Vikan


Vikan - 10.03.1988, Síða 23

Vikan - 10.03.1988, Síða 23
Vikan kynnir Café Óperu, athyglisverðan veitingastað við Lœkjargötu. Pantaðu þér „Hot Rock Steak" og þú fœrð heitan stein á borðið til að steikja kjötið á. sama húsnæði og veitingastaður var fyrir áður og hét líku nafni, veitingahúsið Ópera. Innrétting- um og útliti hefur verið gjörbreytt og eins og fyrr segir eru þar margir skemmtilegir hlutir innan- dyra, sem Bjarni valdi og keypti í Hollandi. Einnig vill Bjarni leggja áherslu á að Café Ópera er bar og steikhús, þar sem hægt er að fá ódýra og fljótlega rétti í hádeg- inu, fjölbreyttan mat á kvöldin og lögð nokkur áhersla á eftirrétti, en einnig á að vera hægt að panta sér að borða svo að segja hvað sem er og það verður matreitt svo framarlega sem hráefnið er til á staðnum. Þannig að langi þig í soðna ýsu, þá færðu soðna ýsu þó hana sé ekki að finna á mat- seðlinum. Þeir sem ekki ætla að borða geta sest á barinn og fengið sér drykk og og hlustað á þá sem skemmta það kvöldið. Ýmsir þekktir tónlistarmenn munu skemmta gestum Café Óperu á næstunni og má þar nefna Eyjólf Kristjánsson, Tríó Andra Bach- man og píanóleikarann Stefán Petersen. Uppi í risi er annar bar, mjög hlýlegur og fallegur. Þar er einnig lítill salur sem leigður er út til einkasamkvæma. „Þetta er staður með létt- rómantískum svip, þar sem starfsfólkið er sérlega skapgott, kokkarnir á rölti um matsalinn og spjalla við gestina," segir Bjarni. Myndirnar hér á síðunum segja einnig töluvert um staðinn og við sem prófuðum „steinasteik" erum öll sammála um að óhætt sé að mæla með henni - auk þess er mjög gaman að steikja á steinun- um og af því að það tekur nokkra stund þá njóta menn þess að sitja yfir matnum í góðan tíma í stað þess að gleypa hann í sig í alltof miklum flýti eins og alltof oft vill verða. bjarni Oskarsson, eigandi Café Operu, við matseldina. Við hlið ham stendur yfirkokkur staðarins Eiríkur Friðriksson, en auk þeirra elda. Oddsteinn Gíslason matinn og tveir lærlingar eru þar í námi. Þjónarni, eru tveir og veitingastjóri er Helga M. Sveinsdóttir. VIKAN 23

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.