Vikan


Vikan - 20.12.1994, Qupperneq 21

Vikan - 20.12.1994, Qupperneq 21
Fyrir sjö árum labbaði ég af tilviljun inn í Karnabæ í Austur- stræti og keypti plötu með hljómsveit sem ég vissi ná- kvæmlega ekkert um. Reyndar hafði ég séð ein- hvern krakkakór í sjónvarp- inu syngja í daufri birtu We don’t need no education. Þetta var sem sagt platan The Wall með Pink Floyd. Eftir það varð ekki aftur snú- ið. Ég var orðinn Pink Floyd- isti. Ferill minn sem slíkur náði hámarki fimmtudaginn 25. ágúst síðastliðinn þegar ég fór á Pink Floyd tónleika í Parken í Kaupmannahöfn. PARKEN FUNDINN Þegar ég hafði komið dót- inu mínu fyrir á hóteli, lagt mig aðeins og borðað hreint, alþjóðlegt Vesturlandasnarl; Mac-ostborga og franskar, áttaði ég mig á að ég hafði ekki hugmynd um hvar í borginni Parken var. Ég ákvað því að spyrja eina MacDonald’s dömuna til vegar, þótt ég hafi brennt mig illilega á að treysta upp- lýsingum frá fólki í einkenn- isbúningum. Án efa er fólk sem klæðist einkennisbún- ingi við vinnuna ekkert verra en annað fólk. Hún sagði mér að taka strætisvagn eitt eða sex hinum megin við götuna. Ég var ekki alveg viss um hvort það þýddi að engu máli skipti hvort ég tæki „eittuna" eða „sexuna", eða hvort hún myndi ekki hvorn vagninn ég ætti að taka. Að því komst ég reynd- ar aldrei því þegar út á stoppistöð kom var þar tæp- lega tveggja metra hár ná- ungi sem ég taldi vera á Heimir Viöarsson lýsir hijómleikum meö Pink Floyd. „Billeter kobes", stóð á litl- um, hvítum miða sem um- komulaus strákur á stoppi- stöðinni hélt á. Ég lét mig berast með straumnum út úr vagninum í átt að Parken- leikvangnum þar sem fólkið, sem myndaði strauminn, dreifðist á innganga eftir því hvort það var í sætum eða uppi í stúku. Þar sem ég átti merkt sæti í stúkunni lá mér ekkert á svo ég gekk aðeins um svæðið og skoðaði fólkið og sölubásana. Það kom mér mjög á óvart að ég hækkaði sennilega meðalaldur tónleikagesta um nokkur ár en er þó aðeins tuttugu og þriggja ára gamall. Pink Floyd er greinilega ekki hljómsveit sem byggir á fornri frægð heldur bæta þeir við kynslóðum jafnóðum og þær vaxa úr grasi. Þá var komið að því að fara inn. Eitt augnablik fannst mér ég vera kominn á skólaball á Broadway og feiti strákurinn við innganginn vera verzlódama sem káfaði á mér frá hvirfli til ilja. Hann var þó ekki að leita að áfengi heldur myndavélum og öðr- um upptökutækjum. slaginu þrjár mínútur yfir níu byrjuðu fyrstu tónar Shine On að hljóma. Þegar svo trommurnar komu inn féll ég í trans svo ég man ekki meira. Og lýkur svo frásögn þessari. Rétt fyrir níu byrjuðu há- talarnir að hita sig upp fyrir átök kvöldsins með þessum líka óhljóðum. Á Nei, nei, bara grín! Ég er ekki alveg sáttur við að kalla þetta tónleika, þetta voru ekki síður Ijósleikar. Ör- mjóir, grænir Ijósgeislar skut- ust um svæðið, eld-„sprengj- ur“ sprungu á sviðinu og yfir því var stór, hringlaga skjár sem undirstrikaði mátt lag- anna. Fyrir framan sviðið voru svo Ijósaskilti sem stundum rituðu