Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 25
TRUÐ-
URINN
Fyrir jólin gefur Hörður
Torfason út snælduna
„Barnagaman" og geisla-
diskinn „Áhrif“. Á honum eru
ellefu lög og er Hörður höf-
undur bæði laga og texta.
Hann vann við gerð geisla-
disksins í á annað ár og hóf-
ust upptökur um síðustu ára-
mót og lauk þeim í septem-
ber. Öll lögin eiga sér sögu
og fjallar „Trúðurinn“ um nú-
tímamanninn. „Fólk í dag er
alltaf hlæjandi og í hressu
skapi,“ segir Hörður. „í stað
þess að vera einlægt felur
það tilfinningar sínar. Það
reynir að ganga í augu ann-
arra og þegar horfst er í
augu við þetta fólk sér mað-
ur eymd og sársauka.“
JAZZ
ME UP
Hljómsveitin Bong, sem
skipuð er þeim Eyþóri Arn-
alds og Móeiði Júníusdóttur,
er að gefa út sinn fyrsta
geisladisk. Nefnist hann
„Release“, á honum eru tólf
lög og sömdu þau Eyþór og
Móeiður bæði lög og texta.
Eyþór segir að lagið „Jazz
me up“ sé elsta lagið á disk-
inum en þau sömdu það
fyrir tveimur árum.
„Ævafornt," segir hann.
„Og það á sér sögu.“
Þrátt fyrir aldurinn hefur lag-
ið ekki verið gefið út áður og
upphaflega var það hraðar.
Eyþór er ánægður með nýju
útgáfuna. „í laginu er bland-
að saman „jazz-elementi“ og
rappeigindum. Það krefst
þess að ég spili á þrjú hljóm-
borð á tónleikum og á útgá-
futónleikunum leið mér eins
og kolkrabba. Þetta er ævin-
týralag og gæti kallast á ís-
lensku „Hresstu mig við“.
Textinn er allt að því trúar-
lega væminn og mjög já-
kvæður. Hann fjallar um litla
ferð gegnum undarlegar
lendur neonljósa."
QDra tHðWB
Verk eftir Fauré, Schu-
mann, Beethoven og
Shostakovich eru á geisla-
diski þeirra Bryndísar Höllu
Gylfadóttur sellóleikara og
Steinunnar Birnu Ragnars-
dóttur píanóleikara. Þær
hafa spilað saman síðastlið-
in tíu ár og eftir vel heppn-
aða tónleika á síðasta ári
ákváðu þær að gefa út
geisladisk með sama efni.
„Tónskáldin eru öll snillingar
á sinn hátt,“ segir Bryndís
Halla en verkið „Aprés un ré-
ve“ eftir Frakkann Fauré,
sem samið var í kringum
1876, er eitt af hennar uppá-
haldslögum. „Ég er búin að
halda upp á þetta lag síðan
ég var fjórtán ára og það
hefur alltaf fylgt mér. Það er
mjög skemmtilegt að spiia
það og mór finnst eins og
það hafi verið samið fyrir
mig. Það er dreymandi og
sorglegt og er um mann-
eskju sem vaknar eftir að
hafa dreymt um ástina. Hún
gerir sér grein fyrir því að
þetta var allt saman draumur
og finnur fyrir vonbrigðum og
sorg."
12. TBL. 1994 VIKAN 25