Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 8
VOLVUSPAIN 1995
þó úr öðrum þeirra þegar líð-
ur á kjörtímabilið.
Innan R-listans munu
koma lægðir í samstarfinu.
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur vegnar vel í borgarstjóra-
starfinu þótt hún eigi oft eftir
að þurfa að bíta á jaxlinn
þegar að henni verður vegið.
„Hún er dugleg og heiðarleg
kona sem býr yfir mikilli hlýju
og skoðar málin ofan í kjöl-
inn,“ segir völvan. Þegar upp
verður staðið, fær Ingibjörg
Sólrún einkunnina alvöru-
manneskja en hún situr að-
eins þetta eina kjörtímabil í
borgarstjórastóli.
IÍMI JÓHÖNNU
KOMINN
Þjóðvaki, samtök Jóhönnu
Sigurðardóttur, vinna stór-
sigur þótt ekki verði hann
jafnstór og skoðanakannanir
undangenginna vikna gefa til
kynna. Kjósendur fagna
stefnu sem miðar að jöfnun
lífskjara, jafnrétti kynjanna
og minni skattbyrði láglauna-
fólks. Þeir flykkja sér um Jó-
hönnu og tryggja samtökum
hennar öruggt fylgi. „Þeir
háu herrar, sem eru hræddir
við hana núna, eiga eftir að
verða hræddari," segir völv-
an. „Jóhanna er rétt að
byrja. Hún á þó eftir að kom-
ast illilega upp á kant við
fylgismann fljótlega eftir
kosningar og þá verða há-
værir hurðaskellir. Mér sýnist
þetta helst vefa vegna
ósættis í sjávarútvegsmál-
um.“
Tillögur Framsóknarflokks-
ins um átak í atvinnumálum
og lífskjarajöfnun skila
Halldór á eftir aó virka sannfærandi á
kjósendur.
flokknum öruggu fylgi. Völv-
an segir að þótt loforðin séu
gamlar lummur finnist henni
Halldór Ásgrímsson ná að
virka sannfærandi á kjós-
endur með sínum rólega stíl
og aukna sjálfs-
öryggi.
Völvan sér fylgi
Framsóknar-
flokksins aukast
mikið og styrk
hans fara vax-
andi frá því sem
verið hefur að
undanförnu.
Þjóðvaki Jó-
hönnu og Fram-
sókn verða því
sigurvegarar
kosninganna.
„Ég fæ ekki betur
séð en að þessir
tveir flokkar eigi
eftir að verða
fyrstir til stjórnar-
myndunarvið-
ræðna. En Sjálf-
stæðisflokkur á
líka eftir að reyna
að koma Fram-
sókn til við sig,“
segir völvan.
„Skipan ráð-
herra veldur
óánægju og mér sýnist ein-
hverjir stjórnmálamenn berja
hraustlega í borðið vegna
þessa og jafnvel hafa í hót-
unum um að snúa baki við
þingflokknum,“ segir völvan.
AFHROÐ
ALÞÝÐUFLOKKS
Sjálfstæðisflokkur missir
nokkur þingsæti en bíður
engan hnekki. Alþýðubanda-
lag missir tvo til þrjá menn.
Völvan segir Kvennalista
skaðast af framboði Þjóð-
vaka. Kvennalisti gæti misst
mann og jafnvel annan.
Alþýðuflokkur geldur al-
gert afhroð í kosningunum
og fer verst allra flokka út úr
þeim. Þar neyðast menn til
þess að viðhafa mikla nafla-
skoðun eftir kosningarnar
þar eð rústirnar einar verða
eftir.
Mikill öldugangur verður í
fremstu röðum Alþýðuflokks
og breytingar verða á forystu
flokksins. Völvunni sýnist
Jón Baldvin fara frá sem for-
maður flokksins, jafnvel fyrir
kosningar. Hans bíði þá álit-
legt embætti vestanhafs.
Ummæli Guðmundar Árna á
prenti um tilteknar persónur
eiga líka eftir að draga dilk á
eftir sér.
[ stað Jóns Baldvins kem-
ur inn ung stjórnmálamann-
eskja sem reynir að byggja
upp baráttuvilja innan flokks-
ins og endurreisa það sem
brotið hefur verið niður.
Þær breytingar, sem
verða á fylgi flokkanna úti
um landið, koma skýrast
fram á Vesturlandi og þar
verður fólk ánægðast með
útkomuna. Austfirðir koma
síst út úr kosningunum hvað
þetta varðar.
SPILLING í
STJÓRNSÝSLU
Rannsóknir á öllum svið-
um þjóðlífsins einkenna árið
1995, ekki síst rannsóknir
á spillingu í stjórnsýslu. Urg-
ur og uppreisnarhugur er í
fólki vegna heimatilbúinnar
kreppu, skattpíningar og
kaupmáttarskerðinga. Fólki
er farið að leiðast úrræða-
ieysi hinna háu herra og
ákveðinn vilji er hjá almenn-
ingi til þess að hafa meiri af-
skipti af sínum málum og
taka sameiginlega á vand-
anum sem við blasir. „Allt of
mikið hefur verið falið fyrir
okkur, en það mun fljótt
heyra til liðinni tið,“ segir
völvan.
Siðvæðingin f íslenskum
stjórnmálum heldur áfram á
árinu. Almenningur er farinn
að gera kröfu um aðhald og
gerir sér nú grein fyrir því að
hann hefur ekki aðeins völd
til að ráða menn til starfa,
heldur einnig til að koma
þeim frá.
Þrír stjórnmálamenn verða
teknir fyrir á árinu og verk
þeirra rannsökuð til hlítar.
Einn þeirra fer frá í kjölfarið
þar eð honum
verður ekki vært
lengur eftir að upp
um hann kemst.
Mesta rótið varð-
andi þá rannsókn
er f aprílmánuði.
Þetta mál verður
litlu fegurra en
mál Guðmundar
Árna og mörgum
er Ijóst að málið
stefnir í óefni en
þora ekki að beita
sér.
Völvan segist
sjá frekari rann-
sókn beinast að
ákveðnu ráðu-
neyti. Hún kveðst
örlítið leið yfir því
að þar hafi mikil
ósanngirni átt sér
stað; feluleikur,
eitthvað sem þarf
að koma fram í
dagsljósið. „Þetta
verða ekki alveg
bestu mál að
lenda í en það er engin
spurning um að þetta mun
gerast,“ segir hún. „Embætt-
ismenn verða heldur ekki
stikkfrí til eilífðar, ekki aldeil-
is.“
Starfsemi hins svonefnda
Smokkfisks, Kolkrabbans og
fleiri afla undir yfirborðinu, á
eftir að koma eftirminnilega
fyrir augu almennings á ár-
inu. Átök risanna verða sýni-
legri og bolabrögð þeirra og
óvægin vinnubrögð í valda-
baráttunni eiga eftir að valda
hneyksli.
FÍKNIEFNI OG
FORVARNIR
Eins og áður segir verður
1995 ár rannsóknar og tekið
verður til í hverju skúma-
skoti. Stungið verður á stór-
um kýlum, meðal annars
flett ofan af fíkniefnahring og
í Ijós kemur að stórlaxar
tengjast þar fjármögnun.
Völvan verður nú óttaslegin
og segist varla þora að segja
frá því sem henni er sýnt.
Nokkrir aðilar hafa þegar
týnt lífi fyrir atbeina hrings-
ins. „Ég hefði viljað að þetta
mál færi lengra en mér sýn-
ist jafnvel verða lokað á það
áður en við fáum fullan botn
í það. Svo er ég hrædd um
8 VIKAN 12. TBL. 1994