Vikan - 02.04.1992, Síða 38
Póiski kvikmyndaframleiðandinn Grazka Taylor horfir aðdáunar-
augum á Friðrik Þór að lokinni sýningu.
Blaðamönnunum Sam og Judy Robbins frá L'Opinion og Randy Jay Matin frá
Pacific News and Review fannst myndin falleg og lýsa mannlega þættinum á
einlægan og raunsæjan hátt sem sjaldséður er i Hollywood-myndum.
FORSYNING A
Y
HTv
ILOS ANGELES
Mikið kynningarátak ana Oliver Stone, Jonathan
fór í gang í Los Demme, Barry Levinson og
Angeles eftir að Ridley Scott. Almannatengsla-
Börn náttúrunnar var tilnefnd fyrirtækið Baker - Winokur -
til óskarsverðlaunanna. Mynd- Ryder, sem vinnur meðal ann-
irnar hér á síðunni voru teknar ars fyrir Propaganda Films,
í forsýningarveislu í Creative stóð fyrir sýningunni. Þeir hafa
Artist Agency í Beverly Hills mikla reynslu í kynningum á
en þaö er sterkasta umboðs- alls konar nýjum kvikmyndum
skrifstofan í kvikmyndaborg- en að sögn Larry Winokur,
inni og hefur hún meðal ann- eins af eigendum þess, er
ars á sínum snærum leikstjór- mjög erfitt að spá um frama er-
■4 Sigurjón Sighvatsson eða Joni, eins og hann er kallaður í
Hollywood, og Leonard Kvaty gagnrýnandi spjalla um íslenska
kvikmyndagerð.
Steve Golin, meðeigandi Propaganda Films, til vinstri, Steven
Davis, sem skrifaði handritið að Ruby, nýjustu mynd Propaganda, i
miðið og Larry Winokur sem sá um almannatengslin í kringum
óskarinn fyrir Börn náttúrunnar. ▼
lendra kvikmynda í Bandarikj-
unum. Hann er þó bjartsýnn á
framgang Barna náttúrunnar
og hefur áður séð um erlendar
myndir sem hafa verið út-
nefndar eins og hollensku
myndina Assault sem sigraði
1987.
Blaðamönnum, gagnrýnend-
um og meðlimum óskarsverð-
launadómnefndarinnar ásamt
fleirum var boðið til veislunnar
og var Friðrik Þór leikstjóri aö
sjálfsögðu heiðursgesturinn.
Skemmst er frá því að segja
að myndin hlaut ákaft lófatak
í sýningarlok og lét engan
ósnortinn.
Friðrik hélt stuttan inngang
að myndinni og bað fólk um aö
reyna ekki að skilja myndina
heldur upplifa hana tilfinninga-
lega, því skilningur væri svo
takmarkaður en tilfinningar
andstæðan að hans mati.
Hann sagði eina af ástæðun-
um fyrir því að hann gerði
myndina vera að hann vildi
sýna hið yfirnáttúrlega á
hversdagslegan hátt og að
ævintýrin gerðust í raunveru-