Vikan - 09.02.1993, Blaðsíða 18
Ragnhei6-
ur Elfa
Arnardótt-
ir leikur
móðurina.
komast til sjálfs mín á ný og
rölti rólega ( burtu en fólkið
stóð eftir furðu lostið.
Eftir þetta ár hjá Helga
Skúlasyni fórum við Þorsteinn
saman í inntökupróf í Leiklist-
arskólann og komumst báðir
inn. Þá voru einu skilyrðin þau
að vera orðinn nítján ára en nú
er krafist stúdentsprófs. Hluti
af inntökuprófinu er próf í ís-
lensku. Ég féll auðvitað á því
enda var ég næstum óskrif-
andi. Ég var því skikkaður til
að taka íslensku og nokkur
önnur fög ( öldungadeild í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð.
Stór hluti af náminu í Leik-
listarskólanum fyrstu tvö árin
er bóklegt. Mikið er lagt upp
úr íslensku og listasögu enda
eru þetta fög sem er nauðsyn-
legt fyrir leikara að kunna góð
skil á.
Ég er mjög ánægður með
Leiklistarskólann að mörgu
leyti. Sumt af því sem við vor-
um að læra þar virtist ekki
hafa neinn tilgang en nýtist
manni þegar á reynir.“
- Nú fékkstu frekar stór
hlutverk í þeim leikritum sem
þið settuð upp í Nemendaleik-
húsinu. Heldur þú að það
hjálpi leiklistarnemum, þegar
þeir fara að leita sér að vinnu
eftir að þeir útskrifast, ef þeir
hafa fengið bitastæð hlutverk
í Nemendaleikhúsinu?
„Örugglega. Leikstjórar og
annað leikhúsfólk kemur í
Nemendaleikhúsið til að leita
að nýju fólki. Þess vegna er
mjög mikilvægt að jöfnuður
ríki innan Nemendaleikhúss-
ins þannig að sama fólkið fái
ekki alltaf stærstu hlutverkin.
Hingað til hafa leikstjórar valið
hlutverk alveg óháð því hvort
viðkomandi hefur fengið stórt
hlutverk í öðrum verkum sem
hafa verið sett upp í skólan-
um. Þessu þarf að breyta. í
Nemendaleikhúsi eiga allir að
fá tækifæri til að sannna sig.
Það er rosaleg barátta í
þessu starfi. Ég er til dæmis
ekki fastráðinn og hef því ekki
atvinnuöryggi í meira en þrjá
til fjóra mánuði í einu. Það er
ekkert sjálfgefið að ég fái eitt-
hvað að gera næstu árin þó
mér hafi gengið vel þessi tvö
ár sem ég hef verið á vinnu-
markaðinum. Eins getur svo
farið að leikarar, sem hafa
ekkert haft að gera fyrstu árin
eftir að þeir útskrifuðust, fái
nóg að gera seinna meir.
Starf leikarans er mjög fjöl-
breytt og ekki eingöngu
bundið við leikhúsið sjálft. Til
dæmis hef ég verið á samn-
ingi hjá Stöð 2 í vetur við að
lesa inn á teiknimyndir.
Einnig lék ég í finnskri sjón-
varpsmynd ( sumar og fór í
sleik við Ara Matt í myndinni
Veggfóður. Þar að auki starfa
ég með hljómsveitinni Silfur-
tónum sem er, eins og allir
vita, einhver vinsælasta og
skemmtilegasta hljómsveit
síðari tíma.
Vinna leikarans getur því
verið mjög krefjandi og tíma-
frek. Þessa dagana geri ég lít-
ið annað en að vinna og sofa
og kannski knúsa kærustuna
mína. Málið er bara að leiklist-
in gefur mér svo mikið að ég
er tilbúinn að fórna ýmsu fyrir
hana.“
18VIKAN 3.TBL.1993