Vikan - 01.12.1996, Page 51
ÞÝTT OG ENDURSAGT: ÞÓRDÍS BACHMANN
Tískuhönnuðurinn Karl Lagerfeld, sem tískublaðafólk
kallar Karl keisara, kemur sannarlega til dyranna eins
og hann er klæddur í þessu viðtali sem hann átti við
þýskan blaöamann. Hann svarar nærgöngulum
sþurningum um yfirborðslegan tískuheiminn, kyn-
hneigðina, einmanaleikann, bernskuna og aðra tísku-
hönnuði sem allir fá það óþvegið.
- Þú sendir kvenfólkið út í
þröngum pínupilsum, plast-
kjólum og skóm með háum
hælum. Heldurðu að því líði
vel í þessu?
- Konu, sem tollir í tískunni,
líður alltaf vel.
- En það er ekki hægt að
ganga á þessum skóm.
- Jú, það kemst upp í vana.
- Hönnuðurinn Yohji Yama-
moto hefur sagt að hann
hanni föt á konur til að
vernda þær í karlaheimi sem
honum finnst ógnandi.
- Það finnst mér hroki. Ég
dái það sem Yamamoto gerir
og hann er góður tæknilega
en það, sem hann lætur út
úr sér, er stundum alger
hroði.
- Jean-Paul Gaultier kallar
konur, sem eltast við tísk-
una, „gæsir sem fá bestu
kæfu að borða og verða
veikar af henni. “
- Þetta er nú meira bullið.
Gaultier ætti ekki að tala
svona mikið. Fötin hans eru
betri en yfirlýsingarnar.
- Yves Saint Laurent fullyrðir
að maður geti lesið það,
sem honum er mest virði, út
úr sköpunarverkum hans:
Ást hans til kvenna.
- Já, en hann hefur aldrei
verið með konu.
- Áttu við vegna þess að
hann er hommi?
- Já, en ég hef ekki áhuga á
þess konar spurningum. Það
er liðin tíð að raða fólki niður
samkvæmt kynhneigð.
- / myndinni Prét-a-porter út-
skýrir Robert Altman muninn
á körlum og konum f tfsku-
heiminum á þennan hátt:
„Konur hanna föt á sjálfar sig
eða aðrar konur. Karlmaður
hannar föt á þá konu sem
hann langar í - eða á þá
konu sem hann langar til að
vera. “
- Djöf. . . della. Við þurftum
ekki að bíða eftir að Altman
segði okkur þetta. Þetta rugl
er það sem gerir þessa
mynd svo innantóma og leið-
inlega. Altman er bitur gaml-
ingi. Ég þekki hann vel.
Hann heimsótti mig og bað
mig að leika í myndinni.
Þegar ég hafnaði því bað
hann Robert de Niro. En
launin voru of lág fyrir de Ni-
ro.
- Coco Chanel talaði iíka af
lítilsvirðingu um karlkyns
tískuhönnuði.
- Já, það hefur hún gert í
reiði vegna þess að körlun-
um gekk betur en henni en
hún þoldi ekki kvenfólk.
Henni fannst konur ömurleg-
ar.
- Þú hefur starfað fyrir
Chanel síðan 1983. Fyrstu
fötin, sem þú hannaðir þar,
voru dæmigerð fyrir fágaða
hönnun Chanel.
- Það gerði ég að yfirlögðu
ráði. Ég er líka á þeirri línu
núna. Tískan hreyfir sig í
bylgjum, eins og hafið og
ástin. Það þarf að eyðileggja
eitthvað til að skapa annað.
Maður yerður að endurnýta
það gamla, sýna því svolítið
virðingarleysi, umpotta.
- Þú sagðir eitt sinn í viðtali:
„Tískan þarfnast fórnar-
lamba. Vlð lifum af þessum
fórnarlömbum. Það þarf
enginn á öllu þessu drasli að
halda. Konurnar langar
meira til að kaupa fötin en
vera í þeim. Á þann hátt fá
þær svolítið ævintýri inn í sitt
leiðinlega líf.“
- Það sem ég segi, gildir
einungis á því andartaki sem
ég segi það. Eftir hálft ár er
ekki lengur að marka það.
- Finnst þér ekki að konurn-
ar ættu að reyna að gera
eitthvað í sínu leiðindalífi
frekar en að kaupa fötin þín,
sem þær hafa ekkert við að
gera, sér til afþreyingar?
