Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 77
Við höfum haldið jólin
hátíðleg á mun hóf-
samari hátt fyrr á
tímum en nú gerist. Gott
þótti hór áður fyrr að fara í
bað um jól, borða sig mettan
og eignast kannski nýja flík,
kerti og spil. Þá fór enginn í
jólaköttinn. En væru börnin
ekki þæg á hátíðastundum
var þeim hótað Grýlu og
börnunum hennar jólasvein-
unum, þeim stríðnu og þjóf-
óttu körlum. Oftast eru þeir
taldir annaðhvort 9 eða 13
og bera mörg og ólík nöfn
(80 nöfn eru þekkt). Þekkið
þið þessi jólasveinanöfn?
Faldafeykir, Flotnös, Flór-
sleikir, Guttormur, Kleinu-
sníkir, Lungnaslettir, Svarti-
Ijótur og Steingrímur.
Þeir siðir og venjur, sem
við þekkjum nú, eiga sér
ekki langa sögu í menningu
okkar hér á Fróni. Jólatré og
jólaskraut verður fyrst þekkt
í núverandi mynd snemma á
þessari öld. En útlit og hátta-
lag jólasveina breytist fyrir
áhrif hins góða St. Nikulásar
og þá verða þeir rauð-
klæddir. Breytingin er
afleiðing aukinna
umsvifa í verslun
og meiri kaup-
máttar almenn-
ings. Að gleðja
ættingja og
vini með jólagjöfum fer að
aukast eftir miðja 19. öld, en
þá varð mikil fjölgun sölu-
búða eftir að verslunarfrelsi
komst á 1855.
Fyrsta jólagjafaauglýsing-
in birtist 1866 í Þjóðólfi og er
með öðru móti en nú þekk-
ist. Þar auglýsir hið Eng-
elska og útlenda Biblíufélag
að ekkert sé betur lagað til
jóla- og nýársgjafa börnum
og unglingum en hið ís-
lenska Nýa Testamenti.
Jókst svo með ári hverju að
kerti og spil, bækur, glys-
varningur og hagnýtir hlutir
voru auglýstir til gjafa.
Jólatré eru eitt helsta tákn
jólanna um heim allan. Fram
yfir síðustu aldamót þekktust
þau ekki nema hjá efnuðu
fólki sem bjó í rúmgóðum
húsakynnum. Snemma á
öldinni eykst sala á jóla-
trjám. I fyrstu voru þau oft
gerð úr sterkum vír og vafin
klipptum kreppappfr eða
gerð úr prikum og þá vafin
lyngi, oft sortulyngi eða eini.
Þau voru skreytt kertum og
ýmsu heimagerðu
skrauti. Almenn sala
á jólatrjám hefst eftir
1940 og fyrsta, er-
lenda, stóra jólatréð
er gjöf frá Osló-
borg 1952. □
Hárgreiðslustofa
U
Bleikjukvísl 8, Sími 673722
OPIÐ MÁNUD. - FÖSTUD. KL. 9-18.
LAUGARD. KL. 10-14.
Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík
sími: 39990
Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari,
Ásgerður Felixdóttir
Lilja Jóhannsdóttir
Halla Rúna Ólafsdóttir
HARSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 0 62 61 62
kunsl
RAKARA- á HAR^mSCOfSTDFA
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVlK
X
ANDLITSBOÐ/
HÚÐHREINSUN
M.D. Formulations ávaxtasýrumeðferð,
áhrifamesta húðmeðferðin sem
kostur er á í dag.
Handsnyrting - Fótsnyrting
Vaxmeðferð - litun o.fl.
Gjafakort - góð gjöf fyrir alla
Borgarkringlunni, 4. hæð,
norðurtum, sími 568 5535 Ath* kvöldtímar á fimmtudögur
12. TBL. 1994 VIKAN 77
NAFNSPJOLD