Vikan - 10.03.1988, Blaðsíða 22
Þar sleikir
þú steikina
ásteini
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: M"ACNÚS HJÖRLEIFSSON
Inni er Ifflegt; skærir og
skemmtilegir litir, messingljós
og fallegir smáhlutir prýða
veggi, mikið af blómum. Fyrst
er komið á bar, stemningin þarna
minnir á veitingastað á útitorgi því
setið er við „gaflinn" á steikhús-
inu og glugginn í risinu opnast út
á „torgið“ en í risinu er bar. I
þessum hluta Café Óperu er lögð
áhersla á að skemmta gestum
með hijóðfæraslætti og söng, en
píanó er þarna á upphækkuðum
palli. Barþjónninn, Bjarni Óskars-
son, er margfaldur verðlaunahafi
í kokkteilkeppnum og er hann
höfundur þess fræga drykks
„bleiki fíliinn". Auk alls þessa ér
hann eigandi staðarins ásamt
konu sinni Hrafnhildi Ingimars-
dóttur.
Næst liggur leiðin inn á „steik-
húsið“, en þar eru borðin dúklögð
og gestir fá gott að borða. Sérrétt-
ur staðarins er steik sem gestirnir
elda sjálfir á heitum granítsteini
sem komið er með á borðið,
svokölluð „hot rock steak'*. Þessi
aðferð, að elda kjöt á heitum
steini, á rætur að rekja til Japan
en hefur verið þróuð þannig að
hún henti vestrænum veitinga-
húsum og hefur Café Ópera feng-
ið leyfi fyrir þessari aðferð. Hægt
er að velja um nauta-, lamba- eða
svínakjöt af mýkstu og bestu gerð
og krydda eftir smekk og steikja
síðan á þann hátt sem hverjum
og einum hentar. Með þessu er
hægt að fá sér þrjár tegundir af
kryddsmjöri, borða bakaða kart-
öflu og ferskt salat.
Bjarni leggur áherslu á að Café
Ópera sé nýr staður þó hann sé í
Inni í sal er stórt innigrill og glampar á koparinn. Ut um gluggana er
hægt ab fylgjast meb lífinu á rúntinum.
22 VIKAN