texta lag- anna eða mynduðu [Equ- lazer - taktmæla, eða þann- ig]. Fremst stóð svo David Gilmour, gítarleikari, laga- höfundur, söngvari og sviðs- hönnuður svo fátt eitt sé nefnt. Tónleikarnir voru tvískiptir. Fyrir hlé var mest spilað af nýju plötunni, The Division Bell og Momentary Lapse of Reason, þeim tveim plötum sem Pink hefur gefið út eftir að bassaleikarinn og hug- myndasmiðurinn Roger Wat- ers hætti, að frátaldri Deli- cate Sound of Thunder sem er tónleikaplata frá 1989. Þó slæddist Time með og fyrri hálfleik lauk svo með laginu Einn góðan veðurdag (mun ég skera þig í litla bita), þar sem David Gilmour spilaði á „slæðu-gítar“ (ísl. þýðing mín á slide guitar) og svínið af Animals var blásið upp. Reyndar var það villisvín því Roger átti víst alisvínahug- myndina, þannig að hann tók hana með sér þegar hann fór. Eftir hlé má segja að hafi verið upprifjun fyrir eldri Pink Floyd-ista en þeir sem yngri voru fengu að heyra hvernig þeir voru í denn. Þeir byrj- uðu á Astronomy Domain sem Syd Barrett, gítar- leikarinn sem bilað- ist stuttu eftir að Pink varð fræg, samdi 1967. Síðan má segja að Dark Side of the Moon hafi öll verið spiluð fyrir utan Brain Damage og Eclipse sem Roger tók líka með sér þegar hann hætti. „PENINGAR" Það hefur lengi verið „þjóðtrú" að Pink-Floyd að- dáendur hati fátt jafnmikið og lagið Money. Ég get að sjálfsögðu aðeins talað fyr- ir sjálfan mig, það er ekki satt. Reyndar hefur það aldrei verið í neinu uppá- haldi hjá mér en eftir að hafa heyrt það og séð „læf“ frá fyrstu hendi mun verða breyting á. Það var, ég held að ég taki ekkert of djúpt í árinni þegar ég segi, meiri háttar upplifun. GÍTARLEIKARINN GILMOUR í laginu Comfortabiy Numb fór David Gilmour á kostum, sem gítarleikari í bezta gítarsólói sem ég hef á ævi minni heyrt, og er ég þó Gary Moore „fílari". Ef til er tónlistarleg fullkomnun þá var þetta hún. í þessu sama lagi birtist stór silfurkúla sem sendi Ijósdroparegn yfir svæð- ið.Ég velti fyrir mér hvar þessi kúla hefði verið geymd til þessa því silfur- kúlur fara ekki svo glatt framhjá manni, sérstaklega ekki ef þær eru tíu metrar í þvermál. Þegar svo lagið var búið slokknuðu öll Ijós á vellinum. Tónleikarnir voru á enda. Eða hvað? MEIRA, MEIRA Eftir mikil fagnaðarlæti birtust þeir aftur á sviðinu og tóku þrjú lög til viðbótar, öll af The Wall. Maður hafði á tilfinning- unni að þetta væru ekki „hefðbundin uppklappslög". Manni finnst slík lög eiga að vera hrárri og minna undirbúin en lögin á tón- leikunum sjálfum en þarna voru leysigeislarnir og allur Ijósabúnaður þaninn til hins ýtrasta, svona hálf- gerð rúsína í pylsuendan- um. Þá var fátt eftir, aðeins að koma sér út af vellinum og heim á hótel. Mér fannst ég hafa loksins náð ein- hverjum áfanga í lífi mínu, þeim áfanga að hafa séð Pink Floyd, mín goð, á tón- leikum. Ég efast um að ég þurfi að hafa mörg orð um hvað mig dreymdi um nóttina; PINK FLOYD. □ 12. TBL. 1994 VIKAN 21 HUÓMLEIKAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.