Vikan - 10.03.1988, Blaðsíða 31
Þannig sparar þú:
BRAUD Á 22-
Fjölskyldumeðlimir á mínu heimiii eru
sex. Við þessa tölu bætast oft kunningjar og
vinir barnanna og talsvert er borðað af brauði
á heimilinu - a.m.k. tvö brauð, og stundum
fleiri, á dag.
Þar sem ég er svo heppin að vera að mestu
leyti heimavinnandi húsmóðir, þá kom til tals
að ég bakaði brauðin sjálf í stað þess að kaupa
þau (eiginmaðurinn átti hugmyndina). Þetta
fannst mér í fyrstu ekki koma til mála þar sem
þetta væri allt of tímafrek vinna, auk þess sem
tafmagnseyðsla hlyti að aukast um helming.
Þar að auki vissi ég fátt eitt um brauðbakstur
en vissi þó að í þau þyrfti pressuger sem ég
taldi vandmeðfarið efni. En eftir því sem mat-
arútgjöldin jukust því ásæknari varð þessi
hugmynd og ég ákvað því að reyna við brauð-
baksturinn og reikna um leið út kostnaðinn
sem honum væri samfara.
í ljós kom að tiltölulega auðvelt er að baka
brauð og af því er geysilegur sparnaður og
segja má að ég hafl fengið 2-3 brauð ókeypis
fyrir hvert eitt sem ég bakaði. Þar að auki
vissi ég nákvæmlega hvað er í brauðunum
sem ég baka sem mér finnst mikilvægt atriði.
Nú baka ég öll brauð sem borðuð eru á heim-
•bnu. En lítum á kostnaðarhliðina:
1 eitt brauð fer um Vz kg hveiti eða annað
mjöl. Um V4 1 vökvi: Mjólk — súr, léttmjólk
eða undanrenna, vatn. 25 gr pressuger eða 2
tsk. þurrger. E.t.v. um 20—25 gr smjörlíki eða
1 dl olía. 1-2 tsk. sykur. 1-2 tsk. salt.
Vigdís Stefdnsdóttir bakar brauð
Helst nota ég óhvíttað hveiti frá Finax sem
kostar 47 kr. 2 kg, eða 11.75 í 1 brauð. Juvel
hveiti og Kornax kosta álíka mikið og Finax.
Mjólk kostar kr. 47.90 pr. lítri eða 11.97 í 1
brauð. Þurrgerið sem ég nota er í 500 gr dós
sem kostar 188 kr. Tveggja kílóa poki af heil-
hveiti kostar kr. 113. Grahamsmjöl er eigin-
lega það sama, en kostar aðeins 59 kr. 2 kg.
Smjörlíki kostar 67 kr. 500 gr, eða 2.70 kr. í
1 brauð.
Venjulegur bakarofn eyðir 2 — 4 kw skv.
upplýsingum frá Rafmagnsveitu ríkisins og
hver kw stund kostar kr. 3.72. Ofninn þarf að
hita í u.þ.b. 1 klst fyrir hvern skammt af
brauði (heppilegast er að baka 4 brauð í einu,
til að spara rafmagnið) og við reiknum með 3
kw = 11.16 kr.
Uppskriftirnar koma frá ýmsum stöðum,
þ.á.m. ulan á hveitipokunum, úr blöðum og
matreiðslubókum, frá ættingjum og vinum.
Sama aðferð er notuð við öll gerbrauðin og
mér þykir best að hnoða deigið í vél þar til
það hangir vel saman og ljúka svo að hnoða
það í höndunum.
Vökvinn er hitaður ásamt feitinni og sykr-
inum í ca 37°C. Gerinu bætt útí vökvann látið
bíða í .smástund. Mjölinu bætt útí, hnoðað
saman. Látið bíða í ca 1 klst. eða lengur ef vill,
það er allt í lagi. Hnoðað aftur og sett í form
eða á plötu. Látið hefast aftur í 30 mín. eða
lengur, ef vill.
Grahamsbrauð
Uppskrift úr gamalli bók eftir
Jóhönnu Sigurðardóttur.
kr.
