Vikan - 10.03.1988, Blaðsíða 30
Sveitabrauð
Þessa uppskrift fékk ég hjá
móður minni en líklega kemur
hún upphaflega frá Helgu Sig-
urðardóttur. Þetta er mjög ein-
föld uppskrift og er með venju-
legu lyftidufti. Brauðið líkist
„sveitabrauði" sem fæst í baka-
ríum og ég mæli með að baka 4
brauð í einu.
kr.
500 gr hveiti 11.75
6 tsk. lyftiduft 2.00
1 tsk. salt 0.50
1 msk. sykur 0.50
4 dl mjólk(má vera súr) 18.80
Krónur 33.55
Rafmagn 11.00
Alls kr. 44.55
Ekki er verra að setja hveitiklíð
eða heilhveiti með og minnka
þá hveiti að sama skapi. Blanda
saman þurrefnum og væta í með
mjólkinni. Hnoða vel og láta á
smurða plötu eða í form. Brauð-
ið má smyrja að ofan með eggi
eða mjólk og skera í það. Baka
neðst í ofni við 200°C í 4 5—60
mínútur.
Franskbrauð
Uppskrift sem var aftan á Finax
poka.
kr.
1/4 1 vatn 0
40 gr smjörlíki 5.20
2 tsk. salt 0.50
2 tsk. sykur (hunang) 0.50
1 kg hveiti 23.50
50 gr ger
(4 tsk. þurrger) 5.00
Krónur: 34.70
Rafmagn 11.16
Alls kr. 45.86
Þetta eru tvö brauð þannig að
hvert brauð kostar kr. 22.93!
Formbrauð
Uppskriftir úr bókinni Matbrauð
af bestu gerð
Hvítt formbrauð kr.
50 gr smjör eða smjörlíki 6.70
5 dl mjólk eða vatn 23.95
50 gr ger (3-4 tsk. þurrg.)
5.00
2 tsk. sykur 0.50
1-2 tsk. salt 0.50
um 800 gr hveiti 18.80
kúmen á hnífsoddi,
ef vill
Krónur: 55.45
Rafmagn 11.00
Alls kr. 66.45
Þetta er verð á tveim brauðum
þannig að stykkið kostar kr.
33.22. Ef notað er vatn kostar
brauðið 21.25.
Brauðið er bakað við 200°C í 40
mínútur, en rétt áður en það er
tekið út úr ofninum þá er það
penslað með vatni.
Jóbannesarbrauð
(Matbrauð af bestu gerð)
Þetta brauð er þétt í sér og
fremur þungt, en bragðgott og
afar hollt. Grahamsmjöl er ann-
að nafn á heilhveiti. Deigið er
hrært saman þar til það hangir
sæmilega saman. Þá er það sett
neðst í kaldan ofn og bakað við
200°C í 1 klst.
25 gr ger (2 tsk. þurrger)
5 dl vatn
1/2 msk salt
2 1/2 dl rúgmjöl
6 dl hveiti
2 1/2 dl grahamsmjöl
1 1/2 dl hveitiklíð
Hafirabrauð
(Matbrauð af bestu gerð)
Þetta eru 20 stk smábrauð,
alveg frábær.
6 dl mjólk
3 dl hafragrjón
50 gr ger ( 3 tsk þurrger)
1 dl olía
1—2 msk hunang
2 tsk. salt
1 dl hveitiklíð
12 dl hveiti.
Hellið helmingnum af mjólkinni
yfir hafragrjónin og látið standa
í 30 mín. a.m.k. Setjið gerið <
blönduna. Velgið olíuna og af-
ganginn af mjólkinni í ca 37°C
og hellið út í. Hunang, salt,
hveitiklíð og megnið af hveitinu
hrært saman við. Látið deigið
hefast í um 30 mín. Setjið deigið
á borð og hnoðið afganginum at
hveitinu saman við. Skiptið
deiginu í 20 hluta og rúllið úf
þeim bollur. Fletið úr þeim kök-
ur ca 10 cm í þvermál. Leggið
þær á smurða plötu og látið þæf
hefast. Bakið í 225 °C heiturf
ofni um 10—12 mín. Takið úf
ofninum og borðið. Ummmm.
_____________________________^
30 VIKAN