Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 67
Það styttist til jóla. Þeir
duglegu eru löngu
búnir að öllu og eru á
höttunum eftir einhverju til aö
drepa með tímann síöustu
dagana fyrir jól. Hér á síðun-
um fá þeir ýmsar hugmyndir
að jólaskrauti og skreytingum,
bæði stórum og smáum, sem
þeir geta dundað sér við að
afloknum vinnudegi. Ef ein-
hverjir hafa enn ekki lokið
hefðbundnum jólaundirbún-
ingi er um tvennt að velja -
sleppa því, sem er ekki bráð-
nauðsynlegt, til þess að geta
notfært sér hugmyndir okkar
eða, ef það ekki er hægt,
gleðja sig við tilhugsunina um
að fyrir næstu jól muni þeir
hafa tíma til að föndra svolítið
meira og grípa þá að sjálf-
sögðu til Vikunnar góðu.
Það er Svana Jósepsdóttir
sem heiðurinn á af þeim fal-
legu jólaskreytingum sem hér
birtast myndir af. Svana er
búsett á Akureyri. Hún hefur
starfað við kennslu og unnið í
blómaverslunum á Akureyri
um árabil og auk þess haldið
mikið af námskeiðum, meðal
annars leiðbeint áhugasöm-
um um jólaskreytingagerð
bæöi á Akureyri og í Reykja-
vík. Svana hefur ávallt haft
mikinn áhuga á list og það er
ekkert vafamál að skreytingar
hennar eru sannkölluð lista-
verk. í þeim kennir margra
grasa og hugmyndaauðgin er
mikil. En það býr áreiðanlega
svolítill listamaður í okkur öll-
um. Hafi hann ef til vill fengið
sér smáblund er fullvíst að
hann vaknar nú upp við það
eitt að skoða myndirnar af
verkum Svönu. Gætið þess
aðeins að halda nú ekki aftur
af þessum listamanni heldur
hvetjið hann til dáða! □
Hverjum hefói getaó dottió í hug aó ósköp venjuleg brauó
gætu oróió svona jólaleg? En reyndar er hér meira á feró-
inni en brauóin. Fyrst af öllu veróum vió aó ákveóa hvers
konar undirstöóu á hafa i skreytingunni sem hentar vel í
eldhús eóa í boróstofu. Flöt karfa meó haldi hefur oróió
fyrir valinu, en annars konar körfur eóa jafnvel brauó-
bretti úr tré gætu líka hentaó ágætlega. Næst er aó
velja sér brauó. Þeir duglegu baka auóvitaó brauóin
sjálfir, hinir skjótast bara út í næsta bakarí og kaupa fal-
legt brauó, til dæmis fléttubrauó. Þaó liggur í hlutarins
eóli aö stærö brauósins veróur aó vera í samræmi vió körf-
una eóa undirstöóuna. Þaó má nota snittubrauó, langloku-
brauó jafnvel rúnnstykki. Sem sagt hvað sem er. Brauóió er
látió liggja á mióstöóvarofni þar til þaó er oróió þurrt
og hart og síóan er þaó lakkaó. Ávextirnir í
skreytingunni eru gerviávextir en í staó þeirra
mætti velja náttúrulega ávexti sem ekki
myndu láta á sjá þann tíma, sem skreytingin
á aó endast. Sveppirnir eru gervisveppir en
appelsínusneióarnar, sem liggja á bastinu
framan vió körfuna, eru raunverulegar, en
þurrkaóar. Haustlaufin hefói mátt
taka úr eigin garói ef hugsaó
hefói verió fyrir því i
tíma. Þetta eru
hins vegar gervi-
lauf. Köflótta
slaufan og boró-
inn setja fal-
legan svip á
skreytinguna.
12. TBL 1994 VIKAN 67
JÓLASKREYTINGAR