Vikan - 12.07.1984, Blaðsíða 9
ÞREFÖLD ÍSLENSK FERMINGI KAUPIN
og áttræðisafmæli
Texti Dóra Stefánsdóttir
Myndir Annelise Jensen
Þrjú íslensk böm voru fermd í
Kaupmannahöfn í maíbyrjun,
Birgir Möller, Berglind Hrafn-
kelsdóttir og Olöf Stefánsdóttir.
Það var auðvitað prestur Islend-
inga í Kaupmannahöfn, Ágúst Sig-
urðsson, sem fermdi þau.
1 fjölskyldu Olafar var tilefni
hátíðahalda tvöfalt. Afi hennar,
Jón Bjamason, átti áttræðisaf-
mæli daginn eftir og var veislum
slegið saman. Jón og Dagmar
Olafsdóttir, kona hans, komu alla
leið frá Islandi til að taka þátt í
veisluhöldunum. „Ég geri þetta
nú fyrir stelpuna, til að geta verið
við ferminguna hennar. Mér
finnst ekkert merkilegt við það að
verða áttræður,” sagði Jón.
Olöf hafði upphaflega ætlað að
láta ferma sig með dönskum jafn-
öldrum sínum. En þegar í ljós
kom að tvö önnur íslensk böm
yrðu fermd skipti hún um skoðun.
Ég spurði hana að því hvort henni
fyndist hún sjálf meira íslensk eða
dönsk. „Ég veit það ekki. Ég er
svo blönduð. Ég hugsa í rauninni
aldrei um það,” sagði hún.
Olöf og móðir hennar, Inga
Bima Jónsdóttir, hafa búið í Dan-
mörku í 6 ár. Olöf hefur þó farið
heim til Islands á hverju ári og þá
meðal annars verið hjá ömmu
sinni og afa. Hún er yngst af níu
bamabömum þeirra. Hún fór
einnig með þeim til Bandaríkj-
anna fyrir ári. Tengslin eru þann-
ig sterk og gaman að halda veislu
saman.
Undirbúningur veislunnar gekk
ekki átakalaust. Tíu dögum fyrir
hana lenti Inga Bima í umferðar-
slysi. Hún hjólaði eftir einni af
fjölfömustu götum borgarinnar,
afar þröngri og án hjólastíga. Bíll
rakst utan í hana og felldi hana
um koll. Annar fóturinn festist í
hjólinu og Inga Bima og hjólið
drógust drjúgan spöl. Af-
leiðingin varð heilahristingur,
margsnúinn fótur, svartur af mari
og gifsklæddur, ásamt minni
áverkum, meðal annars tveim
glóðaraugum. „Ég var eins og
Frankenstein.” Eins og þetta væri
ekki nóg lagðist svo Olöf í rauða
hunda vikuna fyrir ferminguna og
fékk upp í 40 stiga hita.
Á fermingardaginn voru þær
mæðgur hins vegar orðnar vel
hressar þó Inga Bima staulaðist
enn um í gifsinu. Yngri sonur
hennar hjálpaði henni eftir bestu
getu, sá eldri var hins vegar
heima á Islandi. Veislan, sem
haldin var í Jónshúsi, tókst með
mestu ágætum og allir skemmtu
sér hið besta þrátt fyrir undan-
gengna erfiðleika.
Fermingarbör in þrjú, Bergiind, Birgir og Ólöf, í kirkjunni.
í veislunni um kvöldið. Jón Bjarnason, Ólöf, Dagmar og Skorri bróðir Ólafar.
28. tbl. Vikan 9