Vikan - 17.05.1973, Side 42
ÞARFASTI ÞJONNINN
NU MED DERMAL
SEM VERNDAR HENDUR YÐAR VIÐ:
UPPÞVOTTINN, ULLARÞVOTTINN OG ALLAN
HANDÞVOTT
FRIGG
er þetta þá svona lengi á leiöinni?
Embættismaöur'inn haföi vit á
aö svara þessu engu.
Wright lagöi simann. Hann
geispaöi og þreytan ætlaöi aftur
aö yfirbuga hann. Hann hringdi i
hússimann og baö'um kaffi.
Kaffiö kom áöur en þrjár
minútur voru liönar. Þetta var
skyndikaffi og liktist þessvegna
litiö alvörukaffi, en þrátt fyrir
alla valdsmennsku sina, haföi
Wright enn ekki getaö kennt
neinum þarna aö búa til
almennilegt kaffi. Hann kveikti
sér i öörum vindlingi. Hann
hugsaði meö gremju til Verrells,
sem drakk aldrei. annað en kaffi
úr nýmöluöum baúnum, vandlega
siaö. Já, Verreli hafði efni á aö
lifa eins og fursti.
Hann kallaöi á Georg inn i
skrifstofuna. Honum gramdist,
að Georg var eins og nýsleginn
túskildingur, beinlinis að springa
af velliöan afþvi aö hann missti
aldrei af svefninum sinum. —Ég
,er búinn aö frétta frá Paris,
Georg, sem haföi sett sig niöur,
til þess aö biða ekki oflengi boöa
um þaö, sagöí: — t hvaöa
sambandi?
— Já, hvern andskotann
heldurðu?
— Rétt i svipinn get ég ekki
látiö mér detta annað i hug en
Folies Bergéres.
— Geturöu aldrei tekiö nokkurn
skapaöan hlut alvarlega?
— Jú, kvenfólk.
— Ef ég mætti nokkru ráða . . .
— Þá mundiröu útrýma bðéöi
óöi og fögrum svanna, en setja
vinið á.
— Stundum finnst mér ég ætti
aö . . .Wright lauk ekki við
setninguna. Hann lauk úr
kaffibollanum. og velti þvi fyrir
sér, hvort kaffið liktist meira
brunnu akarni eöa sagi. —
Mathewsdemanturinn er kominn
til Parisar.
— Já, einmitt. Og hvenær
leggjum viö Verrell þá af staö?
— Hver skrattinn hefur sagt, aö
þú farir nokkurn hlut meö
Verrell?
— Þú sagöir honum sjálfur, aö
þú slepptir honum ekki nema meö
einhvern verndareneil með sér.
Wright tautaði eitthvaö
óskiljanlegt.
Georg leit á hann. Veiztu, aö þú
ert þreyttur? sagöi hann.
Wright drap I vindlingnum og
velti þvi fyrir sér, hvort blóö-
þrýstingurinn i sér væri ekki
oröinn hættulega hár. — Faröu þá
til Parisar meö Verreil, athugaöu
demantinn og vittu, hvort þaö er
sá rétti. Ef svo er, þá náöu i
Mathews, leitaöu á honum og
spuröu hann spjörunum úr,
finndu, hvaö sambönd hann hefur
og komdu svo meö hann hingaö.
Georg stóö upp. s
— Og eitt enn: Þégar
kostnaöarreikningurinn þinn
kemur inn, ætla ég aö lita yfir
hann sjálfur.
Geort virtist ekki kippa sér
mjög upp viö þessa hótun.-
Parisarborg var alveg aö
stikna i sólarhitanum. tbúarnir
voru enn ekki farnir aö flýja
borgina almennt, og til sumar-
staðanna, og borgin var meö
fjölmennásta móti, svo var
aökomumönnum fyrir aö þakka.
Þaö var sifelld ös á gangstétta-
kaffihúsunum, isrjómi og kökur
voru étnar i tonnatali, óteljandi
sitrónur voru kreistar niöur i glös
og ótölulegur fjöldi vinglasa
drukkinn. Skemmtigaröarnir
voru fullir og svo söfpin, Louvre
var sneisafullt af gestum og
biöröð myndaðist til aö komast
upp I Effelturninn. Folies
Bergéres var útselt.
Verrell lauk úr vermútglasinu
sinu og leit á úriö. — Viö ættum
víst aö fara aö hypja okkur,
Georg, sagði hann, og var engin
sérstök hrifning i rómnum.
— Ég býst viö þvi, tók Georg
undir, álika dauflega.
Verrell sat áfram og horföi á
umferöina. Frönsk umferð kom
eins og af sjálfu sér og líktist
ekkert umferöinni i London og
hann naut þess aö sitja þarna
undir röndóttri gluggahlif og
drekka vermút.
Honum þótti vænt um allar
stórborgir, - hrynjandin i
hreyfingum þeirra hafði góö áhrif
á hann, en Paris var alveg
sérstakt uppáhald hans. Paris
átti við mann, sem vildi skemmta
sér, án allrar sektarkenndar — I
London var fólk meö vonda
samvizku ef það haföist ekki
eitthvaö aö, sem var beinlinis
þarflegt, og hagaði sér rétt eins
og það væri einhver höfuösynd aö
vera iöjulaus, en i Paris var
iöjuíeysiö vinsælt og dekrað viö
þaö. I Paris gat maöur setiö i
gangstéttarkaffihúsi timunum
saman, og ekki gert annaö en
drekka, og án þess aö finna til
neins samvizkubits.
Sárnauðugur kallaöi Verrell á
þjóninn og borgaöi reikninginn,
og bætti viö nægilegum
drykkjuskilding til þess, aö
þjónninh tautaöi einhver þakkar-
orö. Þeir Georg gengu siöan til
Darmestetergötu, en viö hana
miöja var lögreglustöö
hverfisins.
Framhald i næsta blaði.
42 VIKAN 20. TBL.