Vikan


Vikan - 30.04.1992, Page 39

Vikan - 30.04.1992, Page 39
þessa plötu sem er þriðja breiðskífan hans. Það hefur gengið mjög vel að koma Vin- um Dóra á framfæri og um miðjan mars komu þeir fram á einni virtustu tónlistarhátíð heimsins, South by South- west, í borginni Austin í Texasfylki. Þar spiluðu sjötíu hljómsveitir en þess má geta að þær voru valdar úr níu þús- und hljómsveitum sem sóttu um og mjög gleðilegt að Vinir Dóra skyldu vera meðal útval- inna. Einnig verður á dagskránni önnur breiðskífa Sororicide og svo gefum við væntanlega út plötu með klassískum píanó- leik Jónasar Sen. Klassískri útgáfu á íslandi er annars stór- lega ábótavant og alveg hreint með ólíkindum metnaðarleys- ið sem tröllriðið hefur þeim geira tónlistarlífsins. Mér finnst alveg stórfurðulegt að Sinfónían skuli ekki hafa leikið fleiri íslensk verk inn á geisla- diska. Annað sem er í bígerð er plata sem við Ragnhildur Gísla- dóttir ætlum að vinnas saman í sumar, tónlistin úr Börnum náttúrunnar og safnplata með ungum þungarokkssveitum. Ennfremur er ég með ýmsar athyglisverðar hljómsveitir í sigtinu og aðra aðila í tónlist- arlífinu, sem ég vonast eftir að geta starfað með en ekki er hægt að nafngreina að svo stöddu." GÓÐIR TÍMAR í TÓNLIST Platonic Records hefur þegar samið um dreifingu á plötum Pinetop Perkins í Bretlandi og Þýskalandi og allar líkur eru á að Bandaríkin og Japan fylgi í kjölfarið. Verið er að vinna að dreifingu á Sororicide í Bret- landi og Þýskalandi. „Nokkur fyrirtæki hafa sýnt tónlistinni úr Börnum náttúr- unnar áhuga og ég er núna að vega og meta þau tilboð. Ég held að það sé ekkert mál að koma allri þessari tónlist á framfæri erlendis. Núna eru góðir tímar í tónlist og ein- hvern veginn virðist það vera svo að í upphafi hvers áratug- ar gerist eitthvað nýtt og spennandi. Jafnframt sýnist vera viss lægð í gangi um miðjan hvern áratug; ’65 yfir- tóku bisnessmennirnir rokkið og poppið, í kringum 75 kom diskóið, ’85 fóru endurskoð- endurnir og viöskiptafræðing- arnir að rekja hljómplötufyrir- tækin með öllum þeim hörm- ungum sem því fylgdi. Nú hefur þetta ástand varað I sjö til átta ár og afleiðingin er 10-15 prósent hrun í plötu- sölu. Þetta hefur þær afleið- ingar að menn þora ekki leng- ur að taka áhættu, þora ekki að gera mistök. Hljómsveitir mega til dæmis ekki lengur gera góða fyrstu plötu, síðan tvær slæmar og svo þá fjórðu sem kannski er meistaraverk. Um þetta höfum við dæmi og hjá sumum hljómsveitum hef- ur þetta verið eðlilegur þróun- arferill. Söluhugsunin hefur heltekið þennan bransa og það er sjúklegt ástand. Menn og hljómsveitir eru miskunnar- laust reknar frá fyrirtækjum ef ekki selst.” JAKKA-, FRAKKA- OG BUXNAVASAR Yfirbyggingin á Platonic Records er ekki mikil og Hilmar Örn var fljótur að svara spurn- ingu þar að lútandi. „Bókhaldið er í jakka- og frakkavösunum mínum og stundum það sem verra er, í buxnavösunum en buxurnar vilja stundum fara í þvott og þá er ég í vondum málum! Þetta er nú öll skrifstofuaðstaðan mín,“ segir Hilmar kíminn en bætir við: „Mér líkar best að ■Ég held að það sé ekkert mál að koma allri þessari tónlist á framfæri erlendis. vera á ferðinni og held ég myndi deyja ef ég væri tjóðr- aður við skrifborð!” Eins og kom fram í inngangi fékk Hilmar Örn Felix-verð- launin fyrir tónlist sína í kvik- myndinni Börn náttúrunnar sem var tilnefnd til óskarsverð- launa ekki alls fyrir löngu. Hvaða áhrif skyldi útnefningin hafa? „Þetta er eiginlega bein við- bót við Felix-verðlaunin sem eru ung verðlaun en verða að öllum líkindum orðin mjög sterk eftir tvö til þrjú ár. Ég verð að viðurkenna að ég hef fengið töluverða athygli vegna Felixins en áhrif óskarstilnefn- ingarinnar eru margföld miðað við Felixinn. Óskarinn er eigin- iega eins konar listræn banka- innistæða, maður verður númer,” sagði Hilmar Örn að lokum. □ ÞU HITTIR MARK MEÐ ASTOR VORLITUNUM! ytfargaref s/or

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.