Vikan - 02.04.1992, Side 66
66 VIKAN 7. TBL. 1992
Sannkallað úrvalslið leikkvenna. Jessica
Tandy, Kathy Bates og Mary Stuart Masterson
í myndinni Fried Green Tomatoes at the
Whistle Shop Café.
leika í myndinni Fried Green
Tomatoes at the Whistle
Shop Café. Myndin fjallar um
gott fjölskyldusamband, vin-
áttu, ást og morö. Hún gerist
bæði í nútíð og fortíð í Alab-
ama í Suðurríkjunum og er
byggð á skáldsögu eftir Fann-
ie Flagg. Kvikmyndagagnrýn-
endur hafa lokið lofsorði á leik
allra leikkvenna í myndinni.
SIGURJÓN SIGHVATS-
SONMEÐAÐRAMYND
f FARTESKINU
Sigurjón Sighvatsson hefur
líka framleitt pólitísku myndina
Ruby en Ruby var sá sem
skaut Lee Harvey Oswald,
banamann Johns F. Kennedy.
Það verður gaman að skoöa
þessa útgáfu og bera hana
saman við JFK, mynd Olivers
Stone. f myndinni Ruby leika
Danny Aiello (Hudson Hawk)
og Sherilyn Fenn (Wild at
Heart og Twin Peaks-þættirn-
ir).
FJÓRAR ÁGÆTAR LEIK-
KONUR OG GLÓÐAR-
STEIKTIR TÓMATAR
Kathy Bates (Misery), Jess-
ica Tandy (Driving Miss
Daisy), Mary Stuart Master-
son og Mary-Louise Parker
▲ Sigurjón
framleiðir
lika kvik-
myndina
Ruby með
Danny
Aillo.
▲ Kvik-
myndin
sem
Sigurjón
Sighvats-
son fram-
leiðir:
Close to
Eden.
Close to Eden heitir mynd
sem Sigurjón Sighvatsson
er búinn að framleiða meö
samstarfsmanni sínum, Steve
Colin. Fengu þeir til liðs við
sig hina hjartahlýju Melanie
Griffith og leikur hún hörku-
kvendi í myndinni, rannsókn-
arlögreglumann sem þarf að
dulbúast til að rannsaka dular-
fullt morðmál. Til þess að kom-
ast að hinu sanna þarf hún að
samlagast samfélagi gyðinga í
New York-borg. Þar að auki
kynnist hún rómantíkinni.
FRAMHALD AF BLS. 54
SVAR:
Winston Spencer Churchill fæddist i höllinni
Blenheim, í nágrenni Oxford, þann 30. nóv-
ember 1874. Hann lagði meðal annars stund
á herfræði, útskrifaðist sem herforingi og tók
þátt í stríði bæði á Indlandi og i Súdan. Hann
var tekinn til fanga í búastríðinu en honum
tókst að flýja úr fangabúðunum. Churchill var
trúað fyrir mörgum ráðherraembættum á lit-
ríkum ferli sínum en þekktastur varð hann
fyrir störf sín sem forsætisráðherra á timum
heimsstyrjaldarinnar síðari. Hann skrifaði
margar athyglisverðar bækur og málaralist
var helsta áhugamál hans. Árið 1953 hlaut
hann nóbelsverðlaunin I bókmenntum.
(Ripley) strönduð á fanganý-
lendu (plánetu). í raun réttri er
henni stungið í fangelsi vegna
vanrækslu í starfi. Ekki líður á
löngu þar til furðulegir atburðir
gerast. Geimskrímslin eru aft-
ur mætt til leiks. Fórnarlömbin
eru aðallega fangaverðir og
fangar. Ripley tekst ásamt
hópi fanga á við skrímslin og
notuð eru frumstæð og heima-
tilbúin vopn eða jafnvel bara
berir hnefarnir.
ÞRIÐJA FRAMHALDIÐ
UM NAKED GUN
Þegar er búið að gera kvik-
myndina Naked Gun 33%
sem auðvitað hefur á að skipa
Leslie Nielsen. Þeir eru fljótir
að þessu í draumaverksmiðj-
unni Hollywood. Handritahöf-
undar fengu nefnilega svo
mikið af hugmyndum að til eru
handrit sem geta tryggt Naked
Gun-ævintýri um aldurog ævi.
LOKASÁLGREININGIN
Kvikmyndin Final Analysis
mun sennilega ekki gefa Hand
That Rocks the Cradle neitt
eftir. Myndin hefur á aö skipa
úrvals leikaraliði. Má nefna
Richard Gere (Pretty Woman),
Kim Basinger (Too Hot to
Handle), Uma Thurman
(Henry and June) og Eric Ro-
berts (Runaway Train). Þess
má til gamans geta að kvik-
mynd þessi er meðal annars
framleidd af Richard Gere.
Myndin fjallar um spillingu,
græðgi, löngun og losta.
Greint er frá sálfræðingi nokkr-
um sem leikinn er af Richard
Gere og hvernig hann notar
sér samband tveggja systra.
Leikstjóri er Phil Joanou
sem leikstýrði meðal annars
hljómleikamyndinni um hljóm-
sveitina U2 og glæðamyndinni
State of Grace.
HARRISON FORD OG
FÖÐURLANDSÁST
Harrison Ford leikur í mynd-
inni Patriot Games sem er
framhald myndarinnar The
Hunt for Red October
(1990). Harrison Ford fer með
hlutverk hernaðarsérfræðings-
ins Jacks Ryan. Upphaflega
átti Alec Baldwin að leika
Jack Ryan eins og i fyrri
myndinni en hann fór fram á
svo háar greiðslur að Para-
mount kvikmyndafyrirtækið
ákvað að láta hann sigla sinn
sjó.
Myndin greinir frá því hvern-
ig Jack Ryan lendir í klóm IRA
hryðjuverkasamtakanna. Auk
Harrisons Ford leika þarna
Anne Archer (Fatal Attract-
ion) og Patrick Bergin (Love
Crimes, Robin Hood).
LEÐURBLÖKUMAÐUR-
INN SNÝR AFTUR
Tim Burton er búinn að leik-
stýra nýju ævintýri um Bat-
man eða Leðurblökumann-
inn. Framleiðendur segja að
þessi mynd verði betri en sú
fyrri og er þá mikið sagt. Auk
þess verður baráttan harðari
hjá Batman því hann þarf aö
kljást við Kattarkonuna (Cat
Woman) sem er leikin af hinni
snoppufríðu Michelle Pfeiffer
(Frankie and Johnny), Christ-
opher Walken sem leikur
glæpaforingja og síðast en
ekki síst Mörgæsina (The
Penguin) sem leikin er af
Danny DeVito. Þá er ekki öll
sagan sögð því í myndinni
leikur líka Pee Wee Herman.
Að þessu sinni ætla að-
standendur myndarinnar
Batman Returns að passa
sig á að Michael Keaton, sem
fer með hlutverk Batmans,
verði ekki í skugganum eins
og í fyrri myndinni þar sem
Jack Nicholson hreinlega
stal senunni.
f lokin er rétt að benda á að
þessar kvikmyndir verða eink-
um sýndar í Háskólabíói,
Sam-bíóunum, Regnbogan-
um og Laugarásbíói.
í næstu Viku verða tíndar til
fleiri kvikmyndir því af nógu er
að taka. □