Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 11
að framið verði óhugnanlegt
morð. Ég er ekki viss um að
það tengist þessum hring en
það tengist ótvírætt einhvers
konar glæpastarfsemi.“
Þá sér hún átök á heimili í
Reykjavík enda með skelf-
ingu og verða tilefni mikillar
umræðu um ofbeldi á heimil-
um - og um það hve fjár-
hagsvandi heimilanna sé
farinn að eiga sér Ijótar
skuggahliðar. Umræðan
verður langvarandi og æ op-
inskárri.
„Því miður er ekkert að
draga úr afbrotum og of-
beldi. Innbrotsþjófar munu
þvert á móti gerast enn djarf-
ari og illskeyttari. Okkur á
eftir að hrylla við fréttum af
ofbeldi," segir völvan þung-
búin. Fórnarlömb ofbeldis og
aðstandendur þeirra munu
láta meira til sín heyra en
nokkru sinni fyrr. Vegna
óánægju með hversu vægt
löggjafarvaldið þykir taka á
afbrotamönnum verður í
sviðsljósinu stofnun „heima-
varnarliðs" almennra borg-
ara í vissum hverfum.
Nýjar áherslur í forvörnum
eiga eftir að skila unglingun-
um okkar miklum árangri.
„Meðan við erum svona fá
getum við tekið á fíkniefna-
vandanum af festu og ör-
yggi,“ segir völvan. „Málið er
einfaldlega að standa upp
og gera það, en ekki tala
hver í sínu horni. Við eigum
að hjálpa þeim sem hafa
villst inn á þessa braut, þetta
er ekkert verra fólk en ég
eða þú. Við megum ekki
missa einn einasta mann í
þetta. Veitum þeim hjálp,
það er hægt.“ Hún bætir við:
„Ég er látin vera svo ákveðin
hérna, það er ýtt á bakið á
mér.“
Sá árangur sem næst í
forvörnum með samstilltu
Mikil átök veröa í kringum
sölu banka - en þaö hefur
sinar jákvæöu hliöar.
Ólafur Ragnar veröur
ekki ánægöur meö
kosningaúrslitin.
átaki allra landsmanna
mun skila svo undra-
verðum árangri að
hróður okkar berst
langt út fyrir landstein-
ana.
ÁTÖK OG
BARÁTTA
Völvan segir baráttu
Sophiu Hansen Ijúka á
næsta ári. Þessi bar-
átta og útkoma hennar
hefur lagst mjög þungt
á völvuna og hún óttast
að nú fari að gæta
meira ofbeidis í málinu.
Henni verður stirt um
stef þegar hún segir:
„Ég fæ ekki séð að telpurnar
komi heim til Sophiu en við
megum ekki gefa upp von-
ina um farsælan endi þessa
máls. Vonandi bænheyrir
Guð okkur.“
Völvan sér tvær litlar flug-
vélar farast á næsta ári.
Hún er full hluttekningar
þegar hún skýrir frá því að
talan þrír hafi birst henni í
því sambandi og að henni
sýnist annað slysið verða
vegna óveðurs.
Mikil barátta brýst út milli
tveggja stórverslana og
verður nýjum brögðum beitt.
Reynt verður að hafa veikari
aðilann undir og vegið hat-
rmmlega að honum í
þeim tilgangi. Sá aðili
þarf að leggja mjög
p, hart að sér til þess að
standast aðförina.
Á árinu loka margar
gamalgrónar verslanir
og aðrar spretta upp.
Alltaf finnast ofurhugar í
þessu samfélagi sem
a sig geta gert betur. í
iglunni á eftir að eiga sér
5 ör breyting. Samkeppni
á eftir að aukast í verslun á
árinu, til hagsbóta fyrir neyt-
endur.
Guömundur Arni á eftir aö glíma
viö forystumenn eigin flokks eigi
síöur en annarra . . .
Ingibjörgu Sólrúnu vegnar
vel í borgarstjóraembættinu
-en . . .
ATVINNUVONIR OG
FJÁRHAGUR
Atvinnuástand batnar ekki
að ráði fyrr en síðari hluta
árs eða í byrjun árs '96. Þó
verður um mikla aukningu
að ræða í húsbyggingum.
Þessi aukning á sér stað um
eða upp úr miðju ári.
Ný atvinnutækifæri koma
fram á sjónarsviðið þegar
tvö stórfyrirtæki taka til
starfa. Raforkusala úr landi
Þjóö í örum vexti .. .
Útvarps-
rekstur f
kröggum.
Veröur mesta kaupmáttaraukningin hjá
bændum?
Hróöur íslend-
inga vegna
framgöngu í
forvarnar-
starfi á eftir
aö berast
víöa.
verður skoðuð fyrir alvöru á
árinu.
Samvinnuverkefni við út-
lönd gefur atvinnuvon og
fljótlega á árinu er þess að
vænta að erlendir fjárfestar
veiti fjármagni inn í (slenska
veltu. Það verður vegna
verkefnis sem hefur verið
lengi í deiglunni og á eftir að
koma okkur mjög til góða.
12. TBL. 1994 VIKAN 1 1
VÖLVUSPÁIN 1995