Vikan - 10.03.1988, Blaðsíða 64
Fjölskylduráð er
gengið hafa frá
móður til dóttur
í margar kynslóðir
/
gegnum tíðina hafa
margar þekktar fegurðardísir
sagt að jurtaandlitsbað sé þeirra
uppgötvun en það er í rauninni
alþekkt ráð til að djúphreinsa
húðina en ekki má nota þessa
aðferð oftar en einu sinni í viku
því þá hverfa úr húðinni of mik-
ið af náttúrulegri húðfitu.
Jurtaandlitsbað
Sjóðið um V21 afvatni í nokk-
uð stórum potti. Bætið út í saf-
anum úr V2 sítrónu (eða berkin-
um) og setjið síðan handfylli aí
jurtum sem til eru á heimilinu
út ípottinn. Algengustu tegund-
irnar eru rósmarín, timian,
mynta, marjoram, basilkum,
steinselja, negull, kúmen, anís
eða fennel fræ.
Slökkvið undir pottinum og
setjið hann á borð. Hyljið hárið
og setjið stórt handklæði yfir
höfuðið og pottinn. Haldið and-
litinu í um 25—30 cm íjarlægð
frá vatnsySrborðinu. Loídð aug-
unum og leyfíð gufunni að
vinna sína töfrahreinsun í um
15 mínútur. Á eftir er andlitið
þvegið upp úr KÖLDU vatni til
að loka svitaholunum.
Jarðarber og rjómi
Þig mun án efa langa að borða
afganginn ef einhver verður og
húðin mun líka njóta góðs af
því. Jarðarber gera húðina stífa
og virka mjög vel á feita eða
óhreina húð. Ein notar bráðinn
jarðarberjaís í staðinn fyrir fersk
ber.
Handfylli af jarðarberjum eru
stöppuð. Stórri matskeið af
rjóma blandað saman við. Setjið
þykkt lag yfír andlit og háls
(gott að nota rakbursta við
þetta) leyfíð húðinni að njóta
þessa í 10 mínútur. Þurrkað af
með pappírsþurrku og vatni
skvett yfír andlitið.
Augnháraaþykkir
Einfalt ráð til að láta augnhár-
in vaxa og þykkna kemur frá
Kentucky:
Á hverju kvöldi er laxerolía
borin á augnhárin. Þetta er allt
og sumt!
Laxerolía á líka að virka vel á
brúnu flekkina sem vilja mynd-
ast á höndum og í andliti:
Nuddið blettina einfaldlega
uppúr olíunni, tvisvar til þrisvar
á dag.
Ölkelduvatn sem
fegrunarmeðal
Ölkelduvatn er hressandi og
er hægt að nota sem andlitsvatn
eða til að setja yfír andlitsfarð-
ann til að hann haldist betur.
Þegar búið er að bera andlits-
farðann á, þá er ölkelduvatni
úðað yfír andlitið eða pappírs-
þurrka er vætt með vatninu og
henni síðan dúppað yfír allt and-
litið. Farðinn rennur ekki af
þessu heldur mun haldast leng-
ur en vanalega.
Floridamaski
Appelsínur róa húðina og
sumir trúa því að þær hjálpi til
við að draga úr hrukkumyndun-
um. Þær eiga að hafa góð áhrif á
að jafna þurra og normal húð.
Til að hreinsa húðina þá er app-
elsína afhýdd og hún síðan tætt í
mauk í blandara og blandið
haframjöli saman við. Nuddið á
vota húðina og leggið áherslu á
þá staði sem eru feitir eða húðin
gróf. Hreinsið vel af með volgu
vatni.
Við lágan hita er blandað sam-
an í potti 1 msk. sagógrjónum
og V2 bolla af ferskum appelsínu-
safa. Þar út í er hrært 2 msk. af
hunangi og „búðingurinn" lát-
inn malla þar til hann hefur
þykknað, hrært í af og til. Tek-
inn af hitanum og látinn kólna.
Appelsínumaukinu er smurt yfír
andlitið og hálsinn og látið
þorna í 20 mínútur og þá
hreinsað vel af.
64 VIKAN