Vikan - 05.12.1985, Page 37
Maríá
Lovísa
María Lovísa er vel þekktur
fatahönnuður. Hún lærði í
Danmörku. María rekur versl-
unina Maríurnar og þar selur
hún hönnun sína.
María valdi rauðbleikan jakka
með hettu og buxur við til að
vera í á jólunum. ,,Þetta er svo
jólalegur litur,” sagði hún.
Hún er í svörtum toppi úr pallí-
ettuefni við og með húfu úr
sama efni. Allt er þetta að sjálf-
sögðu hannað af henni. Skart-
gripirnar fást einnig í verslun
hennar.
María sagðist ekki vera sér-
staklega mikil jólamanneskja en
það kæmi nú kannski til af því
að þetta væri mesti annatíminn
í versluninni. ,,Maður er svo
þreyttur þegar jólin loksins
koma að mestur rími fer í
hvíld,” sagði María. ,,En þó er
þetta nú skemmtilegur tími og
þá sérstaklega að vera með
barninu, borða matinn sem
maðurinn minn eldar, og jóla-
stemmningin,” bætti hún við.
Aðspurð sagðist María helst
óska sér að fá bíl í jólagjöf og
vonum við að henni verði að
ósk sinni um leið og við óskum
henni gleðilegra jóla.
49. tbl. Vikan 37