Vikan - 10.03.1988, Blaðsíða 62
Björg hjá Pyramid ásamt sýningarstúlkum og kynni Nexusvaranna frá Englandi, Dorothy Lang, sem fræddi okkur á því að ísland væri eina landið
utan Bandaríkjanna þar sem Nexusvörur væru auglýstar í sjónvarpi.
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: PÁLL KJARTANSSON
Hársnyrtivörur sem notaðar
eru á hársnyrtistofum eru yfir-
leitt ekki fáanlegar annars
staðar, enda keppast hársnyrti-
vöruframleiðendur um að koma
með á markaðinn sífellt betri
vöru í von um að þeirra vara
hljóti náð fyrir augum kröfu-
harðs fagfólks í hársnyrtiiðnað-
inum.
Nýlega var hársnyrtifólki hér
á landi kynnt nýtt merki í hár-
snyrtivörum sem njóta mikillar
hylli meðal kollega þeirra í
Bandaríkjunum. Þessar vörur
NEXUS
Nýjar hórsnyrfivörur fyrír fagfólk
heita Nexus sem er grískt orð
sem merkir „að sameina“. Vör-
urnar eru framieiddar af Jheri
Redding en hársnyrtivörur með
því nafni eru þekktar og viður-
kenndar víða um heim og þar á
meðal íslandi. Framleiðsla Nex-
us varanna fer fram í f)ölsk>Tdu-
fýrirtæki Reddings þar sem
margir meðlimir fjölskyldunnar
starfa saman að því að framleiða
hársnyrtivörur sem fagólk á að
geta treyst algjörlega á og veit
að engir selja aðrir en fagfólk.
Hjá Nexus hefur þeim tekist
að blanda saman á nýjan hátt
ávöxtum, jurtum o.fl. og útkom-
an orðið fjölliða efhi sem er það
langbesta sem náðst hefur í
framleiðslu fyrir hár og skinn,
segir í kynningarbæklingi.
Flestir sem kaupa sér sjampó
úti í búð velja sjampó sem ann-
að hvort er ódýrt eða lyktar vel,
en á hársnyrtistofum getur úr-
valið verið ótrúlegt. í Nexus
vörunum er hægt að fá sjampó
sem inniheldur fitusýrur sem
stuðla að rakajafhvægi, efhi sem
koma í veg fyrir klofna hárenda,
auka togstyrk hársins, vernda
hárið fýrir útfjólubláum geislum
sólar og svo mætti lengi telja. Á
vörukynningu Nexus var lögð
nokkur áhersla á litasjampó sem
nota má í hverjum hárþvotti til
að skýra hárlitinn, eða breyta
honum, og auka um leið gljáa
hársins.
Einnig sagði kynnirinn, Dor-
othy E. Lang sem hingað kom
frá Englandi, frá efni sem hún
taldi besta hársnyrtiefnið sem
hún hefði kynnst. Þetta er
„Emergencée", sem er efhi sem
getur bjargað hári sem virkar al-
gjörlega dautt og lífvana, vegna
ofhotkunar á ýmsum kemískum
efhum. Að meðferð lokinni á
jafnvel litað og permanentliðað
hár að ná því að vera gljáandi og
mjúkt. Innflytjandi Nexus til ís-
lands er Pyramid, Auðbrekku 21
í Kópavogi.
Hár sýningarstúlknanna eftir meðferð með Nexus hársnyrtivörum. Hér
kannar fagfólk áferð og mýkt hársins eftir að það hefur verið þvegið
með litasjampói sem skýrir hárlitinn og gefur hárinu mikinn gljáa.
Fagfólkinu nægir ekki að horfa á sýningarstúlkurnar. Hér er hár sem
hefur verið permanentliðað með Nexus vörum grandskoðað.
62 VIKAN