Vikan


Vikan - 10.03.1988, Side 45

Vikan - 10.03.1988, Side 45
hafi fengið sitthvað „að láni“ hjá Greene, en það er vafasamt. Samt skrifaði nafnlaus höfundur skömmu eftir fráfall þessa Greene: „Greene var sá sem lagði þann grunn sem við allir höfum síðan byggt á.“ Engin hermikráka Árlega eru leikrit eftir WS sett á svið í fjölmörgum leikhúsum samtíðarinnar. Hver leikstjórinn og leikarinn á fætur öðrunt velt- ir vöngum yfir hinu löngu dauða skáldi, skáldi sem þó lifir áfram í verkum sínum og spyr fólk aftur og aftur þýðingarmik- illa spurninga um lífið og tilver- una. í Englandi setja menn Shak- espeare-leikrit æ oftar á svið. Og í öðrum löndum finnst leikhús- fólki að það verði að kljást við sum verka meistarans frá Strat- ford hvað eftir annað. Þaó er hægt að leika Hamlet á svo marga vegu. Og á næstunni mun íslendingum gefast kostur á að sjá það frægasta leikrit WS í leik- stjórn Kjartans Ragnarssonar í Iðnó. Fólk er þegar farið að pískra um nýstárleg tök leik- stjórans, nýja túlkun Þrastar Leós Gunnarssonar á Danaprinsi og að gamla leikliúsið við Tjörn- ina sýni á sér alveg nýja hlið, hvernig sem það nú er hægt. Við spurðum Kjartan Ragn- arsson hvort hann hefði kannski uppgötvað einhvern nýjan sann- leik í Hamlet, eitthvað sem eng- inn fræðimaður hefði hingað til rekist á, eitthvað sem hann yrði að fá að segja okkur, löndum sínum? „Nei,“ sagði Kjartan. Og neit- aði að útskýra sína uppfærslu, sagði bara að hann setti upp Hamlet vegna þess að sig hefði langað til að setja á svið gott leikrit. „Þið verðið bara að bíða eftir sýningunni," sagði KR. — Er Hamlet farsi í þínurn meðförum? „Það verður trúlega hægt að hlæja." WS hinn fjölhæfi Shakespeare hlýtur að hafa skemmt sér vel á meðan hann tórði. Maðurinn hefur svo aug- ljóslega haft gaman af viðburð- um sinnar tíðar, svo augljóslega notið þess að tala, að skrifa, að velta fyrir sér merkingu og upp- runa orða- tilsvara og íhuga til- finningar og langanir manna; hann hefur verið fúllur af lífs- nautn, þessi WS, í honum hafa sameinast með óvenjulegum hætti fræðimaður og skáld, leik- ari og bísnissmaður (því á endanum varð hann efnaður vel og gat búið vel að sínum), gleði- maður og agaður verkmaður. Hvað um það — það er tilhlökk- unarefni að eiga von á að sjá öndvegisverk meistarans koma á Iðnófjalirnar með vorinu. GG. SKEGGSNYRTIR Höfum til sölu lítið tæki frá Panasonic sem einfaldar til muna hirðingu skeggsins, hvort sem það er yfirvaraskegg eða alskegg. Gengur fyrir rafhlöðum og kostar kr. 1.450. JAPISS BRAUTARHOLTI 2, S: 27133 OG KRINGLUNNI, S: 688199 VIKAN 45

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.