Vikan


Vikan - 10.03.1988, Side 63

Vikan - 10.03.1988, Side 63
Deilt um dauðcm kött Elsa varð auðvitað glöð þó kötturinn væri dauður. Líklega hefur blessaður kötturinn verið orðinn aukaatriði í þessu heift- arlega máli. „Þetta felur í sér að við höfum rétt til að taka ketti frá fóstur- foreldrum sem fara illa með þá,“ sagði hin sigurglaða Elsa Wigh. Hún hafði getað bætt við að það væri sama hvort þeir væru lif- andi eða dauðir. Það er sigurinn sem er að sjálfsögðu fyrir öllu. Mikið lifandis skelfmg hlýtur þessi Elsa að vera hjartahlý kona. Hún sannar að mann- gæska kemur fram í ýmsum myndum. En myndi hún gera þetta ef dauður maður ætti í hlut? Og einnig vaknar sú spurn- ing hvort hún kærði sig um að skjóta skjólshúsi yfir mannlegan flæking þó hún skjóti skjólshúsi yfir flækingskött og gefi honum að éta? Líklega ekki enda éta mannflækingar miklu meira en kettirnir. Og svo datt mér í hug með trega sem litlum fugli hvort nokkrum dytti í hug að fara í forræðismál út af mér dauðum. - Páfi Flestar fféttir fjölmiðlanna eru dapurlegar, sumar gera jafh- vel litla páfa harmi slegna. En það kemur fyrir að goggurinn er rekinn í skemmtilegar fréttir sem gera glatt í geði. Og það er athyglisvert að hlægilegustu fréttir hafa orðið til úr fúlustu alvöru. Þannig varð það til dæmis þegar lesin var fréttin af því að Hæstiréttur Svíþjóðar dæmdi dýraverndunarsamtökum þar í landi forræði yfir dauðum fress- ketti. Þetta hljómar kúnstuglega en á sér þó skýringar. í hugann kemur að fyrir nokkrum árum kom út bóka- flokkur vestur í Ameríku sem varð geysilega vinsæll en hann bar heitið: „Believe it or not“. Gæti í ónákvæmri þýðingu heit- ið: „Ótrúlegt en satt“. { þessum bókum er getið ýmissa atvika og staðreynda sem koma flestum til að brosa eða allavega að verða hissa. Saga dauða ffess- kattarins ætti þarna heima. En þetta með dauða köttinn í Svíþjóð átti sér forsögu og harð- vítugan aðdraganda og er í raun- inni grafalvarlegt mál. En það eru einmitt svoleiðis mál sem eru hvað grátbroslegust. Með þessum dómi lýkur lang- vinnum og bitrum málaferlum milli dýraverndunarsamtakanna undir forystu, vafalaust góðrar konu, Elsu Wigh að nafhi, og fjölskyldunnar sem hafði tekið að sér köttinn á meðan hann var á lífi. Wigh hafði árið 1985 fúndið köttinn í Gautaborg og skotið yfir hann skjólshúsi þar til hún gat útvegað honum nýja fóstur- foreldra. Kötturinn sem kallaður var Astor strauk hins vegar ffá fóst- urforeldrunum, en Wigh fann hann aftur effir margra vikna leit. En nú brá svo við að hún neitaði að afhenda fósturfor- eldrunum köttinn á ný og brá fyrir sig klásúlu í forræðissamn- ingnum þar sem kveðið er á um illa meðferð. Á eftir fylgdi svo hið mikla málastapp. En svo lét Astor lífið í fyrra þegar til slagsmála kom á fóstur- heimilinu eftir að fjölskyldan hafði tapað forræðismálinu í undirrétti. Hæstiréttur staðfesti undirréttardóminn þó köttur- inn væri þegar dauður. f dóms- orðinu sagði að málið hefði ver- ið tekið fyrir í því skyni að skýra viðkomandi lög. Strauk fress- kötturinn Astor frö fósturforeldr- um sínum vegna illrar meðferðar eða... ? Var fress- kötturinn bara auka- atriði í þess- um heiffúð- legu mdla- ferlum... ? VIKAN 63

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.