Vikan - 30.04.1992, Blaðsíða 19
Dyrnar opnast aftur meö
bjölluhljómi en í þetta sinn er
ekki viðskiptavinur á ferö held-
ur einn af félögunum sem
stormar inn, fær sér hnífapör
og tekur til viö aö snæða há-
degisverðinn. Blaöamaöur
kfkir yfir borðiö og sér dýrindis
nautakjötsrétt meö kartöflum
og grænmeti. Verkstæðið ilm-
ar af matarlykt og blaðamaður
spyr gestinn hvori Sigmar eigi
ekki að fá af matnum.
„Hann er alveg nógu feitur,"
segir gesturinn, heldur áfram
að borða og hugsar ekkert um
Sigmar. Þeir hlæja báðir og
tónninn á milli þeirra er kank-
vís og hárfínn.
Þarna var á ferðinni Árni
Höskuldsson gullsmiður, hinn
allra skemmtilegasti maður og
var mikið fjör á litla verkstæð-
inu á meðan hann hafði stans.
Sigmar segir mér að á
þessu „veitingahúsi" megi
sleikja hnífinn og sé það eigin-
lega regla fremur en undan-
tekning.
Stuttu síðar kemur gamall
maður inn og þeir tala í lágum
hljóðum um það er hann féll
niður um vök á ís fyrir fimmtíu
árum, þá ungur maður. Gamli
maðurinn var fagnandi yfir því
að hafa bjargast og þeir sam-
glöddust, félagarnir, yfir kaffi-
bolla.
Ekki líður á löngu þar til
Siggi Flateyingur birtist og
býður okkur oblátur, með
Guðs orð á vörunum. Reyndar
voru þær úr súkkulaði en trúin
var ekta og bað Siggi blaða-
manni Vikunnar Guðs bless-
unar, ævinlega og fór með
rfmur eftir sjálfan sig þar á
eftir.
„Siggi er héraðsskáld, allt
að því þjóðskáld," segir Sig-
mar og segir að þeir Siggi séu
gamlir herbergisfélagar frá
Laugaskóla í Þingeyjarsýslu.
Siggi syngur fyrir okkur og fer
með stöku um Höllu sem er
nemi í gullsmíðum hjá Sigmari
en er jafnframt lærður kennari.
Um leið og Siggi kveður biður
hann Guð að blessa löggur
heimsins og þar með hverfur
hann út í hringiðu lífsins. En
hann á eftir að koma aftur.
- Hvernig fer listamaðurinn
að því að fá hugmyndir og
orku til að smíða svona fallega
hluti, Sigmar?
„Snemma á morgnana,
áður en bærinn vaknar, fer ég
í kvöldbíltúrinn. Ég fer til að
sjá litina á sjónum, hvort hann
sé blár, grænn eða svartur
sem blek. Núna er hann farinn
að verða Ijósgrænn, flösku-
grænn. Það er farið aö vora.
Mér líður vel nálægt sjónum.
Tunglið hefur líka mikil áhrif
á mig og hefur alltaf haft. í
gamla daga í sveitinni heyrði
ég stundum sagt: „Hvað ertu
að glápa á fjárans tunglið?"
Ég er tengdur tunglinu, fer út
að ganga á kvöldin, í fullu
tungli. Silfrið, sem ég smíða
mest úr, er nefnt mánaskin
svo þarna eru einhvertengsl.“
Bjallan hringir aftur og er þar
kominn sjálfur landpósturinn
og sérlegur póstmeistari
Sigmars, Stefán V. Jónsson
frá Möörudal eða Stórval eins
og hann ritar á málverkin sín.
„Stefán er eiðsvarinn
maður, gamall landpóstur, en
það var mikið ábyrgðarstarf
hér áður fyrr,“ segir Sigmar og
sést glöggt að hér er á ferðinni
einn af heiðursfélögum
hússins.
„Stefán á málverk á söfnum
bæði á íslandi og erlendis.
Frægasta mynd hans, Vorleik-
ur, er á Listasafni alþýðu og
einnig á hann myndir á söfn-
um í New York og París. Hann
er orðinn 84 ára en er enn í
fullu fjöri, miklu fjöri."
Það sést glöggt að Sigmar
nýtur þess að hafa félaga sína
hjá sér. Hann situr samt og
smíðar allan tímann þegar
ekki er afgreiðsla.
„Lagerstaðan er óvenju góð
um þessar mundir, frekar ró-
legt í búðinni," segir Sigmar
og brosir. Hann hefur selt mik-
ið af trúlofunarhringum í gegn-
um árin og finnst gaman að
taka þátt í þessum gleðistund-
um hjá fólki.
„Einu sinni voru hringarnir
þrír því maðurinn vildi ekki
gera upp á milli kvenna
sinna," segir hann og má sjá
að hvergi speglast mannlífið
betur en einmitt á svona stað.
Þar leitar fólk að gjöfum við öll
hugsanleg tækifæri - til að tjá
hug sinn og tilfinningar.
Einu sinni enn hringir bjallan
og beðið er um meistarann
sjálfan. Maður kom með gaml-
an kross sem hann hafði fund-
ið fyrir þrjátíu árum og langaöi
til að gefa barnabarni sínu í
fermingargjöf ásamt annarri
gjöf. „Svona táknrænt," segir
hann og þeir ræða um kross-
inn. „Endist í hundruð ára,“
segir Sigmar. „Óforgengileg-
ur.“ Maðurinn gat vitjað kross-
ins síðar um daginn en þá
hafði Sigmar pússað hann upp
og krossinn varð sem nýr.
Það hlýtur að vera ánægju-
legt aö geta liðsinnt fólki á
þennan einstæða hátt, vera að
sinna list sinni og reka svo
óvenjulegt menningarsetur sem
þetta, enda hefur Sigmar alltaf
talið sig gæfumann. □
Tökum eftir
gömlui
myndum
fÉo „
^ ^ s/
^MEMA
LANGAR ÞIG LÖGLEGA
TIL BANDARÍKJANNA?
Með öruggum samtökum með mikla reynslu? Þá
eru „Au Pair in America" réttu samtökin fyrir þig.
Samtökin hafa sent 13.000 ungmenni á aldrinum
18-25 ára á síðustu sex árum.
í BODI ER:
Fríar ferðir G Frftt fæði og húsnæði O Fjögurra
daga námskeið í New York, dvalið á fjögurra
stjörnu hóteli á Manhattan þér að kostnaðarlausu
♦ Frítt námskeið í bandarískum skóla G 6.000
ísl. kr. á viku í vasapening. G 15.000-100.000
USD sjúkra- og slysatrygging í
13 mánuði + Vegabréfsáritun
J-1 í 13 mánuði G Klúbbur Au
Pair með afsláttarkorti í versl-
anir, ársáskrift að tímariti sam-
takanna svo og skemmtileg gjöf
til þín G Sérþjálfaður ráðgjafi
úti allt árið ♦ Brottför í hverjum
mánuði ♦ ATH.: Engin um-
sóknargjöld ♦ Kynntu þér mál-
ið hjá fulltrúa samtakanna,
Berglindi Hallgrfmsdóttur.
Sími 91-611183.
9. TBL. 1992 VIKAN 19