Vikan


Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 16

Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 16
JOLAHALD Erlend áhrif hafa ekki einungis sett mark sitt á jólin hér heima. Þúsundir íslend- inga búa i útlöndum og á heimilum þeirra bland- ast oft erlendir jólasiðir við þá íslensku. M TEXTI: SVAVA JONSDOTTIR EIGINMAÐURINN OG ÆTTINGJAR HANS ERU MÚHAMEÐSTRÚAR Ræðismaöur íslands í Amm- an í Jórdaníu, Stefanía Reinhardsóttir Khalifeh, hef- ur búið þar í tólf ár. Hún hef- ur einunpis einu sinni haldið jólin á Islandi frá því hún fluttist út og segir að sér finnist vera heldur kalt og dimmt í desembermánuði hér á landi. Engu að síður segist hún óska þess að það væru hvít jól í Jórdaníu en í jólamánuðinum er þar yfir- leitt átta til tuttugu og tveggja stiga hiti. Stefanía og sonurinn Arnar Qais á jólunum í fyrra. Jólabókin aó heiman er mesta tilhlökkunarefniö. Arnar Qais úti á túni áöur en haldió var á jólaball. Hjá níutíu prósent þjóðar- innar eru jóladagarnir eins og aðrir dagar en þó er hefð fyrir því að fólk af múhameðstrú heimsæki kristna vini og nágranna á jólunum til að óska þeim gleðilegra jóla. Jafnframt heimsækja þeir kristnu fólk sem er múhameðstrúar á þeirra hátíðum. Tíu prósent þjóðarinnar eru því kristin en ákveðin jólastemmning er í borginni og verslanir eru skreyttar. Útlendingar halda auk þess upp á jólin og messur eru fyrir þá kristnu. „Það er ekki mikill undirbún- ingur fyrir jólin á mínu heim- ili,“ segir Stefanía. „Við kon- urnar frá Norðurlöndunum höldum basar í desember og þá bökum við smákökur og piparkökur og búum til jóla- skraut. Jólaundirbúningurinn hefst því á starfinu fyrir þennan basar. Einnig höld- um við Lúsíuhátíð og þá bökum við piparkökur og lúsíubollur og ég baka þá fyrir heimilið í leiðinni. Ég skreyti heimilið fyrr en tíðk- ast á íslandi, eða eftir fyrstu vikuna í desember. Það geri ég til að gera jólin lengri. Eft- ir gamlárskvöld tek ég svo jólatréð niður.“ Stefanía og eiginmaður hennar eiga fimm ára gaml- an son og áður en hann fæddist var haldið upp á jólin á aðfanga- dag. Eiginmaður- inn á afmæli á jóladag og fyrir fæðingu yngsta fjölskyldumeð- limsins var van- inn að halda upp á afmælið á jólanótt. „Jólin eru hátíð barnanna og núna höldum við upp á jólin á afmælisdegi mannsins rníns," segir Stef- anía. Þrátt fyrir að eiginmað- urinn og ættingjar hans séu múhameðstrúar halda þau jólin hátíðleg fyrir Stefaníu. Þau koma til hjónanna á jóladag og hún eldar hangi- kjöt frá íslandi með öllu til- heyrandi og kalkún og í eftir- rétt er hrísgrjónagrautur með möndlu í. „Ég reyni að halda þá jólasiði sem ég ólst upp við. Manninum mínum finnst það notalegt. Við syngjum öll jólalög og það er alltaf einn úr fjölskyldunni sem leikur jólasvein. Einn frænd- inn er vinsæll í það hlutverk vegna þess að hann spilar á gítar.“ Stefanía segir að það sé sama hvar í heiminum fólk sé, það sé alls staðar lagt eins mikið upp úr jóla- gjöfum og hér á Islandi. „Ég fæ alltaf sendar bækur að heiman og það er kærkomn- asta gjöfin. Ég hlakka alltaf til að fá jólabókina að heim- an og í raun er það mesta til- hlökkunarefnið." JÓLIN HÁTÍDLEGUST Á ÍSLANDI Vesturheimur hefur heillað margan manninn og ís- lendingar eru þar engin undantekning. Steinn Logi Björnsson er einn þeirra sem starfsins vegna hefur flutt sig vestur um haf. Hann gegnir stöðu svæðis- stjóra Flugleiða í Banda- ríkjunum og hann hefur áð- ur búið f útlöndum til lengri eða skemmri tíma. Sem unglingur var hann skiptin- emi í Bandaríkjunum í eitt ár, síðan var hann þar námsmaður í fjögur ár, hann bjó í Þýskalandi í rúm fimm ár og síðastliðið ár hefur hann búið í Col- umbia, sem er mitt á milli Baltimore og Washington. „Við hjónin eigum þrjú börn og þegar við fluttum út ákváðum við að halda jólin úti að íslenskum sið. Svo erum viö alltaf á ís- landi um áramótin. í lok nóvember, eftir Þakkar- gjörðarhátíðina sem er önnur mesta hátíð ársins hér í Bandaríkjunum, er byrjað að skreyta verslanir og opinbera staði. Við byrj- um hins vegar á undirbún- ingnum þremur til fjórum vikum fyrir jól og konan bakar tvær til þrjár smá- kökutegundir. Húsið er skreytt og við setjum jóla- tréð upp tveimur vikum fyrir jól en Bandaríkjamenn eru vanir að skreyta það á jóla- dag. Á jólunum hlustum við á íslenska, bandaríska og þýska jólatónlist. Á að- fangadagskvöld boröum við gæs en á jóladag er hangikjöt að heiman á boö- stólum og við drekkum meö matnum bland, malt og 16 VIKAN 12. TBL. 1994
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.