Vikan - 02.04.1992, Side 60
o
co
co
Z
o
ct:
Q_
__I
Q£
Rúri ásamt
samstarfs-
manni sínum.
„Við ætlum að
verða besta
heilsulindin i
heiminum og
það ætti að
takast þar sem
við höfum pen-
ingana til
þess.“
klasann hérna í bænum og fjöl-
margt annað. Hann og hans
fjölskylda eru miklir auðkýfingar
en ég kynntist þeim fyrir fáein-
um árum í veislu sem ég var í
vegna starfsins sem ég var þá
í. Ég var að vinna fyrir stórt
snyrtivörufyrirtæki sem þau áttu
viöskipti við. Þau buöu mér síð-
an starf hérna og það kom
nokkuð flatt upp á mig þar eð
ég vissi ekki að þau væru
svona rík.“
ÚR SUNDLAUG í ÓPERU
- ÚR ÓPERU TIL TÓKÍÓ
Lýstu nú fyrir okkur hvað fólk
gerir í svona heilsulindum?
„Það er rétt að undirstrika að
þetta er ekki það sama og
heilsuræktar- eöa líkamsrækt-
arstöð. Þar er mikill munur á.
Við verðum með einkaklúbb
þar sem meölimafjöldinn verður
takmarkaður við 1000-1200
GUÐRÚN M. KANEEN FLUTTI TIL BANDARÍKJANNA FYRIR
ÞRETTÁN ÁRUM. HÚN ER NÚ FRAMKWEMDASTJÓRI HJÁ FYRIRT/EKI
SEM ER BÚIÐ AÐ SETJA Á STOFN GLíSILEGUSTU HEILSULIND HEIMSINS
egar rignir í Los Angeles
þá rignir í stórum stíl. i
rauninni er það í takt við
allt annað í þeirri ágætu borg,
þar er allt í stærri kantinum.
Það var einmitt í fátíðri og vel-
kominni rigningu í Los Angeles
sem blaðamaður Vikunnar og
Ijósmyndari sama blaðs heim- •
sóttu hana Rúrí, stórhuga konu
sem hefur náð að hasla sér völl
sem þátttakandi í höröum slag
bandarísks viðskiptalífs. Fyrir
fimmtán árum var hún gift Her-
luf Clausen í Reykjavík. Tveim-
ur árum síðar var hún komin til
Ameríku til að freista gæfunnar
og nú er hún hamingjusamlega
gift þar, býr skammt fyrir utan
Los Angeles, er nýlega tekin
við framkvæmdastjórastöðu hjá
fyrirtæki sem fæst viö geysilega
spennandi hluti og umgengst
daglega fólk sem er nógu ríkt til
að leysa fjárlagahalla íslenska
ríkisins mörg ár í röð. Hún átti
um tíma við áfengisvandamál
að stríða en vann sig upp úr
því, var í hópi fyrstu (slending-
anna sem fóru á Freeport. Vik-
an heimsótti hana í Costa
Mesa sem er úthverfi eða út-
borg Los Angeles, athvarf ríkra
viðskiptamanna sem hafa tals-
vert hærri meðaltekjur en
stjörnurnar í Hollywood en láta
fara minna fyrir sér.
FER ALDREI í SÓLBAÐ
Það er eins og hálfs tíma spölur
frá Los Angeles til Costa Mesa.
Á leiðinni mátti sjá taisverðan
mun á bílaflotanum, sífellt fleiri
Bensar og Kadilakkar fóru að
sjást og sífellt minna og minna
af Mexíkönum. Eftir að hafa
farið nákvæmlega eftir leiðbein-
ingunum, sem Rúrí lét okkur
hafa, fundum við háhýsið þar
sem skrifstofan hennar var til
húsa, bráðabirgðahúsnæði
sem búið er að leysa af hólmi.
Vörðurinn í risastórum, marm-
araklæddum forsalnum leit okk-
ur hornauga. Við vorum ekkí í
hefðbundnum viðskiptafötum
og gallabuxurnar okkar ekki af
nógu fínni tegund fyrir hann.
Engu að síður hleypti hann
okkur í gegn og áður en varði
vorum við komnir upp á fjórt-
ándu hæð og lagleg stúlka, rit-
ari Rúríar, vísaði okkur inn á
skrifstofu framkvæmdastjórans.
Það virðist vera einhvers
konar staðall að þegar tveir eða
fleiri íslendingar hittast, hvar í
veröldinni sem þeir eru nú, þá
byrja þeir að tala um veðrið.
Aldrei þessu vant hafði rignt í
nokkra daga í Suður-Kaliforníu
og eðlilega barst talið að ótíð-
inni og nöturlega flöskuglærum
húðlit blaðamannsins sem ekki
leit út fyrir að fengi neina sól.
„Sólbað? Farðu nú ekki að
eyða tímanum hérna í sólbað.
Þú getur farið inn á sólbaðs-
stofu og unnið vikuverk á hálf-
tíma! Það er nú aldeilis nóg
annað að gera hérna en að
liggja í sólbaði. Hérna er eins
og hálf tíma bílferð niður til
Mexíkó, klukkutíma bílferð upp
í fjöll þar sem hægt er að fara
á skíði og tveir tímar upp í Palm
Springs þar sem er heitt allt árið
um kring."
Hvað er Palm Springs?
„Veistu það ekki, drengur?
Palm Springs er bær inni í eyði-
mörk þar sem mjög mikið af
fólki kemur í frí, vel að merkja
ríkt fólk. Þar er allt fullt af golf-
völlum, tennisvöllum og alls
konar heilsulindir þar sem ríka
fólkið dvelur sértil heilsubótar."
Fyrirtækið, sem þú vinnur
hjá, er heilsulind. Segðu okkur
frá því.
„Það er verið að leggja loka-
hönd á verkið þessa stundina
og stefnt er að því að opna í
byrjun febrúar. (Viðtalið var tek-
ið um miðjan janúar.) Það er
sennilega best að lýsa stór-
hugnum, sem hér liggur að
baki, með því að segja sem er.
Við ætlum að verða besta
heilsulindin í heiminum, og það
ætti að takast þar sem við höf-
um peningana til þess. Upphaf-
legur kostnaður var áætlaður
sjö milljónir dala (420.000.000
ísl. kr.) en við erum komin vel
yfir það! Enda er ekki hægt að
lýsa því hvað staðurinn verður
fallegur þegar hann verður til-
búinn. Eigandinn heitir Seger-
strom, er af sænskum ættum
og á meðal annars verslunar-