Vikan - 30.04.1992, Side 30
UMSJÓN: GUNNAR H, ÁRSÆLSSON
NÝJAR HLJÓMPLÖTUR
HINN ÍSLENSKI
ÞURSAFLOKKUR:
HINN ÍSLENSKI
ÞURSAFLOKKUR
MEISTARAVERK ÍSLENSKS
ÞJÓÐLAGAROKKS
Útgáfa þessarar plötu markaöi
viss tímamót f íslenskri rokk-
sögu aö mati undirritaös. Með
tilkomu Þursaflokksins, sem
Egill Ólafsson stofnaði eftir aö
hann hætti í Spilverki þjóöanna,
var komin fram hágæöa þjóð-
lagarokksveit sem tók fyrir fjör-
gamlar laga- og textasmíðar og
útsetti á nútímalegan hátt.
Þetta á þó ekki viö um öll lög
þlötunnar því tvö þeirra, Sólnes
(þar sem Þóröur Árnason gítar-
leikari fer á kostum) og Búnaö-
arbálkur, eru eftir Egil og Nú-
tíminn er amerískur að upg-
runa, útsettur af Agli og Sigurði
Bjólu: „Nútíminn er trunta/með
tóman grautarhaus/hjartað það
er hrímað/því heilinn gengur
laus.“
Auk Egils voru upphaflega í
Þursaflokknum þeir Tómas
Tómasson (bassi), Ásgeir Ósk-
arsson (trommur) og Rúnar Vil-
bergsson sem spilar á fagott og
setur einstaklega fallegan svip
á þau lög sem það er notað í, til
dæmis Stóðum tvö í túni og
Hættu að gráta hringaná. Á
annarri plötu Þursanna datt
Rúnar hins vegar út en Karl
Sighvatsson bættist við.
Hinn íslenski þursaflokkur er
nú fáanlegur á geisladiski og
ráðleggur undirritaður öllum að-
dáendum Þursaflokksins, sem
eiga útspiluð vinyl-eintök (eins
og ég), að endurnýja því hér er
meistaraverk í íslensku þjóð-
lagarokki á ferðinni, hrein perla.
Svona plötur eru sjaldgæfar.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★★
SPILVERK ÞJÓÐANNA:
STURLA
HVÍ ER ÉG
ARINBJARNARSON?
Spilverk þjóöanna var stofnað
af Valgeiri Guðjónssyni, Agli
Ólafssyni, Sigurði Bjólu og Sig-
rúnu Hjálmtýsdóttur um miðjan
sjöunda áratuginn. Platan, sem
hér um ræðir, Sturla, var þriöja
verk þeirra, kom út árið 1977 og
verður sem sagt fimmtán ára á
þessu ári. Sturla hefur elst
ótrúlega vel, þessi bræðingur af
djassi, blús, þoppi og rokki á
tvímælalaust enn erindi viö
okkur. Því er þessi endurútgáfa
á geilsadisknum sérlega kær-
komin.
Umfjöllunarefni Sturlu (Arin-
bjarnarsonar) eru af þjóðfélags-
legum toga og gert er hoppandi
grín að neyslukapphlaupi,
fermingartilstandi og auglýs-
ingafargani. Öllu gamni fylgir
samt alvara og dæmi um það
er ádeilan í laginu Söngur dýr-
anna í Straumsvík: „ísland
elskar álver/og álver elskar
það/þau kyrja fyrir landann/
gleyma stund og stað/„ó guð
vors land'Vvið útlent lag.“
Þetta er alveg í stíl við um-
ræöuna um þessar mundir.
Sturla var sú þlata Sþilverks-
ins sem aflaði því mestra vin-
sælda enda afbragös plata sem
inniheldur skemmtileg lög og
texta (meðal annars úr leikritinu
Grænjöxlum eftir Pétur Gunn-
arsson), vel sungin af meðlim-
um Spilverksins. Dæmi: Lag-
Ijóð og Arinbjarnarson (S. Bjóla
syngur), Nei sko (Diddú),
Ferðabar (Valgeir) og Sirkus
Geira Smart (Egill). Eftir þessa
plötu gekk Egill úr Spilverkinu
og eftir næstu plötu, ísland
(1978), fór Valgeir til náms f
Noregi. Árið 1979 kom svo út
síðasta plata Spilverksins,
Bráðabirgðabúgi. Hvað um
það, á hátindi ferils síns var
Sþilverk þjóðanna alger yfir-
buröasveit á sínu sviði.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★
TORI AMOS:
LITTLE EARTHQUAKES
UNDIR ÁHRIFUM
Frá Washingtonfylki í Banda-
ríkjunum kemur þessu efnilega
söngkona, að nafni Tori Amos,
en Tori mun vera heiti á trjáteg-
und! Faðir hennar er prestur og
meðal annars var hún látin sjá
um undirleik við athafnir hjá
honum enda hafði stúlkan lært
á píanó. Hún semur líka öll lög
á fyrstu plötunni sinni og text-
ana líka. Þetta er mestmegnis
yfirveguð og seiðandi tónlist
sem lætur vel í eyrum, svo sem
fyrsta lagið, Crucify, sem er
„krækjan" á plötunni.
Það merkilega viö þessa
söngkonu er að hún er undir
mjög sterkum áhrifum frá þrem-
ur vel þekktum söngkonum.
Þetta eru þær Kate Bush, Sin-
ead ÖConnor og kanadíska
söngkonan Jane Siberry. Eigin-
lega er lygilegt hvað rödd Tori
ber sterkan keim af röddum
hinna þriggja og heyrist það
mjög vel í lögunum Precious
Things og Silent Years sem er
falleg en rismikil ballaða, borin
upþi af píanói og strengjasveit.
Hið fyrra er rokkaðra, með
þungum trommuslætti og virki-
lega áhrifamikiö lag.
Platan ber nafnið Litlir jarð-
skjálftar og er það kannski rétt-
nefni því hvert lag hristir dug-
lega uþþ í manni sökum feg-
urðar og styrkleika, sem er þó
ekki úr hófi fram. Margt í tónlist
Tori Amos veldur því að gæsa-
húð sprettur fram og það finnst
undirrituðum besti mælikvarð-
inn á tónlist.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★
Bandaríska
söngkonan
Tori Amos
er undir
miklum á-
hrifum frá
þekktum
söngkon-
um en
fyrsta plat-
an hennar,
Little Earth-
quakes, er
hið besta
verk.
30 VIKAN 9. TBL. 1992