Vikan - 10.03.1988, Blaðsíða 34
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON
T’ Bryndis Kristjánsdóttir, annar ritstjóra Vikunnar, skoðar hér
verðlaunabílinn í afmælisgetraun Vikunnar, spegilgljáandi
Peugeot 205 árgerð 1988 þar sem hann stendur til sýnis hjá Jöfri,
sem hefur umboð fyrir þessa vönduðu frönsku bifreiðategund.
ÞU GÆTlR EIGNAST
ÞESSA BIFREIÐ
Flott skal það vera. í tilefni
þess að VIKAN er fimmtíu
ára á þessu ári efnum við til
afmælisgetraunar þar sem
vinningurinn er hinn vand-
aði franski smábíll Peugeot
205, sem kostar liðlega 400
þúsund krónur. Hér er um
áskrifendagetraun að ræða
og þú getur verið með ef þú
útfyllir áskriftarbeiðnina
hér til hliðar og krossar við
réttan reit þar sem spurt er
hvaða ár VIKAN hóf göngu
sína. Annað var það nú
ekki. Dregið verður úr rétt-
um lausnum í maí og hver
veit nema þú eignist þá
glænýjan bíl!
Vart er hægt aö finna
hentugri bíl til aö senda
eiginmanninn á útí mjólk-
urbúö eöa eftir krökkunum
í skólann. Peugeot 205
meö mjúku frönsku línurn-
ar er bæöi lipur og snögg-
ur og eldfljótur í innanbæj-
arsnattinu. Línurnar hafa
falliö kvenþjóöinni svo
mjög í geö aö erlendis hef-
ur Peugeot 205 veriö kall-
aður konubíll aldarinnar.
Laglegt útlit og lipurö bíls-
ins hafa fært honum lof um
víöa veröld.
Meö tvær milljónir les-
enda í fararbroddi kaus
hiö virta v-þýska tímarit
Auto Motor und Sport Pe-
ugeot 205 bíl ársins í fyrra.
Hönnun, smekkur, frá-
gangur og aksturseigin-
leikar þóttu meö afbrigðum
góöir. Sá heppni í áskrif-
endagetrauninni á því von
á góöu. Peugeot 205 XL,
fagurrauður og gljáandi,
bíöur bíllinn eftir eiganda.
Verölaunabíllinn er
þriggja dyra, meö bjart og
rúmgott farþegarými,
rýmra en í flestum smábíl-
um. Stórir gluggar veita
gott útsýni til allra átta og
góðir speglar tryggja aö
hægt sé aö fylgjast vel
meö umferðinni fyrir aftan.
Sætin eru meö þægilegu
áklæöi, sem auövelt er aö
þrífa, ef börnin missa t.d.
niður ís eöa brölta um á
skítugum stígvélum.
Það verður enginn
þreyttur á stýri eöa gír-
skiptingu, sem eru hvoru
tveggja í senn létt og
nákvæm. Bíllinn er fjög-
urra gíra, með 50 hestafla
vél, sem er meira en nóg í
innanbæjaraksturinn og
skilar bílnum líka duglega
á þjóðvegunum. Þeir sem
huga aö ferðalögum á
Peugeot 205, geta notað
farangusrýmið, sem er
216 lítrar aö rúmmáli. Þar
er nóg pláss fyrir
innkaupapokana. Svo er
lítil bensíneyösla einn
stærsti kosturinn, innan-
bæjar eyöir bíllinn tæpum
sex lítrum á hverja hundr-
aö kílómetra. Er hægt aö
hugsa sér betri vinning?
■ ef þú getur
svarað laufléttri
spurningu um
leið og þú fyllir
út óskriftar-
seðilinn.
■ Um leið og
þú gerist
áskrifandi að
vönduðu blaði
freistar þú
gœfunnar.
■ Þú sparar
verulega með
áskrift - og
gœtir jafnframt
eignast bíl
að verðmœti
kr. 400.000.
34 VIKAN