu vegar i burtu frá honum.
' Oftar en einu sinni haföi veriö
stungið upþ á þvi við hann, að
hann losaði sig við eitthvað af á-
byrgðinni, «neð þvi að fá sér
vara-lögreglustjóra, en hann
gerði sér ljóst, að enda þótt
enginn annar væri ómissandi, þá
væri hann það sjálfur. Væri hann
ekki sjálfur við stýrið, mundi
hvað sem væri geta skeö og
mundi sennilega gera. Og nvaö
sem öðru liöi enda þótt undir-
menn hans væru nægilega
samvizkusamir til þess að þola
harðstjórn hans, undir núverandi
skipulagi, sem haföi það i för með
sér, að oft sá hdnn þá ekki dögum
saman, þá væri mjög vafasamt
að nokkur þeij:ra gæti leyst af
hendi verk sitt, ef þeir vissu ekki
af honum við stjórnina.
Hann kveikti sér i vindlingi og
leit á klukkuna. Hún var tólf.
Hann stundi, er hann minntist
þess, að nú þurfti hann að skrifa
einhverjum nautheimskum
manni I dómsmálaráðuneytinu og
reyna að útskýra fyrir honum,
meö nokkrum einsatkvæðis-
oröum, að útgjöld skrifstofunnar
hefðu fariö vaxandi siðasta árið.
bað vár sérkennilegt fyrir þann
öldudal, sem allt var sokkið i,
hugsaði Wright með vaxandi
gremju, aö einhver svartfrakka-
lúsablesi, sem vafalaust hélt, að
hann væri i lifshættu ef hann æki
hraöar en 70 á aðalbraut, skyldi
dirfast aö setja út á við hann ef
hann færi með kostnaöinn
svolitiö fram úr áætlun, þegar
aðgætt var, aö embættiö hafði
stóraukinn árangur að sýna.
Hann ákvað að orða bréfið
þannig, aö jafnvel heimskasti
skrifstofuþræll gæti skilið við
hvað væri átt.
Einn siminn af þremur hringdi.
Hann tók hann upp. »
— Er þetta hr. Wright?
— Já.
— Þetta er sambandstjórinn i
höfuðborgarlögreglunni hérna.
Við höfum fengið fregnir af
demöntunum, sem þér báðuð
okkur aö grennslast eftir.
— Og hvað hafið þið frétt? „■
— Þeir virðast hafa verið
boðnir til kaups skartgripasala i
Paris. Lýsingin á steininum
kemur alveg heim við þá, sem þér
senduð.
— Hvað heita þessir skart-
gripasalar?
— Það heitir Maison
Parmerntier. P-A-R-M- . . .
— Þakkað yður fyrir, ég kann
nú annars að stafa.
— Já, herra. Svo varð stutt
þögn. Þaö var I fyrsta sinn, sem
þessi embættismaður hafði átt
nokkur skipti við Wright. — Búöin
er i Rue Sausseries.
— Hvar er sú gata?
— Rétt skammt frá Rue Rivoli.
— Hvenær var þessi demantur
boöinn til kaups?
— í gærmorgun
— Hversvegna i andskotanum
20. TBL. VIKAN 41