Vikan - 26.08.1993, Page 8
TEXTI: LOFTUR ATLIEIRÍKSSON
Kvikmyndaunnendur á
öllum aldri þekkja leik-
arann góðkunna Lloyd
Bridges. Hann er hátt á átt-
ræðisaldri en hefur síður en
svo lagt árar í bát og á undan-
förnum árum hefur hann leikið
í hverri gamanmyndinni á fæt-
urannnari.
Segja má að tilviljun hafi
ráðið því að Lloyd Bridges
gerðist leikari en hann nam
stjórnmálafræði í háskóla
með það í huga að gerast lög-
fræðingur. í skólanum kvikn-
aði áhugi hans á leiklist fyrir
nein nöfn. Það eru margir
fleiri en forsetarnir sem ég
hafði í huga. í gegnum lífið
hef ég hitt alls konar fólk sem
þykist vera með allt á hreinu
og setur upp sterkan „front“.
Þegar betur er að gáð og litið
inn fyrir framhliðina er stund-
um ekkert þar að baki.“
MEÐ YDDARA
f EYRANU
- Var erfitt að leika þetta hlut-
verk vegna þess að það er í
svo litlum tengslum við raun-
veruleikann?
i
alvöru og leikritahöfundur frá
New York var svo ánægður
með frammistöðu hans í
skólaleikriti að hann bauð
honum hlutverk í leikriti á
Broadway. Eftir það varð ekki
aftur snúið og Lloyd starfaði í
leikhúsum á austurströndinni
næstu árin.
Samkepþnin í leikhúsunum
er mikil og Lloyd tók því feg-
ins hendi föstum samningi við
Columbia kvikmyndaverið og
fluttist til kvikmyndaborgarinn-
ar til að einbeita sér að leik í
kvikmyndum og sjónvarps-
þáttum. Frægastar af eldri
myndunum hans eru Home of
the Brave, A Walk in the Sun
og High Noon. Þeir sem fylgd-
ust með Kanasjónvarpinu á
sínum tíma minnast líklega
einnig Sea Hunt þáttanna
sem nutu mikilla vinsælda um
árabil. Synir Lloyds, Beau og
Jeff Bridges, fengu þar sína
fyrstu alvörureynslu fyrir fram-
an kvikmyndavélarnar en eru
núna báðir heimsfrægir leikar-
ar. Lloyd lék á móti Jeff í
mynd Francis Ford Coppola
um bílaframleiðandann
Tucker og Beau leikstýrði föð-
ur sínum í sjónvarpsmyndinni
Thanksgiving Promise.
Það má segja að aldurinn
hafi að mörgu leyti unnið með
Lloyd Bridges því hann er
með silfurgrátt hár og virðu-
legt útlit roskins manns en i
gamanhlutverkunum gengur
framkoma hans þvert á þessa
ímynd. i nýjustu myndinni,
Hot Shots, Part Deux, kemur
þessi eiginleiki sér vel því
Lloyd fer á kostum í hlutverki
Lloyd Bridges í hlutverki sínu í Hot Shots þar sem hann lék
sjálfan Bandaríkjaforseta. Fullyrt er að George Bush hafi
verió fyrirmyndin.
forseta Bandaríkjanna. Hug-
myndin að myndinni var mót-
uð í kringum hlutverk hans en
í fyrri Hot Shots myndinni
gerði hann herforingjann Tug
Benson ógleymanlegan. Nú
fylgjumst við með Tug Ben-
son í forsetakosningunum en
slagorð hans er „Tug Benson,
The Simple Solution" (Tug
Benson er einfaldasti kostur-
inn eða eitthvað í þá áttina)
og gæti ekki hitt betur í mark
því hann er gjörsamlega glær
í gegn.
Ég hitti Lloyd Bridges ný-
lega að máli í Los Angeles og
eftir að hafa séð hann í Hot
Shots, Part Deux daginn áður
var erfitt að halda brosinu í
skefjum. Hann var að ein-
hverju leyti fastur í hlutverki
Tugs Benson og virkaði svo-
lítið kalkaður fyrst en fljótlega
komst ég að því að hann var
bara að grínast.
- Þetta er í fyrsta skipti
sem þú leikur forseta Banda-
rikjanna í kvikmynd, varst þú
með George Bush í huga?
„Nei, ekki bara hann heldur
ýmsa fleiri."
- Hverja þá helst?
„Ég þori ekki að svara því.“
- Hvað meinar þú?
„Ég er demókrati og ég
held að það væri ekki sann-
gjarnt af mér að fara að nefna
„Nei, það gerir það bara
skemmtilegra. Þessi maður á
að hafa verið í flughernum og
flogið 194 ferðir og næstum
því alltaf verið skotinn niður
og lent í ýmsum ævintýrum.
Hann er með járnplötu í
hausnum og hefur keramik-
augu. Hann var'Skotinn inn
um annað eyrað og skotið
kom út um hitt og í fyrri Hot
Shots myndinni renndi hann
vasaklút sömu leið til að
hreinsa úr eyrunum á sér. í
þessari mynd er annað eyrað
á honum orðið að rafmagns-
yddara sem hann stingur blý-
anti inn í ef hann þarf að
ydda. Þótt hann geti ekki lagt
saman tvo og tvo lifir hann í
heimi þar sem hann hefur
svör við öllum þeim vanda-
málum sem hann fæst við og
útkoman úr samskiptum hans
við annað fólk verður þvl oft-
ast ævintýraleg.“
- Hvaða þýðingu hefur það
haft fyrir þig að hafa verið í
mörgum af vinsælustu gam-
anmyndum síðustu ára eftir
að hafa staðið að nokkru leyti
fyrir utan sviðsljósið árin á
undan?
„Ég og fjölskylda mln erum
náttúrlega mjög ánægð með
hvernig leikferill minn hefur
þróast á undanförnum árum.
Þegar ég var í Sea Hunt sjón-
varpsþáttunum átti ég mikið af
ungum aðdáendum. Ég hafði
síðan ekki tækifæri til að gera
neitt fyrir unga fólkið næstu
fimmtán til tuttugu árin fyrr en
ég lék í Airplane. Það var
mjög ánægjulegt því ég hafði
leikið töluvert af grínhlutverk-
8 VIKAN 17.TBL. 1993