Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 90
KYNFERÐISMAL
JULIE AMIRI STUNDAR
BÚÐAHNUPL TIL ÞESS
EINS AÐ VERA HANDTEKIN
FÆR AÐEIN
IFANGAKLEF..
„Það, sem ég fæ mest út úr því aó vera handtekin, er þegar
lögreglumennirnir eru haröhentir viö mig.“
Mjög strangt eftirlit og öryggisveröir eru stöö-
ugt á varðbergi. Þeir eiga skiliö aö fá 10 í ein-
kunn.
GERÐUR
KRISTNÝ
Br
€
reska húsmóðirin,
■Julie Amiri, fær að-
eins fullnægingu í
PYUUI fangaklefa og stundar því í
sífellu búðahnupl til þess
eins að vera handtekin.
Julie hefur verið handtekin
yfir fimmtíu sinnum en þar
sem hún ber því alltaf fyrir
sig að eiga við fullnægingar-
vandamál að stríða hefur
henni verið sleppt við ákær-
ur.
Julie byrjaði að hnupla úr
búðum í neyð þegar hún bjó
með fyrrverandi eiginmanni
sínum en þau höfðu ekki
mikið á milli handanna.
„Eiginmanni mínum tókst
aldrei að fullnægja mér jafn-
í Woolworths hefur nýlega veriö ráöinn afskaplega
sakleysislegur öryggisvöröur. Hann fær 7 í einkunn.
vel þótt við elskuðumst
nótt og dag,“ segir Jul-
ie. „Ég var orðin 28 ára
þegar ég fékk það fyrst
og sat þá í lögreglubíl.
Lögreglan hafði fylgst
með mér um tíma og
þegar hún fann loks
ránsfeng í skottinu á bílnum
mínum var mér samstundis
ekið á lögreglustöðina. Á
leiðinni magn-
aðist hjartslátt-
urinn, adrena-
línið jókst og ég
fann fullnæg-
inguna hríslast
um mig. Það,
sem ég fæ
mest út úr því
að vera hand-
tekin, er þegar lögreglu-
mennirnir eru harðhentir við
mig. Ég geri mér far um að
vera sem ósamvinnuþýðust
þegar ég er handtekin svo
farið sé ógætilega með mig.
Ég drekk ekki áfengi en
stundum helli ég
gosi í bjórdós og
ek glannalega
um göturnar til
þess að vera
færð á lögregl-
ustöðina. Ég hef
líka kúbein í
skottinu á bíln-
um svo lögregl-
an haldi að ég sé innbrots-
þjófur."
Eins og gefur að skilja er
það hið versta sem komið
getur fyrir Julie þegar lög-
reglukona tekur á móti henni
á stöðinni.
„Þá finnst mér ég verða að
byrja aftur á byrjuninni. Hins
vegar bregst ekki að ég fái
fullnægingu í fangelsisklef-
Þaö er erfitt aö komast óséö út vegna hátækni þjófíi
varna. Ég gef versluninni 8 í einkunn af 10.
anum þegar karlmennirnir
taka á móti mér. Það er
þetta ógnandi andrúmsloft,
fallegu einkennisbúningarnir
og fólkið á stöðinni sem hafa
þessi áhrif á mig.“
Julie var ráðlagt að leita til
sálfræðings sem sérhæfir
sig í kynferðislegum vanda-
málum og hjá honum komst
hún að því að hún var ekki
ein um að finna fyrir kynferð-
islegri spennu við búðar-
hnupl.
„Ég stel ekki til að hagnast
á því. Það myndi stríða á
móti samvisku minni. Ég
skila til baka öllu því, sem ég
hnupla.“
Julie er orðin góð vinkona
lögreglunnar í hverfinu, sem
hún býr í, eftir að hafa verið
handtekin svona oft, og er
hæstánægð með það:
„Ég er alltaf kynnt fyrir nýj-
um lögreglumönnum sem
koma í hverfið. Ég hef því
miður aldrei farið út með
neinum lögreglu-
manni en ég
myndi hafa mjög
gaman af því.“
Julie er ekki
viss um að henni
takist nokkurn tím-
ann að breyta
þessari hegðun
sinni nema hún
öðlist hamingju með karl-
manni.
Hún býr með unnusta sín-
um sem hefur fullan skilning
á vandamáli hennar en einn-
ig á Julie þrjár dætur, á aldr-
inum fjögurra til fjórtán ára.
„Það eina, sem gæti kom-
ið mér til að hætta að hnupla
úr búðum, væri ef ég væri
dæmd til langrar fangelsis-
vistar. Það hefur enn ekki
gerst en ef ég þyrfti að horf-
ast i augu við slíkan dóm
myndi ég hugsa mig tvisvar
um áður en ég bryti aftur af
mér.“ □
90 VIKAN 12. TBL. 1994