Vikan


Vikan - 20.12.1994, Side 84

Vikan - 20.12.1994, Side 84
SMASAGA SMASAGA EFTIR ELLINOR OBERG Hann kom alltaf of seint. Henni flaug f hug aö ef til vill myndi hann veröa óvenju seinn í dag vegna þess að hún hafði heyrt þaö í útvarp- inu aö vegirnir væru hálir. Og Gústaf var ekki þannig manngerö aö hann tæki miö af slíkum kringumstæðum og færi fyrr af stað aö heim- an. Umhugsun var ekki hans sterkasta hlið. „Hvenær kemur pabbi?“ spurði Bitten í tuttugasta og sjöunda skipti. Eftirvænting- in í rödd litlu stúlkunnar skar Connie í hjartað. Auðvitaö var þaö ágætt að börn áttu svona létt meö aö gleyma vonbrigðum, en þaö gerði þau jafnframt ennþá viö- kvæmari fyrir þeim næstu. Og Gústaf myndi valda dóttur sinni vonbrigðum aftur og aftur á saman máta og hann haföi valdið Connie von- brigðum. „Bráöurn," sagöi hún og vonaði aö það væri satt. Vonaði þaö vegna Bitten og einnig sjálfrar sín vegna. Eftir tæpan klukku- tíma átti hún að vera komin á sjúkrahúsið. Þau höföu glaðst yfir aö hún skyldi geta tekiö vaktina. Það var erfitt aö fá fólk á aðfangadag- skvöld. Þaö ætluöu allir eitt- hvert annað og hún hafði verið ánægö meö aö fá vaktina. Hún þarfnaöist pen- ÞU GLEYMDIR Litla stúlkan beið eftir því að faðir hennar kæmi og sækti hana. Þá gekk jólasveinninn fram hjá henni og hún kallaði á eftir honum. Þaö kom sér- stæöri atburðarás af stað ... Klukkan þrjú fór hún aö verða óróleg. Hann haföi lof- aö aö koma klukkan eitt, svo hún bjóst við að hann myndi láta sjá sig um tvöleytið. inganna og fyrst Bitten ætlaöi hvort sem var að vera hjá fööur sínum. . . En hvar gat hann verið? Þaö var aö minnsta kosti tveggja tíma akstur í bíl héöan til hvíld- arheimilisins þar sem Gústaf var læknir, meira í þessu veöri. Þau myndu örugglega boröa nokkuð snemma þar, þó ekki væri nema vegna barn- anna. Tvíburar Gústafs og Mónu voru reyndar aöeins þriggja ára. „Veit jólasveinninn örugg- lega aö ég er ekki heima, mamma?" spuröi Bitten áhyggjufull. „Veit hann ör- ugglega aö pabbi á heima úti í sveit og að ég er þar í kvöld?" „Já,“ sagöi Connie. „Hann hefur vitað þaö alveg síöan pabbi þinn flutti þangaö.“ „Nú, já,“ sagði Bitten. „En ég átti aö vera hjá pabba í sumar, en svo varö hann allt í einu aö fara til einhvers annars lands meö þessari hinni mömmu og þá varð ég bara aö vera hérna.“ Já, hugsaði Connie, þá varöst þú að vera hérna. í tveggja herbergja íbúö í hlið- argötu fullri af kyrrstæðum bílum, bensínfnyk og þungu lofti. Ásamt móöur, sem ann- aðhvort var aö læra, átti vakt á sjúkrahúsinu eöa var alltof þreytt. Elsku litla barniö mitt, hvers konar líf hef ég veitt þér? Hún leit á klukkuna. Hún varö að fara fljótlega. Eftir hálfa klukkustund varð hún að vera komin á sjúkrahúsið. Hún gat ekki hringt og af- boðað komu sína, því þau gætu ekki náö í neinn ann- an. Hvers vegna kom hann ekki? „Mamma, heldur þú að pabbi hafi gleymt þessu?" spuröi Bitten og Connie fann að nú komu gamlar, bitrar endurminningar fram í huga litlu stúlkunnar. Það kæmi mér ekki á óvart, hugsaði hún. En hún sagöi þaö ekki. „Viö getum komist aö því,“ sagöi hún og gekk aö símanum. Hún valdi númerið hans, og síminn hringdi lengi. Loks var honum ansaö og ergileg konurödd sagöi: „Já, halló, þetta er hjá Ol- sen lækni." „Móna," sagöi hún, „þetta er Connie. Ég ætlaöi bara aö spyrja hvort Gústaf væri lagður af stað aö heiman. Hann lofaði aö vera hérna um eittleytið og Bitten.. .“ „Vina mín, er hann ekki ennþá kominn?“ spurði röddin i simanum. „Hann fór héöan um hálftvöleytið, svo hann ætti því. . „Já,“ greip Connie fram í fyrir henni, „það ætti hann.“^ 84 VIKAN 12. TBL. 1994

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.