Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 73
Hér sýnum við ýmsar
hugmyndir að jóla-
föndri sem vinna má
síðustu dagana fyrir jól.
Þessar hugmyndir er einfalt
að útfæra, margt föndurefnið
eigum við í handraðanum en
annað má kaupa í föndur-
verslunum. Hér er boðið upp
á jólahekl, jólasveina af
tvennum toga, engla, smá-
hluti unna úr vaxreimum og
skrautlega jólapakka. Gefið
ykkur stund til að setjast nið-
ur með börnunum og styttið
tímann til jólanna saman
með því að hafa skemmtileg
verkefni milli handanna.
JÓLAKERLING OG
KARL
Kerling og karl eru fljót-
gerð og munu börn frá 8 ára
aldri vel ráða við að búa þau
til.
ÁHÖLD OG EFNI: Skæri,
títuprjónar, föndurlím, nál og
tvinni. Klósettpappírshólkur,
stór frauðkúla, tvær litlar
frauðkúlur og undirstaða
(fyrir karl). Prjónastroff, fílt,
gervihár, bjöllur, kústur og
krans.
Allt efnið fæst í Litur og
Föndur, Skólavörðustfg.
SKÝRINGAR: Kerling er
frauðkúla klædd með prjóna-
stroffi. Dragið tvinna í lykkjur
í hálsmáli og festið. Látið
rúllast upp á stroffið í hinn
endann svo það myndi stoð
undir kúluna. Strekkið húðlit-
aðan bút af prjónastroffi á
litlu kúluna og festið með
títuprjónum. Klippið til augu,
kinnar og munn úr filti og
límið við.
Festið hárið með títuprjón-
um og dragið húfuna yfir.
Dragið tvinna í endann á
húfunni og festið bjölluna.
Brjótið saman litla búta af
húðlituðu stroffi og setjið í
endann á mjóa stroffinu sem
myndar handleggina. Festið
það við bolinn með títuprjón-
um. Klippið til hvítt filt í
svuntu og kraga. Límið höf-
uðið við bolinn og kústinn við
hendina.
Karl er gerður á sama hátt
en klósettpappírshólkur not-
aður í stað kúlunnar. Klæðið
neðri hluta hólksins með ein-
litu stroffi og efri hlutann
með röndóttu. Festið hand-
leggina á bakið og klippið til
vesti og smeygið yfir. Festið
með títuprjóni að framan.
Annað er gert eins og á
kerlu.
JÓLASVEINAR ÚR
BANDI
Jólasveinarnir eru afar
einfaldir og geta yngstu
börnin hjálpað til. Efnið eiga
flestir heima hjá sér og má
benda á að ekki þarf endi-
lega að kaupa filt eða gervi-
hár heldur má notast við efn-
isafganga og bómull.
EFNI OG ÁHÖLD: rautt
band, hvítt og rautt efni eða
filt, bómull eða gervihár.
Tússpennar, skæri og bútar
af þykkum pappa.
SKÝRINGAR: Klippið til tvo
búta af þykkum pappa, 10
sm og 13 sm á lengd. Vefjið
bandinu utan um en það fer
eftir þykkt bandsins hversu
oft. Prófið ykkur áfram.
Smeygið bandinu af papp-
anum, 10 sm hönkin eru
handleggirnir en 13 sm
hönkin er bolur og fætur eða
pils. Hnýtið utan um báða
enda styttri hankarinnar og
um annan enda hinnar.
Smeygið styttri hönkinni inn-
an í þá lengri og hnýtið mitt-
ið. Nú skal klippa upp í end-
ann ef gera skal pils, en
skipta í tvo hluta og hnýta ut-
an um ef gera skal fætur.
Þræðið band í gegnum höf-
uðið til að hengja upp jóla-
sveinana. Klippið til filt í and-
lit og húfu. Límið andlit og
hár eða skegg og húfuna ut-
an um bandið. Teiknið andlit
að lokum.
MÚSASTIGI OG
POPPKORNSLENGJUR
Þetta hvorutveggja er auð-
velt að gera með yngstu
börnunum. Músastiginn er úr
kreppappír og er þetta gam-
alkunnugt jólaskraut.
SKÝRINGAR: Pappírinn er
klipptur í lengjur, en breiddin
má vera allt frá 2 sm til 5 sm.
Mjórri lengjur má hengja á
jólatré en þær breiðari í loft
og glugga. Endarnir eru límdir
saman svo strimlarnir myndi
rétt horn. Þá eru þeir lagðir til
skiptis hvor yfir annað og
klemmur notaðar til að halda
þeim í skefjum. Endarnir eru
svo límdir saman að lokum.
Poppkorn, þrætt á tvinna,
er skemmtilegt jólatrésskraut
jafnt inni sem úti. Smáfugl-
arnir munu þá njóta jólanna
með okkur.
12. TBL. 1994 VIKAN 73
JÓLAFÖNDUR