Vikan - 10.03.1988, Blaðsíða 24
'Cf;;
Kirtill til að
dansa í,
fermast
Nýir umsjónarmenn íslenska listans
/
Ætlum að ná til
eldri áhorfenda
Fyrir stuttu tóku tvö eld-
hress ungmenni við umsjón
íslenska listans á Stöð 2. Það
eru þau Felix Bergsson og
Anna Þorláksdóttir.
Felix ætti varla að þurfa að
kynna fyrir yngri kynslóðinni,
en hann er söngvari Greifanna
til skamms tíma. Felix er tutt-
ugu og eins árs Reykvíkingur og
útskrifaðist úr Verslunarskóla ís-
lands í íyrra. Honum er það ekk-
ert framandi að koma fram fyrir
almenning því fyrir utan það að
hafa verið söngvari Greifanna
hefúr hann verið mjög mikið í
leiklist. Hann lék í sínu fyrsta út-
varpsleikriti ellefú ára gamall og
á næstu árum urðu hlutverkin
hans í útvarpi fjölmörg. Þá hefur
Felix leikið á fjölurn Þjóðleik-
hússins auk þess að hafa tekið
þátt í skólaleikritum og verið
einn af stofnendum unglinga-
leikhússins Veit mamma livað
ég vil?
Anna er ekki heldur neinn
nýgræðingur í fjölmiðlabransan-
um. Hún hefur verið með fasta
þætti á Bylgjunni frá upphafl, en
er flugfreyja að aðalstarfi og hef-
ur unnið hjá Flugleiðum frá
1982. Annars er Anna tuttugu
og níu ára gamall heimshorna-
flakkari og ævintýramanneskja.
Hún bjó á Bermuda í eitt og
hálft ár og hafði ofan af fyrir sér
með því að vinna í spilavíti.
Leiöinlegasti staðurinn sem hún
segist hafa komið til er Fiji-eyj-
ar, en það eina sem hægt var að
gera þar var að spila Trival Per-
suit á eftirmiðdaginn og bingó á
kvöldin.
Aðspurð sögðust þau ætla að
hressa uppá íslenska listann og
breyta algerlega útliti hans og
ímynd. “Helga og Pétur Steinn
unnu virkilega gott brautryðj-
endastarf, en nú er það okkar að
jiróa þáttinn áfram,“ sagði Felix.
Búast má við mun fleiri viðtöl-
um við tónlistarmenn en verið
hefúr og meiri áhersla verður
iögð á innlenda flytjendur. Þau
voru bæði hörð á því að gera
ætti þáttinn meira aðlaðandi fyr-
ir eldra fólk en það sem horfir á
hann að jafnaði.
Verkum skipta þau þannig
með sér að Felix er umsjónar-
maður þáttanna og sér um upp-
byggingu þeirra að miklu leyti,
en Anna verður kynnir með
honum. „Enda er ég bara kona“
klykkti Anna út með í lokin.
og gifta sig
í 6. tbl. Vikunnar á þessu ári
var sagf frá íslensku þjóðbún-
ingunum en í þeirri umljöll-
un féll niður meðfylgjandi
mynd og texti þannig að einn
buninginn vantaði alveg. Við
bætum hér úr og vonum að
þetta hafi ekki komið að sök.
Siguröur Guðmundsson málari
hannaði einnig léttari búning,
kirtil sem auðveldara átti að vera
að dansa í, sem þó var ekki vegna
höfuðbúnaðarins. Algengast er
að kirtillinn sé svartur eða hvítur
en hann gat einnig verið dökk-
grænn eða dökkblár. Vinsælt var
aö nota hvíta kirtilinn sem ferm-
ingar- eða brúöarkjól. Algengast
er að hann sé saumaður heill eða
tvískiptur. Konur sem áttu svart-
an skautbúning gátu þá notað efri
hlutann af kirtlinum með pilsi
skautbúningsins. Kirtlarnir vom
skreyttir á mismunandi hátt, al-
gengast er að skreyta hann með
útsaumi eftir munstri sem Sigurð-
ur teiknaði. Við kirtilinn er notað
stokkabelti, gjarnan með sprota
og ennisspöng.
L
24 VIKAN