Vikan


Vikan - 30.04.1992, Síða 38

Vikan - 30.04.1992, Síða 38
I VIÐTAL VIÐ KVIKMYNDATÓNSKÁLDIÐ HILMAR ÖRN HILMARSSON, FORVÍGISMANN YNGSTA HUÓMPLÖTUFYRIRTÆKIS LANDSINS, PLATONIC RECORDS Fram til þessa hefur á- standiö á íslenskum plötu- markaöi einkennst af því að tvö útgáfufyrirtæki, Steinar hf. og Skífan, hafa bitist og slegist um hylli og peninga plötukaupenda. Mörgum hefur þótt þetta súrt í broti og síðan Grammið hvarf af sjónarsvið- inu hefur tónlist sem ekki höfð- ar til hins „almenna kaup- anda“ átt frekar erfitt uppdrátt- ar. Á þessu er nú kannski að verða breyting því stofnað hef- ur verið hljómplötufyrirtækið Platonic Records og því er nær eingöngu ætlað að sinna svokallaðri jaðartónlist. Þetta slæma orð er notað um þá tónlist sem ekki telst til „meg- instefnu-tónlistar" sem er ann- að slæmt orð yfir hugtakið „Mainstream" en það er sú tónlist sem er vinsælust hverju sinni. Stofnandi og aðalhvata- maður Platonic Records er tónlistarmaðurinn og kvik- myndatónskáldið Hilmar Örn Hilmarsson. Hann fékk Felix- verðlaunin fyrir tónlist sína í Börnum náttúrunnar eftir Frið- rik Þór Friðriksson og allir vita að sú mynd var nýverið til- nefnd til óskarsverðlauna sem besta erlenda kvikmyndin, vann reyndar ekki en sigraði samt! SVAR VIÐ ÁKVEÐINNI ÓHEILLAÞRÓUN Hilmar Örn var að ganga frá tónlistinni í kvikmynd Kristínar Jóhannesdóttur, Svo á himni sem á jörðu, í Stúdíó Sýrlandi og blaðamaður hitti hann þar aö máli. „Mér fannst vera viss óheillaþróun í gangi hérlendis, á þann veg að einungis væru hér starfandi tvö fyrirtæki, Steinar og Skífan. Þar af leið- andi væri sú óháða starfsemi sem Grammið og Eskvímó beittu sér fyrir á sínum tíma dottin upp fyrir. Því fannst mér vera kominn tími til þess að gera eitthvað í málunum, koma með svar við þessari þróun. Vegna þess að ég vinn mikið hér í Sýrlandi setti ég mig í samband við Jón Ólafs- ■ son hjá Skífunni en hann hafði þá tekið við rekstrinum á hljóð- verinu. Ég tjáði honum að ég hefði áhuga á að setja upp mitt eigið fyrirtæki þar sem ég myndi alfarið velja það efni sem yrði gefið út. Einnig setti ég fram þá ósk að ég fengi að- stöðu í Sýrlandi til þess að taka upp en Skífan sæi um framleiðslu og dreifingu, auk þess sem ég myndi vinna með ákveðnum aðilum innan fyrir- tækisins að markaðssetningu á tónlist þeirra erlendis. í fram- haldi af þessu var Platonic Records stofnað og er nú tæp- lega eins árs.“ EITT STÆRSTA NAFNIÐ í BLÚSNUM Fyrstu tvö verkefni fyrirtækis- ins voru að gefa út Blue lce með Vinum Dóra og þunga- rokksplötuna The Entitiy með Sororicide. Einnig var gefin út platan Island sem Hilmar Örn og Current 93 standa fyrir (sjá 5. tbl. Vikunnar) og það eru mörg spennandi verkefni fram undan hjá Platonic Records. „Nú er komin út plata með Pinetop Perkins, Chicago Beau og Vinum Dóra en óhætt er að fullyrða að Pinetop sé eitt stærsta nafnið í blúsnum um þessar mundir. Það er mér mjög mikill heiður að gefa út SOLUHUGSUNIN HEFUR HELTEKIÐ ÞENNAN BRANSA OG MENN mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^^m ÞORA EKKI AÐ TAKA AHÆTTU 38 VIKAN 9. TBL. 1992 TEXTI OG MYND: GUNNAR H. ÁRSÆLSSON

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.