Vikan


Vikan - 26.08.1993, Side 26

Vikan - 26.08.1993, Side 26
SALARKIMINN SIGTRYGGUR JÓNSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR LESENDUM Bréf til Sigtryggs geta snúist um samskipti kynjanna, sam- skipti barna og foreldra, samskipti milli hjóna, kynlíf og annaö þaö sem lýtur aö sálfræöi og sálfræöilegum vanda- málum. Bréfin mega vera nafnlaus eöa undir dulnefni. Utanáskriftin er: Sigtryggur Jónsson sálfræöingur, Álftamýri 3, 108 Reykjavík Kæri sálfræðingur. Ég hef lengi ætlað að skrifa þér eða leita til sálfræöings en það hefur ekki orðið af því fyrr en nú. Þannig er mál með vextí að ég fæ svona hræðsiuköst undir ákveðnum kringum- stæðum. Þessi hræösiuköst lýsa sér þannig að ég fæ ó- viðráðanlega þörf eða löngun til að komast út úr þeim að- stæðum sem ég er í. Þetta er ekki alltaf jafnslæmt en stundum verð ég stjörf eða það sprettur út á mér sviti, ég verð andstutt og hræösian grípur mig þeim heljartökum að ég verð að komast burt. Ég hef reynt að gera mér grein fyrir því hvers vegna þetta gerist en mér finnst eins og þetta sé ekki alltaf tengt sömu eða svipuðum aðstæð- um. Stundum gerist þetta þegar ég er til dæmis í lyftu eða í bíl, sérstaklega ef ég er aftur í tveggja dyra bíl, en það gerist þó ekki alltaf. Samt er mér illa við þetta hvort tveggja. Stundum get ég þó lifað þetta af tiltölulega auð- veldlega en stundum get ég það bara alls ekki og verð að komast út hvað sem það kostar. Stundum gerist þetta á mannmörgum stööum eins og í bíó, á balli eða á sam- komum fólks en stundum ekki og stundum gerist þetta þeg- ar ég er ein og stundum þeg- ar ég er með öðru fólki. í raun finn ég alltaf til beygs eða kvíða nema þegar ég er heima hjá mér. Þó að oft sé þetta ekki mjög sterkt þá finn ég að ég er smátt og smátt að loka mig af heima hjá mér. Ég er farin að finna alls konar afsakanir fyrir að fara ekki hingað og þangað sem ég þarf að fara eða er boðið að fara. Ég er með tvö lítil börn og nota það óspart sem afsökun. Eftir að þau fæddust og ég fór að nota það sem afsökun finn ég að þaö er að verða erfiöara og erfiöara að vinna gegn lönguninni til að sleppa við að fara á mannamót. Áður lét ég mig hafa það en nú finn ég að það er erfiðara. Þetta er því farið að hafa mikil áhrif á líf mitt og fjöl- skyldunnar allrar og maðurinn minn er farinn að þrýsta mjög á mig að gera eitthvað í mál- inu. Hann er sá eini sem ég hef talað um þetta við en mér finnst hann ekki skilja mig. Hann segir bara að ég verði að herða mig og bendir á að ef ég láti mig hafa það i nokk- ur skipti muni hræðslan ganga yfir. Mér finnst þetta ekki svo auðvelt. Eins og ég sagði er ég alltaf svolítið kvíðin, þó ég fái líka svona hræðsluköst. Mér finnst því að þetta hljóti að liggja eitt- hvað dýpra og að það þurfi meira til en bara að harka af sér. Líklega þarf ég að leita til sálfræðings en ég vildi samt prófa að skrifa þér fyrst og heyra hvað þú hefur að segja um þetta. Með fyrirfram þökk Lolla Kæra Lolla. Svona kvíöi og hræösla er njög algeng hjá fólki og miklu algengari en fólk yfirleitt býst viö. Það er þó misjafnt hversu mikil áhrif hann hefur á dag- legt líf fólks en margir lifa við þetta meira eöa minna alla ævi. Þaö er þó sama hversu mikil áhrif þetta hefur á dag- legt líf, þetta er alltaf ákveö- inn Akkilesarhæll og sjálfsagt aö fólk leiti sér aðstoðar viö því. Kvíöi í mismunandi mynd og af misjöfnum ástæöum er eitt algengasta viðfangsefni sálfræðinga og mjög oft gengur vel aö vinna bug á honum. Þaö er því sjálfsagt fyrir þig og alla þá sem eru í þinni stööu aö leita sér að- stoðar. Þaö er rétt hjá þér aö ég get ekki hjálpaö þér í gegnum stutt svar í blaði en ef til vill get ég létt eitthvað undir meö þér. ÖRLÍTIL SKILGREINING Slík kvíðaköst, sem þú lýsir, hafa verið til umfjöllunar inn- an sálfræðinnar frá uþþhafi hennar. Freud fjallaði mikið um þau og flestir eöa allir hans lærisveinar. Atferlis- sinnar hafa einnig fjallað mik- ið um þau og þeim hefur oft tekist vel uþp í meðferð viö kvíða. Freud leit svo á aö um bældar tilfinningar væri aö ræöa og þeim þyrfti aö ná upp á yfirboröið til að geta boriö kvíðann ofurliði en at- ferlissinnar líta á kvíða sem lært fyrirbæri sem hægt sé að aflæra. Meðferð beggja aðila mótast af hugmyndum þeirra. Nýrri hugmyndir ganga út frá því að hvort tveggja sé inni í myndinni. Þar sem mér finnst þær á- hugaveröar ætla ég í örstuttu máli að ræða þær. Flestir finna fyrir sínum fyrstu hræðsluköstum alger- lega að óvörum og eins og um þrumu úr heiðskíru lofti sé að ræða. Manni finnst þetta óskiljanlegt og finnur enga á- stæðu fyrir hræðslunni. Næsta hræðslukast kemur gjarnan við svipaðar aðstæð- ur og geta liðið dagar eða vik- ur á milli. Eftir tvö slík köst fer einstaklingurinn gjarnan óaf- vitandi að þróa með sér nýtt hegðunarmynstur sem ein- kennist af því að forðast að- stæðurnar. Eftir það getur slík hegðun leitt til þess að við- komandi fer aö tengja ýmsar aðrar aðstæður við hræðsluköstin og fer að forð- ast þær líka. Hegöunarmynst- ur viðkomandi fer þá meira og meira að einkennast af því að forðast. í stað þess að sækjast eftir einhverju í lífinu miðast lífiö viö að forðast það sem hugsanlega er slæmt í Iffinu. HUGSANLEGAR ÁSTÆÐUR Hugmyndir eru uppi um skýr- ingar. Daglegt líf okkar er yfir- fullt af alls konar aðstæðum sem leiða til streitu - bæði á jákvæðum og neikvæðum forsendum. Jákvæðar for- sendur geta verið til dæmis þjálfun líkamans, viðbrögð við hættum, að standa sig við á- hættusamar aöstæöur sem við sköpum viljandi eins og I tívolí og fleira. Neikvæðar for- sendur geta verið of mikil vinna, rangar vinnustellingar, óþarfa álag og fleira. Við streituaðstæður flæðir adrenalín um líkamann. Það eykst viö aðstæöur eins og þjálfun líkamans, þegar við veröum æst, þegar við miss- um stjórn á skaþi okkar og þegar viö verðum hrædd. 26 VIKAN 17.TBL. 1993

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.