Vikan - 04.05.1991, Síða 63
Synthia Sikes varð að sleppa takinu á Corbin Bernsen þegar hann
féll fyrir bresku leikkonunni Amöndu Pays, sem sést með honum á
vinstri siðu opnunnar.
langt og leikarinn José Ferrer
sem fékk óskarsverðlaun fyrir
aðalhlutverkið í myndinni Cyr-
ano de Bergerac árið 1950.
Síðan hafa margar myndir
verið gerðar um þennan Berg-
erac, meðal annars með
Steve Martin og Gerard Dep-
artieu. José Ferrer varð sem
sé virtur leikari í mörgum kvik-
myndum og síðar leikstjóri. Nú
er röðin hins vegar komin að
Jimmy Smits. Hann var fyrsti
maðurinn í ættinni sinni sem
fór í háskóla. Þar lagði hann
stund á fagrar listir. Síðan fór
hann að leika, meðal annars
Shakespeare, en foreldrar
hans voru lítt hrifnir.
„Hvaða gagn er í að leika í
leikritum þar sem fólk talar
skringilega?" sögðu þeir. „Þú
ættir frekar að reyna að fá
hlutverk í sjónvarpsauglýs-
ingu.“ En þolinmæði Smits
borgaði sig. Hann fékk hlut-
verk í þáttunum Miami Vice
sem félagi Dons Johnson og
er nú fastur leikari í Lagakrók-
um. Með því hlutverki vill hann
sýna fram á að Púrtóríkanar
eru ekki bara villingar og dóp-
istar. Hann kemur vel fyrir og
fær mikið af aðdáendabréfum
en samt er hann ekki alveg
búinn að venja sig við lifnaðar-
hætti sjónvarpsstjarna. Hann
býr að vísu f lúxusvillu í Los
Angeles en virðist ekki alveg
hafa náð tökum á því.
„Endurskoðandinn minn er
alltaf að segja mér að ég þurfi
að kaupa húsgögn f íbúðina,"
segir hann. „Kannski geri ég
það einhvern tíma en ég
sakna kunningja minna í New
York." Annars ætti hann að
geta keypt sér eitthvað af hús-
gögnum, maðurinn. Hann fær
sem svarar hálfri fimmtu millj-
ón króna fyrir hvern þátt sem
hann leikur í.
f LEIT AÐ
PERSÓNULEIKA
Af og til í kvikmyndasögunni
hafa komið fram menn sem
hafa brugðið sér í allra kvik-
inda líki, svo sem Lon Chaney
sem kallaður var maðurinn
með þúsund andlitin og Char-
les Laughton sem fór jafnlétt
með að leika harðsvíraðan
löggujaxl og rolulegan músík-
ant, Hinrik konung áttunda,
Rembrandt eða hvað sem var.
Sir Alec Guinness hefur líka
brugðið sér í ólíklegustu hlut-
verk en hann hefur verið kall-
aður andlitslausi maðurinn
vegna þess að hann getur
mótað þetta sviplausa andlit
sitt að vild.
Þeim leikurum sem sérhæfa
sig í að breyta sér verulega
hefur fækkað í kvikmyndum
og sjónvarpi. Einn slíkur hefur
þó vakið á sér athygli í Banda-
ríkjunum nýlega; Larry Drake
sem leikur þroskahefta gæða-
blóðið Benny í Lagakrókum.
Hann er ekki allur þar sem
hann er séður. Hann segist
ekkert vera líkur persónunni
sem hann leikur en hann er
samt mun ólíkari sjálfum sér í
Frh. á næstu opnu