Vikan


Vikan - 10.03.1988, Page 14

Vikan - 10.03.1988, Page 14
Ég lifi fyrir bömin mín núna Bjarni Dagur Jónsson í opinskóu viðtali Hann kemur að borðinu, fer úr jakkanum og leggur hann frá sér á tóman stól, heilsar mér með handa- bandi og sest svo andspæn- is mér, allt á innan við timm sekúndum. Auðséð er á öllu að hér er á ferðinni maður sem er vanur því að skipuleggja tíma sinn og vill ekki sóa honum til einskis. Þó er yfir honum eitthvert afslappað andrúmsloft sem maður fremur skynjar en sér. Eg er jafnvel ekki frá því að það komist betur til skila í gegnum útvarp þegar snöggar hreyfingar sjást ekki. „Ég hélt þú værir stærri“ Daginn áður þegar ég hafði hringt í Bjarna Dag til að mæla mér mót við hann kom í Ijós að hann hefði yfirið nóg að gera þennan laugardag. hað átti að vera fundur á Stjörnunni auk þess sem hann yrði í tveggja tíma beinni útsendingu á milli flmm og sjö. Á endanum sætt- umst við á það að hittast yflr hádegisverði til að hann gæti notað tímann sem best. Fyrir valinu varð Garðskálinn á Hótel Sögu og eftir að hafa pantað snýr hann sér að mér og lýsir sig reiðubúinn að byrja. Þar sem ég varð nokkuð hissa þegar ég sá hann fyrst eftir að hafa einungis heyrt hljómmikla röddina í útvarpinu og hafði ímyndað mér ffernur stóran, þrekinn mann í köflóttri skyrtu sem félli að sveitatónlistinni. En þegar ég sat svo andspænis meðal manni í fallegri peysu með þekktu merki; lét ég vaða „ég hélt þú værir mun stærri“. Hann glottir við tönn um leið 14 VIKAN TEXTI: ADOLF ERLINGSSON og hann kveikir sér í Prince sígarettu; „Veistu það, allir sem hitta mig segja að þeir hafl hald- ið mig allan miklu stærri og vörpulegri. Sérstaklega er þetta áberandi hjá krökkum sem koma niður á Stjörnu í starfs- kynningu. Ég held líka að marg- ar konur verði fyrir vonbrigðum þegar þær sjá mig, vegna þess að ég lít ekki út eins og Magnús Bjarnfreðsson, eða Jón Páll.“ Glottinu bregður fyrir aftur og svo heldur hann áfram. „Annars er auðvitað ekkert óeðlilegt að fólk myndi sér einhverja skoðun um mann. Væri ég klókur léti ég alls ekki taka af mér myndir. LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON Skemmtilegast væri að láta það vera vel varðveitt viðskipta- leyndarmál hvernig ég lít út.“ Það hefur oft komið fyrir, sér- staklega þó fyrst eftir að ég byrj- aði í útvarpinu, að fólk hringir og spyr mig í hvaða stjörnu- merki ég sé, um háralit, fæðing- ardag, aldur og fleira sem það ætlar svo að nota til þess eins að átta sig á því, hverskonar mann- gerð ég er.“ Aldurinn, já, svona til að taka af allan vafa spyr ég um hann. „Ég er þrjátíu og sjö ára.“ Þegar við erum búnir að fá veitingarnar á borðið og byrjað- ir að gæða okkur á þeim spyr ég hann hvernig tilflnning það sé fyrir hann að vera hinu rnegin við borðið, þ.e. vera í hlutverki þess sem svarar í stað spyrilsins eins og hann er vanur. „Mér flnnst þetta allt í Iagi,“ svarar hann stutt og laggott, gefur ekki meira út á það. Ég held þó áffam á sömu braut. — Nú ert þú sér- lega laginn við að fá fólk til að opna sig fyrir þér í útvarpi. Ert þú sjálfúr opinn? Fólk neyðist til að vera hreinskilið ,Ja, ég held að ég sé mjög op- inn og hreinskilin og hef oft mikil áhrif á fólk sem ég kynnist. Það hefur staðið sig að því að geta ekki átt við mig samskipti án þess að vera jafli opið við mig og ég er við það. Fólk sem hefur unnið með mér segir mér ffá því að það hafl orðið að taka vissum breytingum í tjáskiptum því ég hafl með minni opnu ffamkomu hállþartinn þvingað það til þess. Fólk fer að segja meira nákvæmlega það sem það meinar, sérstaklega hvernig því líður í það og það skiptið. Mörg- um finnst það oft skrýtið fýrst í stað, hvað ég er ófeiminn að spyrja það um líðan þess og þess háttar, en þegar það kynn- ist mér fer það að spyrja þess sama á móti. Mér leikur forvitni á uppruna hans og spyr hvort hann sé inn- fæddur Reykvíkingur. „Nei, ég er fæddur norður á Sauðárkróki, í Bjarnabænum svokaliaða, það er lítið hús sem forfaðir minn byggði, langafl minn og alnafni, Bjarni Jónsson. Pabbi og mamma, Jón Dagsson og Ingi- björg Óskarsdóttir voru sveita- fólk um tíma. Þau bjuggu á Bræðrá í Siéttuhlíð þar sem pabbi var bóndi, en þangað fluttu þau frá Siglufirði. Mamma fór svo til móður sinnar inn á Sauðárkrók rétt fyrir hvítasunnu 1950 tii að eiga mig og þar fæddist ég í húsi langafa míns. Skömmu seinna fluttu foreldrar mínir svo inn á Sauðárkrók og þar er ég uppalinn. Mikið hjá afa mínum og náttúrlega hjá pabba og mömmu.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.