Vikan - 05.12.1985, Page 42
Jólaórói
Efni: Náttúrulitt bast, 2 hankir, um það bil 75
endar, 1 metri á lengd, blómavir, rautt filt,
polyestervatt, rautt bómullargarn, rautt
silkiband, rauður tvinni.
Aðferð:
Búið til fléttu. Þegar byrjað er að flétta á að
binda fyrir lengjuna 10—15 cm innan við
endana hvorum megin, það er skilið eftir
ófléttað. Sjá teikningu. Leggið fléttuna á
víxl og vefjið blómavír um samskeytin og
festið vel saman.
Takið upp sniðið, teiknið hjörtun á filtið og
klippið út. Saumið hjörtun saman með
litlum sporum. Skiljið eftir op fyrir tróð,
setjið tróðið inn í og saumið fyrir. Festið
hjörtun hvert i annað með bómullargarninu,
mislöngum endum, sjá teikningu. Hengið
þau á fléttuna eins og sýnt er á teikning-
unni. Bindið rautt silkiband yfir samskeytin
á fléttunni, lengdin á bandinu fer eftir þvi
hvar kransinn á að hanga. Síðast er búin til
slaufa. Notið blómavír til þess að festa
slaufuna saman i miðjunni og festa hana á
kransinn.
Stafur, sleikjupinni
og sokkur
Efni: Bómullarefni, polyestervatt, tvinni,
bambus, silkiband i slaufur, lim.
Teiknið upp sniðin og leggið á efnið. Munið að
bæta alls staðar við um það bil 1/2 cm saum-
fari. Klippið út og saumið saman á röngunni,
klippið raufar upp í alls staðar þar sem eru
bogadregnar linur. Snúið við og troðið vatti inn
í. Saumið fyrir opið nema á sleikjupinna, þar er
skilið eftir litið op fyrir spýtu. Berið svolitið lim
á spýtuna um leið og hún er sett i. Upphengi
saumað i.