Vikan - 30.04.1992, Side 16
TEXTI: ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR / LJÓSM.: BINNI
VIÐTAL VIÐ SIGMAR O
. MARÍUSSON
Hér heldur Sigmar á sjálfri Bermúdaskálinni,
farandgrip þeim sem heimsmeistararnir í brids
höfðu með sér heim. Sigmar var fenginn til að
hressa upp á gripinn eftir fimm áratuga volk um
allan heim. Fyrir ofan hann hanga verðiaunapen-
ingar þeir sem Sigmar vann til á meðan hann
stundaði lyftingar.
Halla Bogadóttir, nemi í gullsmíði, með Sverri
Guðmundssyni, bróður Hauks pressara.
Sigmar gullsmiður tekur sér hvíld frá vinnunni og stillir sér upp með fastagestum
verkstæðisins. F.v. Sverrir Guðmundsson, Árni Höskuldsson gullsmiður, Stefán V.
Jónsson, Sigmar sjálfur, Jóhannes Arason útvarpsþulur og samsveitungur Sigmars
og Halla nemi.
Ef viö göngum upp Hverfis-
götuna hægra megin komum
við fljótlega aö litlum gluggum
meö járnrimlum fyrir. Ein
trappa niður og við erum kom-
in inn í Módelskartgripi Sig-
mars Ó. Maríussonar. Þessi
verslun er næstum þrjátíu ára
gömul og er verkstæðið, þar
sem Sigmar vinnur og smíðar
allan daginn, á bak við versl-
unina. Það er þetta verkstæði
sem við ætlum að skyggnast
inn i og einn morguninn, þegar
sólin var farin að gleðja hjörtun
í bænum, litum við inn hjá
honum og spjölluðum við
hann.
- Sigmar, við höfum frétt aö
þetta verkstæði sé dálítið
óvenjulegt. Er það satt?
„Þú átt við gestina mína,“
segir Sigmar kíminn þar sem
hann situr og smíðar bréfahníf
með íslenskum álfasteini.
„Verkstæðið hérna er eins
konar menningarsetur þar
sem menn úr öllum stéttum
koma, fá sér kaffi og ræða
heimsmálin og málefni líðandi
stundar. Svona hefur þetta
alltaf verið og heldur fjölgar í
hópnum með árunum. Ég hitti
svo margt skemmtilegt fólk.
- Ekki ert þú að hella upp á
könnuna allan guðslangan
1 6 VIKAN 9. TBL, 1992