- Þú verður að ræða við
konu um það. Það er ekki
mál okkar karlanna.
- Skilurðu baráttu kvenrétt-
indakvenna fyrir bættri sam-
félagslegri stöðu kvenna?
- Ég hef alltaf forðast að
hafa viðhorf. Hefði ég viðhorf
myndi ég ekki tjá mig mikið
um þau því það er hundleið-
inlegt fyrir aðra.
- En það er þó ennþá þannig
að konan skreytir sig til þess
að þóknast manninum.
Hún vill að hann girnist hana.
- Já, hvers vegna ekki? Ég
þekki margar konur sem vilja
láta girnast sig í vissu sam-
hengi af því að þær girnast
manninn en svo verða þær
sinn eiginn miðdepill á ný.
Það er ekkert að því. Ég
þekki engar kúgaðar konur
en það er vitanlega vegna
þess að ég þekki ekkert
nema forréttindakonur.
- Þú vitnar gjarna í Oscar
Wiide. Ein uppáhaldssetn-
ingin þín er: „Hið mikilvæg-
asta í lífinu er að vera yfir-
borðslegur. Enginn veit hvað
er næstmikilvægast. “
- Já, ég hef ekkert á móti því
að vera talinn yfirborðslegur.
Ég er enginn menningarviti.
Þeir, sem velta hlutunum of
mikið fyrir sér, eiga ekki
heima í tískuheiminum. Fólk
má hugsa eins mikið og það
vill en það verður aumkunar-
vert þegar það fer að flagga
þessum djúpu hugsunum.
Tískan er yfirborðsleg. Því
verður maður að kyngja þeg-
ar maður velur þetta fag.
Þeir hönnuðir, sem telja sig
mikla hugsuði, hafa í raun-
inni ekki náð að skilja nokk-
urn skapaðan hlut. Þeir vita
ekkert i sinn haus, eru
menningarsnauðir en vaða
svo í þeirri villu að þeir séu
of góðir fyrir þennan bransa.
Þeir spyrja sig: Hvernig stóð
á því að ég valdi mér svo yf-
irborðslega atvinnu. Ég tek
mínu starfi eins og það er.
Ég þarf ekki að gera atvinnu
mína að sálrænum harmleik.
- Hver gerir það?
- Yves Saint Laurent, til
dæmis. Þú veist hvað hann
segir í viðtölum.
- Hann segist þjást af þung-
lyndi.
- Mér finnst það fráhrindandi
af því að ég veit hverjar
skoðanir hans í rauninni eru,
hvernig hann hagar sér í
raun og veru. Raunverulegt
líf hans er langt frá því
þvaðri sem hann lætur út úr
sér opinberlega.
- Hann er með arabíska
vændisdrengi í höllinni sinni
í Marokkó.
- Einmitt. Þess vegna nenni
ég ekki að hlusta á þessa
dómadags þvælu og væl út í
eitt.
- Hvers vegna ætti maður,
sem notfærir sér vændis-
drengi, ekki að geta þjást?
Pasolini (ítalskur leikstjóri)
þjáðist líka.
- Vissulega, en Saint Laur-
ent er ekki Pasolini. Við er-
um í fatabransanum. Tíska
er ekki list. [ verkum Pasolin-
is er vídd sem ekki fyrirfinnst
í taftkjólum. Sérhver verður
að haga sínu lífi eins og
hann óskar og megnar. Mað-
ur á að geta séð sjálfan sig
utan frá. Ég get séð sjálfan
mig utan frá og hlegið að
sjálfum mér. Það er nú allur
galdurinn. Maður á ekki að
taka sig of hátíðlega. Það
eru margir milljarðar manna í
• Ég er enginn menningarviti. Þeir, sem velta hlutun-
um of mikið fyrir sér, eiga ekki heima í tískuheimin-
um.
• Mér fannst tímasóun aö vera lítill.
• Um Yves Saint Laurent og ást hans til kvenna: „Já,
en hann hefur aldrei verið með konu.“
• Kannski er gríman oröin að minu raunverulega
andliti.
• Ég er niðurstaða þess sem ég ímyndaði mér, vildi
og ákvað að verða.
4. TBL. 1996 VIKAN 51