Vikan - 12.07.1984, Blaðsíða 32
með mismunandi mynstri á ermum
Bakstykki:
Fitjið upp 54 I. með appelsínugula
litnum og prj. nr. 2 1 /2 og prjónið 4 cm
stroff (1 I. sl.f 1 I. br.). Skiptið yfir á
prjóna nr. 4 1/2 og prjónið slétt prj.
Aukið um 161. í fyrstu sl. umf. Prjónið
þar til bolurinn mælist 45 cm. Fellið þá
allar I. af. 1
Hægra framstykki:
Fitjið upp 30 I. með appelsínugula
litnum og prj. nr. 21/2 og prjónið 4 cm
stroff (1 sl., 1 br.). Skiptið yfir á prj. nr.
4 1/2 og prj. slétt prj. Aukið um 10 I. í
fyrstu umf. Prjónið þar til bolurinn
mælist 45 cm og fellið þá allar I. af.
Prjónið vinstra framstykki alveg
eins.
Ermar:
Fitjið upp 30 I. með prj. nr. 2 1/2 og
prjónið 4 cm stroff. Skiptið yfir á prj.
nr. 4 1/2, aukið um 10 I. og prj. sl. prj.
Aukið síðan alltaf um 2 I. í 2. hv. umf.
Fallegast er að auka alltaf í á sama
stað undir hendinni og hafa 11. alltaf á
milli. Hægt er að merkja staðinn með
spotta til að auðveldara sé að sjá
hann.
Byrjið á mynstrinu á hægri ermi í 7.
umf. Þegar mynstrinu er lokið eru prj.
18 cm með appelsínugula litnum,
siðan 4 umf. með svarta litnum.
Prjónið áfram með appelsínugulu þar
til ermin mælist 42 cm. Allar I. felldar
af.
Mynstrið á vinstri ermi hefst þegar
ermin mælist 20 cm. Síðan er prj. með
appelsínugula litnum þar til ermin
mælíst eins og sú hægri. Þá eru allar I.
felldar af.
Frágangur:
Takið upp 761. í hálsmáli með appel-
sínugula litnum. Prj. stroff, 1 sl., 1 br.,
4 cm. Fellið allar I. af.
Saumið peysuna saman. Brettið
stroffin niður til helminga og saumið
þau niður á röngunni. Þræðið síðan
með svörtum lit í kragann, stroff á
ermum og neðan á peysunni.
Saumið hnappagöt í saumavél,
klippið á milli og heklið í kring. Festið
síðan tölurnar og gangið frá öllum
endum. Pressið létt yfir peysuna.
Þegar peysan er þvegin er best að
gera það í höndum, úr 40° heitu vatni,
og leggja síðan peysuna til á hand-
klæði eftir máli.
Zareska acryl,
4 hnotur appelsínugult (200 g),
1 hnota svart (50 g).
Tölur:
4 stórar, svartar tölur.
Prjónar:
nr. 2 1/2 og 4 1/2, ermahringprj. nr. 2
1/2 og 4 1/2.
Heklunál: nr. 4.
Stærð: 38.