500 gr Grahamsmjöl 14.75
20 gr ölger (2 tsk ger) 2.50
375 gr vatn 0
1 tsk. salt 0.50
Krónur 17.75
Rafmagn 11.00
Alls kr. 28.75
Helmingurinn af vatninu soðinn
ásamt saltinu og 2/3 af mjölinu
vætt með þessu. Hnoðað saman
og látið kólna vel. Þá er gerinu,
vatninu og mjölinu sem eftir er
hnoðað vel saman við. Látið
lyfta sér skv. fyrri aðferðarlýs-
•ngu og bakað í 1 — 1 V2 klst.
Kuðungabrauð og
Sultubrauð
Hér kemur svo dálítið af sæt-
abrauði í lokin. Fyrsta uppskrift-
•n gengur undir því frumlega
nafni kuðungabrauð og sult-
nbrauð. Þetta eru litlir snúðar
°g vínarbrauð og er mjög vin-
sælt hjá bæði ungum og göml-
um í íjölskyldunni. Uppskriftin
er nokkuð gömul en góð fyrir
því.
Kuðungabrauð
8 bollar hveiti (ca. 1 kg) 23 50
2 bollar sykur (ca 300 g) 5.70
7 tsk lyftiduft 5.00
200 gr smjörlíki 26.80
2 tsk sítrónudropar 2.00
3—4 dl mjólk 18.80
1 egg ef vill 10.00
BCrónur 9180
Rafmagn 11.00
Alls kr. 102.80
Úr þessu fást 58 stykki og kostar
þá hvert kr. 1.77.
Þetta er venjulegt hnoðað deig.
En ég geri það aðeins öðruvísi.
Ég hræri fyrst saman sykri og
smjörlíki í hrærivél þar til það
er ljóst og létt, bæti við egginu
og hræri um stund.
Set hnoðaran 'í vélina og bæti
hveitinu, lyftiduftinu, dropun-
um og mjóíkinni útí og læt vél-
ina hnoða þar til deigið hangir
vel saman. (Það er hægt að nota
litla handhnoðara líka, eða hella
hrærunni útí þurrefnin og
hnoða í höndunum).
Hnoðið deigið þar til það er
slétt og sprungulaust.
Fletja út á borð ca 1/4 af deiginu
í einu. Pensla deigið með mjólk
og strá kanilsykri vel á. Vefja svo
deigið saman í rúllu og skera í
ca 1 cm breiðar kökur. Látið á
smurða plötu (það má raða
nokkuð þétt) og baka í ca 10—
12 mín við 200°C hita.
Sultubrauð
Sama deig og í Kuðungabrauði.
Fletja út eins og áður en skera í
ca 20 cm breiðar ræmur eftir
endilöngu. Smyrja rabbabara-
sultu á ræmurnar (ekki þykkt)
og brjóta saman eftir endilöngu.
Baka í ca 12-15 mín. við
200°C. Kælt og skorið á ská í
bita.
Úr deiginu öllu fást u.þ.b. 4 plöt-
ur af gómsætum kökum ca 34
snúðar og 24 vínarbrauð.
Góð kaka.
Hér kemur svo uppskrift af
brúnköku sem getur ekki mis-
heppnast.
kr.
250 gr smjörlíki 34.60
350 gr sykur 6.65
2 egg 22.00
500 gr hveiti 11.75
1 tsk natron
1 tsk negull
1 tsk kanill
4 msk kakó
allt krydd ca 15.00
4 dl mjólk 19.20
Krónur 109.20
Rafmagn 11.00
Alls kr. 120.20
Úr uppskriftinn fást tvær kökur
á kr. 60.10, stykkið.
Hræra saman sykur og smjörlíki.
Bæta eggjunum útí og hræra
enn betur. Bætið þurrefnum og
mjólk útí og hræra um stund,
þar til deigið er allt eins á litinn.
Smyrja 2 kökuform og setja
deigið í þau. Baka við 160°C í ca
45—60 mín.
VIKAN 31