Vikan


Vikan - 30.04.1992, Blaðsíða 70

Vikan - 30.04.1992, Blaðsíða 70
TEXTI: ÞORSTEINN ERLINGSSON á CHANEL VORLITIRNIR FRÁ CHANEL Vorlínuna kallar CHANEL INTENSITÉS, sem unnt er að þýða með orðinu tilfinningahiti og nær hann til vara, augna og kinna, þar sem yfirtónarnir eru birta rauða litarins, dýpt hins koparbrúna og loks dulúð hins fjólubláa. Árangurinn af þess- ari litasamsetningu er sá „að varirnar verða líflegar, augun mild og um leið leyndardóms- full“. Undirtónarnir mynda síð- an skemmtilegt samspil hins fjólubláa litar, gráa, bláa og þess Ijósgræna. NUTRI PRINCIPE FYRIR ÞURRA HÚÐ í maí og júní kemur á mark- aðinn húðkrem og húðmjólk frá Chanel - gædd virkum efn- um sem sérstaklega eru ætluð þurri og mjög þurri húð. Ann- ars vegar er um að ræða NUTRI PRINCIPE Emulsion Douceur sem kalla má húðmjólk. Hana má nota bæöi að degi sem nóttu og virkar hún fljótt. Húðin er bókstaflega sögð sjúga hana í sig. Hún skilur ekki eftir neina fitu og kemur að góðu gagni sem undirstaða fyrir förðun dagsins. Chanel mælireinkum með Emulsion Douceur á sumrin. NUTRI PRINCIPE Créme Confort er gætt mjög svipuð- um eiginleikum nema hvað það er þykkara og í kremformi. Mælt er með því sérstaklega fyrir konur sem finnst þær vera með mjög strekkta og þurra húð. Einnig hentar það vel þeim sem þykir gott að nudda húð sína vel áður en hún er förðuð. Chanel segir kremið upplagt á veturna og þar sem fremur kalt er í veðri - eins og hér á landi, svo og fyrir konur sem stunda útivist og íþróttir undir berum himni. Einnig er NUTRI PRINCIPE Créme Confort sagt gott sem nætur- krem í samvinnu við Emulsion Douceur sem þá yrði notað yfir daginn. NÝTT PÚÐUR OG UNDIRLAG FRÁ CHANEL Um þessar mundir er aö koma á markaðinn nýtt undirlag (base) frá Chanel, BASE LUMIÉRE og er það sagt svo gott að það „lýsi upp andlitið". Áferðin er hárfín og er sögð gefa andlitinu náttúrulegan og heilbrigðan lit. Það hentar vel með öllu kremi og andlitsmjólk auk þess sem það sómir sér að sjálfsögðu vel undir andlits- farðanum. Nýja púörið frá Chanel, PO- UDRE LUMIÉRE og POUDRE FACETTES, er af sama toga og undirlagið - gefur sem sé hárfina og náttúrulega áferð. Það hentar jafnvel hvort sem er í dagsins önn eða að kvöldi þegar eitthvað stendur til. Grunnurinn er fáanlegur í fjórum mismunandi litum, Po- udre Lumiére í sex og Poudre Facettes í þremur. VOR- OG SUMARLÍNAN FRÁ GIVENCHY Nýja litalínan f vor og sumar frá GIVENCHY heitir NOMAD og byggir á náttúrulegum litum bæði úr steina- og jurtaríkinu. Um er að ræða þrenns konar litaafbrigði sem framleiðand- inn kallar „sand“, „við" og „steina“. Nýja línan er þvi sögð passa mjög vel við litina í fatatískunni; augnskugginn og augnfarðinn, púðurfarðinn sem augnháraliturinn - og þar við bætist naglalakk og varalit- ur. ► Hin glæsilega baðlína frá Givenchy. ( nýju línunni frá GIVENCHY er meðal annars að finna nýj- an púðurfarða sem fram- leiðandinn segir töfrum líkast- an og kallar IRONY POWDER PRISM. Hann gefur hárfína áferð og hæfir við hvaða tæki- færi sem er. Askjan og um- búðirnar gera það að verkum að konur geta á þægilegan hátt blandað saman litum að vild. Varalitinn í nýju línunni kýs framleiðandin að nefna HYDRA-SOFT LIP GLOSS og hann er bæði mildur og einkar auðveldur og auðsveipur þeg- ar hann er borinn á varirnar. Hann inniheldur ýmis mýkj- andi, náttúruleg efni á borð við býflugnavax. AMARIGE - NÝJA BAÐLÍNAN Baðlínan samanstendur af sex nauðsynlegum hlutum sem heyra til daglegu hrein- læti og snyrtingu; ilmsápu, mildu baðgeli, svitalyktarúða, húðmjólk ætlaðri ystu lögum húðarinnar (Silk Body Veil), húðkremi (Velvet Body Cream) og baðpúðri (Satin Talc). Ilmur baðlínunnar er ferskur og tær í senn og er sagður endast allan daginn. Hver ein- stakur hlutur hennar hefur ver- ið vandlega valinn til þess að uppfylla allar þær kröfur sem framleiðandinn og ekki síður notandinn gerirtil góðra snyrti- vara. Sápan, baðpúðrið og húð- mjólkin eru í hvítum flöskum. Baðgeliö og svitalyktareyðir- inn eru hins vegar í glærum flöskum svo gullinn litur vökv- ans fái notið sín. 70 VIKAN 9.TBL.1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.