Vikan - 30.04.1992, Qupperneq 42
TEXTI: ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓTIR / LJÓSM.: GÍSLI ÞÓR GUÐMUNDSSON
Sykurmolarnir hafa undan-
fariö látið að sér kveða í
bresku tónlistarlífi eftir
nokkurt hlé. Öll helstu tónlistar-
tímaritin í Bretlandi birtu viðtöl og
umfjallanir um hljómsveitina þeg-
ar smáskífan Hit kom út þar um
áramótin. Sykurmolarnir komu
fram í vinsælum sjónvarpsþáttum
og tónlist sveitarinnar hljómaði oft
í útvarpi.
Á breska vinsældalistanum,
þar sem velgengni stjórnast af
sölu hljómplatna, náði Hit 17. sæti
og undirbjó jarðveginn fyrir breið-
skífuna Stick Around for Joy
sem kom út 10. febrúar. Platan
fór í 16. sæti breska vinsældalist-
ans viku eftir að hún kom út og
hlaut mikið lof gagnrýnenda. Þótt
hún dytti fljótt út af listanum aftur
tróndi hún nokkrar vikur á toppi
óháöa listans. Liklegt er að nafni
þeirra Mola skjóti aftur upp á vin-
sældalistanum þar sem smá-
skífa þeirra, Walkabout, kom
út 30. mars en á henni eru valin
lög af breiðskífunni.
Það var að vonum gleðiefni
þegar loks var Ijóst að Sykurmol-
arnir myndu fylgja hljómplötuút-
gáfu sinni eftir með tónleikahaldi
erlendis. Sveitin hélt fyrst til höf-
uðstöðvanna í Bretlandi og tróð
upp í fjórum borgum. Fyrstu tón-
leikarnir voru haldnir fyrir troöfullu
húsi í Brixton Academy í London
7. mars. Hljómsveitin kom dans-
andi upp á sviðið og gladdi 3500
aðdáendur með tónlistarsköpun
sinni í hálfan annan tíma.
„Það er gott að vera aftur hér
og við eru glöö að sjá ykkur,"
sagði Einar Örn við upphaf tón-
leikanna og sú gleði var gagn-
kvæm því áhorfendur klöppuðu
Sykurmolana tvisvar upp í lokin.
HZ!M2Z3m
„Þetta voru skemmtilegir tónleik-
ar,“ sagði Francis á leiðinni út af
tónleikunum. „Ég keypti plötuna
þeirra, Stick Around for Joy, en
vissi ekkert um þá áður. Ég ákvað
strax og ég frétti að þeir yrðu hér
með tónleika að fara og ... þeir
voru góðir!“
„Þetta voru frábaerir tónleikar, þeir
bestu sem ég hef farið á í langan
tíma,“ sagði Julian sem var á
sínum fyrstu Sykurmoiatónleikum.
Hann hafði ekki eingöngu áhuga á
tónlistinni því hann bætti við
nokkuð sannfærandi: „Mig langar
að giftast hijómborðsleikaranum,
en ég sá að hún var ólétt. Ég er
mjög reiður út af því en hún var
frábær og hljómsveitin öll var
frabær," sagði hann brosandi.
„Mér fannst þau góð,“ sagði Isa.
Hann sá Sykurmolana þegar þeir
tróðu fyrst upp í Bretlandi og hefur
fylgst með þeim allar götur síðan.
Aðspurður hvort honum fyndist
hljómsveitin betri núna sagði Isa:
„Þau eru öðruvísi, þau hafa breytt
um stíl. Mér finnst þau ekkert verri
eða betri - þau eru bara alltaf góð.“
Það eru alls staðar Islendingar þar
sem Sykurmolarnir troða upp og
auðvitað létu þeir sig ekki vanta í
London. Ásdís og Orri (til hægri)
eru búsett í London en Helgi og
Hrannar voru í viðskiptaleiðangri.
Blaðamaður frétti að þeir hefðu
misst af flugvél til Amsterdam,
þangað sem leið þeirra átti að
liggja og orðið strandaglópar í
London. Hvort sem það var nú
viljandi eða óviljandi áttu þeir
félagar góða kvöldstund i félags-
skap Sykurmolanna og aðdáenda
þeirra í Brixton Academy þetta
kvöld.
42 VIKAN 9. TBL. 1992