Vikan - 02.04.1992, Page 18
◄ ísfirðingarnir Pálína Jensdóttir og
maður hennar, Þorkell Jóhannesson, höfðu
heppnina með sér siðast þegar Vikan og
Flugleiðir brugðu á leik. Þau hjónin þáðu
helgarferð með Flugleiðum til Reykjavíkur,
glstu á Hótel Loftleiðum í góðu yfirlæti og
fengu til umráða nýja Toyota bifreið frá
Bílaleigu Flugleiða. Nú er önnur borgarrispa
í boði fyrir heppinn lesanda af landsbyggð-
inni - og Akureyrarhelgi fyrir einhvern af
suðvesturhorni landsins ...
LJÓSM.: ÞORSTEINN ERLINGSSON
LESENDAGETRAUN VIKUNNAR OG FLUGLEIÐA
|
HELGARFERÐ FYRIR TVOINNANLANDS
FLUG, HÓTEL, BÍLL OG KVÖLDVERÐUR
Nú býöur Vikan les-
endum sínum að
taka þátt í léttum leik,
auk þess sem þeir eru beönir
um aö vera til ráðgjafar um
það hvernig Vikan á að vera
að efni til. Á bakhlið seðilsins
er nefnilega að finna skoð-
anakönnun þar sem lesendur
eru beðnir um að merkja við
þá efnisþætti sem þeir vilja
helst hafa í blaðinu.
Leikurinn, sem um er að
ræða, er fólginn í því að les-
endum býðst að glíma við
lauflétta þraut. Annars vegar
er lögð fram spurning sem
lesendum á landsbyggðinni er
ætlað að svara og síðan önn-
ur sem lesendur af Reykjavík-
ursvæðinu glíma við. Fyrir
fyrrtalda hópinn er í boði helg-
arferð fyrir tvo til Reykjavíkur
en fyrir hinn hópinn, Reykvík-
inga og nágranna þeirra,
sams konar ferð til Akureyrar
og hefur helgin 23.-24. maí
orðið fyrir valinu.
Ef lesendur svara meðfylgj-
andi spurningum rétt, fylla út
skoðanakönnunina á bakhlið
seðilsins og setja hann í póst
fyrir 16. apríl gætu þeir lent í
lukkupottinum.
Hinn heppni af landsbyggð-
inni flýgur til höfuðborgarinnar
við annan mann með einni af
nýju Fokker 50 vélum Flug-
leiða, gistir á Hótel Loftleiðum
eða Hótel Esju þar sem boðið
verður upp á kvöldverð. Að
auki verður bílaleigubíll til
reiðu meðan á Reykjavíkur-
dvölinni stendur, bíll frá Flug-
leiðum-Hertz.
Heppinn lesandi af höfuð-
borgarsvæðinu á í vændum
helgarferð til Akureyrar fyrir
tvo þar sem gist verður á
Hótel Norðurlandi, snæddur
kvöldverður á einu af betri
veitingahúsum bæjarins, auk
þess sem bílaleigubíll verður
til ráðstöfunar á meðan staldr-
að er við nyrðra. En til þess að
eiga möguleika eru lesendur
á suðvesturhorninu beðnir um
að svara laufléttri spurningu.
Eins og fyrr segir hefur verið
ákveðið hvaða helgi verð-
launaferðarinnar skuli notið.
Geti vinningshafi ekki komist
viðkomandi helgi eða þá
næstu á eftir drögum við að
nýju úr réttum lausnum og gef-
um öðrum kost á góðri helgar-
rispu.
Það er ekki eftir neinu að
bíða; upp með pennann og
svaraðu spurningunum og
lesendakönnuninni og drífðu
seðilinn í póst.
Pálina og Þorkell þáðu kvöldverð á Hótel íslandi og nutu að honum
loknum glæsilegrar sýningar þar.
18 VIKAN 7. TBL. 1992