Vikan - 05.12.1985, Qupperneq 24
Slúður
f
r
Eddio Murphy:
Ég vil engin óskarsverðlaun. Ég
vil bara að áhorfendur hafi gaman
af kvikmyndum mínum. Clint
Eastwood hefur ekki unnið til
neinna óskarsverðlauna en hann
er samt stærsta stjaman í heimin-
um. Og til f jandans með allt hitt.
Clint Eastwood:
Stundum kemur fólk til mín og
ætlast til þess að ég dragi fram
byssu. En það er hlutverkið. Fólk
verður fyrir vonbrigðum þegar
það kemst að því að sjálfur er ég
ekki gæinn í hlutverkinu. Ég er
ekki ánægður í raun og veru. Ef ég
væri ánægður myndi ég sennilega
segja því að fara norður og niður
og spUa golf það sem eftir er æv-
innar.
Judy Davis:
Hofur loikiö í Passage to India og í áströlsku
myndinni My Brilliant Career.
Ég hef neitað mörgum hlutverk-
um sem mér hafa boðist. Meðal
þeirra var aðalhlutverkið í sjón-
varpsþáttunum Þymifuglunum.
Ég las handritið og þegar ég kom
að senunni þar sem stúlkan og
presturinn kyssast innilega vissi
ég að ég gæti ekki leikið hlutverk-
ið. Ég var nefnilega alin upp í ka-
þólskri trú og að kyssa prestinn er
of líkt dagdraumum ungrar, ka-
þólskrar stúlku til að ég gæti leikið
það.
Victor Banerjae:
Lék eitt aðalhlutverkið í Passage to India.
Mikill hluti af leikurum okkar
(indverskum) laöast að Bombay
af því að þar getur maður orðið
skyndilega frægur. Þetta er leik-
völlur þjóðarinnar. Myndir þaðan
eru sýndar um allt Indland. Mynd-
ir gerðar í Bombay eru hræðilegar
en þar er peningana að fá. Og ég
játa að ég lék í einni mynd þar og
vil sem minnst um hana tala.
Þetta var hræðileg þvæla.
Samt sem áður þéna ég nóg til
að geta sent dætur mínar tvær í
dýrasta einkaskólann á Indlandi.
Við höfum kokk, þjónustustúlku,
einkabílstjóra, vaktmann og
hreingemingakonu.
Jessica Lange:
Ég held að flestir setjist í helgan
stein. Þeir festast í samböndum,
atvinnu sinni; koma lífi sínu í fast-
ar skorður. Þeir setjast bara að.
Og það er dálítið sem ég hef aldrei
getað gert.
Ég segi ekki að það sé sérstak-
lega jákvætt. Þaö hefur kostað
mig mikinn sársauka að rifa mig
út úr ýmsu og koma mér áfram á
eigin braut.
stórstjörnur
skrifta
Clint Eastwood.
Sally
Judy Davls.
Eddie Murphy.
Mal Glbson.
Diane Keaton:
Þegar ég var pínulítil var ég vön
að fara út í garð og syngja fyrir
tunglið. Það var eins og að vera
sett í samband við stóra rafhlöðu.
Þegar ég var í níunda bekk söng
ég í hæfileikakeppni með annarri
stelpu með svartar framtennur. Á
síðasta ári í menntaskóla lék ég
annað aðalhlutverkið í skólaupp-
færslunni á Little Mary Sunshine.
Stjaman var falleg en ég var sú
fyndna. Ég söng einsöngslagið
mitt og fór svo af sviðinu og þá
heyrði ég þetta hljóð. Ég trúði
ekki eigin eyrum. Hljóðið var
klapp. Þeir voru að klappa fyrir
mér og þeir klöppuðu svo mikið.
Jeff Bridges:
Lék í myndinni Starman. Hann er sonur Lloyd
Bridges.
Ég var aldrei eiturlyfjasjúkling-
ur en ég reykti mikið af hassi. Það
er alveg sama hvað hver segir,
hass er vanabindandi. Það getur
líka ruglað dómgreindina. Og þótt
ég reykti aldrei á meðan ég var að
vinna var hassið mér nauðsynlegt
andlega.
Ég er dæmigerður Kaliforníu-
búi. Ég er leitandi og mjög upp-
tekinn af sjálfum mér, eins og
margir aðrir, og kannski meira en
ég vil láta í veðri vaka.
Sally Field:
Bamæska mín var róstusamur
tími fyrir mig. Ég var alltaf að
leika fyrir minn raunverulega föð-
ur. (Foreldrar mínir skildu þegar
ég var 4 ára. Mamma giftist svo
Bíó-Tarzan, Jock Mahony.) Ég
var mikill loddari, alltaf síbros-
andi og sagði skrítlur í sífellu. Það
tók mig langan tíma að skilja að
tilfinningar minar eru mikilvægar.
Mel Gibson:
Lék í Mrs. Soffel, Mad Max, The Road Warrior
og fleiri kvikmyndum.
Ástralíubúar vita að ég er
Ameríkani en þeir telja mig líka
vera Ástralíubúa. Ég er nú búinn
að búa í Ástralíu í meira en 15 ár
og mér finnst ég vera Ástralíubúi.
Ég á auðvitaö ameríska pass-
ann minn ennþá og mun aldrei
láta hann af hendi. Ég mun aldrei
hætta að vera Ameríkani en samt
vil ég ekki búa annars staðar en í
Ástralíu. Ég lifi skemmtilegu lífi
og Ástralía er frábært land.
Tom Hulce:
Lék Mozart í kvikmyndinni Amadeus. Hann lék
einnig i myndinni National Lampoon's Animal
House. Hann hefur oinnig leikið mikiö í leikrit-
um, svo sem Candida og The Sea Gull.
Veistu hvað var erfiðast við að
leika Mozarthlutverkið? Að læra
að spila á píanó öfugt. Þú verður
að muna aö ég hafði aldrei spilað á
píanó fyrr.
24 Vikan 49. tbl.