Vikan


Vikan - 10.03.1988, Síða 4

Vikan - 10.03.1988, Síða 4
VIKAN 10. MARS 1988 8. TBL. 50 ÁRG. VERÐ KR. 198. Útgefandi: Sam-útgáfan Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík Sfmi 83122 Framkvœmdastjóri: Sigurður Fossan Þorleifsson Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson Ritsfjórar og ábm.: Pórarinn Jón Magnússon Bryndfs Kristjánsdóttir Hófundar efnis í þessu tölublaði: Magnús Guðmundsson Gunnar Gunnarsson Adolf Erlingsson Friðrik Indriðason Gunnlaugur Rögnvaldsson Vigdfs Stefánsdóttir Jón L. Árnason fsak Örn Sigurðsson Helgi Rúnar Óskarson Ævar R. Kvaran Ragnar Lár Páfi Gfsli Ólafsson Guðjón Baldvlnsson Björg Randversdóttir Þórarinn Jón Magnússon Bryndís Kristjánsdóttir Ljósmyndir: Páll Kjartansson Magnús Hjðrleifsson Gunnlaugur Rögnvaldsson Þórarinn Jón Magnússon Adolf Erlingsson Útiitsteikning: Guðni Björn Kjœrbo Setning og umbrot: Sam-setning Sigríður Friðjónsdóttir Pála Klein Árni Pétursson Litgreiningar: Korpus hf. Filmuskeyting, prenfun, bókband: Hilmir hf, Prentun kápu: Oddi hf. Dreifing og áskrift: Sími 83122 Ritstjórnarspjall Lesendahópurinn kannaður Eins og viö skýrðum frá í síð- asta tölublaði Vikunnar gekkst rit- stjórnin fyrir könnun meðal áskrif- enda á viðhorfum þeirra til þeirra breytinga sem gerðar voru í kjöl- far eigendaskiptanna á blaðinu síðastliðið ár. Þrátt fyrir að les- endakönnun sú sem Félagsvís- indastofnun Háskólans gerði fyrir Verslunarráð, auglýsendur og tímaritaútgefendur hafi sýnt og sannað að breytingin hafi fallið mönnum vel í geð vildum við afla okkur nánari upplýsinga. í könnuninni sat Vikan í þriðja sæti ásamt Nýju lífi, en aðeins Mannlíf og Hús & híbýli reyndust njóta meiri athygli. Meira en annar hver aðspurðra kvaðst lesa Vikuna. Skömmu eftir að þessar upp- lýsingar lágu fyrir fór könnun Vik- unnar fram. Vösk sveit manna sat við síma tvær helgar og nokkur kvöld að auki og hringdi í hátt á þriðja hundrað áskrifenda og spjallaði við þá um blaðið. Hvað þeir vildu helst sjá í blaðinu af föstu efni, hvað mætti missa sín og hvað mætti halda áfram. Við gerum betur Hér verður ekki farið út í að rekja niðurstöður þessarar könnunar, en hún leiddi margt fróðlegt í Ijós sem skilar sér nú í breyttu blaði - og á eflaust eftir að leiða til frekari breytinga til batn- aðar. Þetta nýjasta tölublað Vikunn- ar, sem þú nú hefur í höndunum, talar sínu máli um breytingarnar. Þeim þarf tæpast að lýsa hér. Flettu bara blaðinu og kynntu þér þær af eigin raun. En ( stuttu máli sagt; blaðið höfðar nú væntanlega enn meira til kvenna en karla þó karlmenn finni margt bitastætt í blaðinu við sitt hæfi líka. Þær breytingar sem nú er verið að gera á blaðinu gera það að verkum að það kemur út aðra hverja viku fyrst um sinn. Þær útlitsbreytingar sem gerð- ar hafa verið eru kostnaðarsam- ari en útgerð blaðsins undanfarna mánuði. Samt sem áður kemur það ekki nema að litlu leiti fram í útsöluverðinu. Verðhækkunin er ekki nema 18 krónur og er Vikan því eitt allra ódýrasta tímaritið á markaðnum enn í dag. Peugeot 205 vinningur í afmœlisgetraun Að sjálfsögðu erum við í hátíð- arskapi. Bæði vegna þess hve Vikunni hefur vegnað vel í okkar höndum, vegna breytinganna sem við nú erum að gera á henni til enn betri vegar og svo auðvitað líka vegna þess, að á þessu ári eru liðin 50 ár frá því blaðið hóf göngu sína. Því er það sem við efnum til veglegrar getraunar þar sem vinningurinn er glæsilegur smá- bíll að verðmæti 405 þúsund krónur. Hann er af gerðinni Peug- eot 205 og hefur hlotið margvís- legustu verðlaun og viðurkenn- ingar eins og fram kemur i grein um bílinn á blaðsíðu 35. Þátttökurétt eiga allir áskrifend- ur Vikunnar bæði hinir eldri og eins þeir sem fylla út áskriftarseð- il og póstleggja fyrir 31. maí næstkomandi, en þá verður dreg- ið um bílinn. Getraunin er einfaldlega fólgin í því, að krossa við í réttan reit á áskriftarseðlinum þar sem spurt er hvenær Vikan hóf göngu sína. Eldri áskrifendur geta einnig sent inn áskriftarseðla með lausn get- raunarinnar, en verða þá að muna að krossa við í reitinn þar sem fram kemur að viðkomandi sé þegar orðinn áskrifandi. Það þarf ekki að taka það fram, að Vikan er ódýrari í áskrift en lausasölu. Mánaðaráskrift kostar aðeins 296 krónur. Það er ekki mikið fyrir vandað tímarit. - Og svo má ekki gleyma möguleikan- um á því að þú verðir einum bíl ríkari í maí! Svo er líka það, að þú hreppir hlutverk „blaða- manns" og farir ásamt ættingja eða kunningja þínum í lúxusferð til útlanda fyrir Vikuna líkt og hún Guðrún sem sagt er frá á blað- síðu 13. Nýr ritstjóri Þegar Vikunni hefur nú verið breytt í kvennablað þótti ekki annað hægt en að hleypa kven- manni í annan ritstjórastólinn. Magnús Guðmundsson vék úr sæti fyrir Bryndísi Kristjánsdóttur, sem gegnt hefur hlutverki rit- Ritstjórarnir Byrndís Kristjánsdóttir og Þórarinn Jón Magnússon sjást hér bollaleggja breytingarnar á Vikunni ásamt Árna Péturssyni umbrotsmanni. í baksýn sjást þær Sigríður Friðjónsdóttir og Pála Klein, sem annast setninguna. - Ljósm.: Páii Kjartansson. PfH, W'—_ V ~ V - 4 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.