Vikan


Vikan - 10.03.1988, Blaðsíða 12

Vikan - 10.03.1988, Blaðsíða 12
FORSIÐAN Deepglow Amethyst no. 72 og Dusty Pink Frost no. 02. Um hárgreiðsluna sá Guð- finna Jóhannsdóttir og þar sem við fréttum að hún væri einn þátttakendanna í landsliði ís- lands í heimsmeistarakeppninni í hárgreiðslu þá fannst okkur ekki úr vegi að kynna hana nánar. TEXTI: BRYNDIS KRISTJANSDOTTIR MYND: PÁLL KJARTANSSON Myndina af stúlkunni sem prýðir forsíðuna að þessu sinni tók ljósmyndarinn okkar, Páll Kjartansson. Stúlkan heitir Kristjana Kristjánsdóttir og er hún verslunarstjóri í verslun- inni Liljunni og er reyndar í fatnaði þaðan. Skartgripir eru frá versluninni Messing, en um förðunina sá Ragnheiður Hanson og notaði Revlon snyrtivörur frá íslensk- ameríska: Make-up, E 27 no. 01; kinnalitur, Wine witli every- thing; varalitur, Strawberrry blond no. 176; augnskuggarnir heita Custom Eyes, en þá er keypt falleg askja með hólfum fyrir 2 eða 3 liti og hver og einn velur sína óskaiiti úr 15 litum — og skiptir um þegar liturinn er búinn eða kominn úr tísku. Ragnheiður málaði Kristjönu með litunum Wisteria no. 01, Stefni á titilinn á 10 ára afmœlinu Guðfinna Jóhannsdóttir greiðir hár forsíðustúlkunnar okkar, Kristjönu Kristjánsdóttur. - segir Guðfinna Jóhannsdóttir hárgreiðslumeistari Guðfinna er eigandi hár- greiðslustofunnar Ýr sem verð- ur 10 ára á þessu ári, en Guð- finna sagðist þó ekki vera viss um hvort hún gerði eitthvað sérstakt til að halda upp á af- mælið því það ber upp á sama tíma og heimsmeistarakeppnin fer frarn, en það verður í okt- óber næstkomandi og verður í Dusseldorf í Þýskalandi. Ásamt henni taka þátt í keppninni þær Solveig Leifsdóttir og Dóróthea Magnúsdóttir og þær keppa all- ar saman sem lið Islands. Rétt til þátttöku öðlast keppendur með því að safna stigum sem þeir fá fýrir árangur sinn í öðrum keppnum, s.s. íslandsmeistara- kepnninni, Evrópukeppninni og Norðurlandakeppninni. Guðfinna hefur á síðustu 4 árum tekið þátt í öllum þessum keppnum og þegar keppt var í blæstri, sem er ein keppnis- greinin í Évrópukeppninni í Bú- dapest þá varð hún í 6. sæti en keppendur voru alls 92. íslands- liðið hefur þegar hafið undir- búning og síðast í febrúar fengu þær Bandaríkjamanninn Gary Bray hingað til lands til að þjálfa þær og halda námskeið fýrir fé- lagsmenn, en Bray hefur þjálfað bandaríska liðið og þeir urðu heimsmeistarar árið 1984. Guðfinna hefur starfað við hárgreiðslu síðan 1964 þegar hún hóf nám og segist vera hár- greiðslukona af lífi og sál — og að keppnir séu hennar áhuga- mál því það sé tvennt ólíkt að greiða á stofú eða í keppni. Keppnir ganga út á það að sýna hvað þú getur gert vel á ýmsum sviðum hársnyrtingar á sem skemmstum tíma og árangurinn verður að vera fúllkominn. Því sagðist Guðfinna eiginlega ekki hafa tíma til að hugsa um neitt annað fram að keppni og sagðist einna helst vonast til að geta haldið upp á 10 ára afmæli stofú sinnar með því að leggja sitt að mörkum til að íslandsliðið kæmi heim með titilinn. 12 VIKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.