Vikan - 01.12.1996, Side 53
LIFÐU LITRÍKU LÍFI
Litir skipta okkur mun
meira máli en viö höldum,
bæði þeir litir, sem eru í um-
hverfi okkar, og þeir litir sem
eru á þeim flíkum sem viö
klæðum okkur í. Þeir gera
okkur líflegri og glaöari eöa
jafnvel sorgmæddari, þeir
eru lystaukandi og hafa áhrif
á dugnað okkar og orku.
Þetta hefur alit veriö kannaö,
spurningin er hins vegar sú
hvernig hver litur fyrir sig
virkar á okkur. Þaö getur
nefnilega verið eins misjafnt
og mennirnir eru margir. „Lit-
ir eru á vissan hátt sam-
skiptamiölar," hafa sumir
sagt og þaö er talsvert til i
því þar sem litir kalla fram
ákveðin viðbrögö annarra.
Sumir nota sterka liti meövit-
aö en aðrir ómeövitað, eftir
því sem eðlið kallar fram.
Listamenn, sem oft veröa
hissa þegar litaval þeirra er
skilgreint, eru aö reyna aö
segja eitthvaö meö myndum
sínum. Þeir reyna aö ná til
annarra og nota litina til
þess.
SÁLFRÆÐI LITANNA
Litir hafa ekki bara áhrif á
mennina sem slíka. Það er
tekið miö af þeim í arkitektúr
og þyggingalist og þegar
auglýsingar eru annars veg-
ar gegna þeir veigamiklu
hlutverki, þar sem þeim er
ætlaö aö ná athygli fólks. En
litir gegna ekki minna hlut-
verki í sálfræði. Margs konar
litapróf segja ekki endanlega
til um hvernig manneskja sé
því ekki er hægt aö kort-
leggja persónuleika meö því
einu aö leika meö litina. En
þeir gefa þó sterka vísbend-
ingu um þann grunn sem
skilgreining á persónuleikum
getur byggt á. Þaö eru
kannski ekki allir sammála
um það hvaöa áhrif litir hafa
á okkur en Ijóst er aö þeir
gefa til kynna ákveöna skap-
gerð og eiginleika einstakl-
inga.
TILVERAN ER LITRÍK
Það er enginn vafi á því aö í
samskiptafræöum er stööugt
unniö meira að því aö skoða
hvaða áhrif litir hafa á fólk.
Þegar selja á t.d. vörur
veröa þær helst aö vera
þannig á litinn aö fólk þekki
þær strax. Þaö væri alveg
hægt aö framleiða grænar
þylsur í staö rauöra en hver
myndi kaupa þær? Og það
væri hægt aö pakka ostum
inn í brúnan pappír en þá
kemur uþp sama spurning.
Sjónvarp, leikhús og kvik-
myndir keppast viö aö skapa
ákveöna stemningu og til
þess þarf að velja bæöi leik-
mynd og búninga í réttum lit-
um. Tilveran veröur nú æ lit-
ríkari og menn gera í sama
mæli sífellt meiri kröfur til lita
í umhverfinu. Á sjúkrahúsum
t.d. eru listamenn oft fengnir
til að fegra og skreyta ganga
og sjúkrastofur. Hiö sama er
gert í nýjum skólum og jafn-
vel fangelsum. Sagt er aö
fólk þrífist aö jafnaöi betur í
björtu og litríku umhverfi.
Með það að leiðarljósi ættu
skólastjórnendur aö hafa
skólana sem litríkasta þar
sem börn eyða um helmingi
af æsku sinni þar. Sumir trúa
því aö litirnir hafi góð áhrif
og efli nemendurna. Aö til
séu litir, sem fara okkur vel,
er ekkert nýtt. Þaö er ekki
einu sinni frétt aö viö bæöi
meðvitað og ómeðvitað velj-
um liti sem eiga aö gefa öðr-
um til kynna hvernig persón-
ur viö séum. Litir eiga aö
sýna öörum hvernig við vilj-
um aö viö séum uppgötvuð.
Maður á ekki að falla í þá
gryfju aö velja einhvern einn
lit sem sinn lit og láta svo þar
viö sitja. Það, sem skiptir
mestu máli, er aö prófa sig
áfram og finna þann lit sem
hentar best hverju sinni.
GULUR
Er af flestum bendlaður við
eitthvaö sem er mjög jákvætt
og minnir okkur á eilífðina,
sólina, gull, stjörnur og sum-
arið. Grængulur blær er þó
undanskilinn því hann fær
okkur tii aö hugsa um gjafir,
súrar sítrónur og neikvæða
lífsreynslu á borð við dauðs-
fall. Gult táknar fals, leikara-
skap og undirferli. í auglýs-
ingum er gulur sjaldan ráö-
andi litur, nema kannski
þegar ilmvötn eiga í hlut.
GRÆNN
Er litur náttúrunnar og leiðir
til jákvæöra hugsana. Blá-
grænn litur er neikvæöari en
hreinn grænn litur og minnir
okkur á vatn, kulda og ís.
Grænn táknar almennt lífið
og í draumum eru grænar
fígúrur táknrænar fyrir þann
kraft sem er alls staöar í
kringum okkur í náttúrunni. í
auglýsingum er grænn litur
notaöur þegar áhersla er
lögð á hreinar náttúruafuröir,
heilbrigöi og næringu.
BRÚNN
Fær flesta til að hugsa um
jörðina, kartöflur, trjástofna
og súkkulaði. Er yfirhöfuö
tryggur og róandi litur sem
táknar þrjósku en getur einn-
ig undirstrikað kynferöisleg
vandamál og meltingartrufl-
anir. Brúnt þýðir móöir jörö
og frjósemi en kaldar útgáfur
af brúnum lit tákna volæöi,
fátækt, vonsku og kvalar-
losta. Auglýsingafólk notar
brúnan lit aöeins þegar ekki
er hægt aö komast hjá því,
t.d. í tengslum viö súkkulaöi.
BLÁR
Tengist himni, hafi, kulda, ís
og vatni. í litahringjum til-
heyrir hann því neikvæða.
Blátt leiöir til deþurðar og ró-
legheita en hreinn dökkblár
litur getur virkað atar niöur-
dreþandi. í auglýsingum er
liturinn gjarnan notaður í
tengslum viö vörur sem hafa
meö hreingerningar og
hreinlæti aö gera. Blátt hent-
ar einnig sem hlutlaus bak-
grunnur fyrir aðra liti.
APPELSÍNUGULUR
Hlýtur aö fá flesta til aö
hugsa um sólsetur, eld og
appelsínur. Hann minnir
einnig á líkamann og er því
náttúrulegur, sambland guls
og rauös, og er mjög já-
kvæöur. Appelsínugulur
undirstrikar hita, hjartahlýju
og kærleika. En hann getur
einnig veriö svo kraftmikill aö
hann veöur yfir og skemmir.
í auglýsingum er liturinn not-
aöur sem aðallitur þegar
hann er í tísku en annars
eingöngu í samhengi viö
appelsínur og djús eöa þeg-
ar skapa á stemningu elds
og sólseturs.
FJÓLUBLÁR
Þýöir óróleika og truflun fyrir
marga. Getur virkaö niöur-
drepandi og leiðinlegur. Lit-
urinn dregur suma niður á
jöröina, sérstaklega þá sem
vanmeta sjálfa sig og þjást
af minnimáttarkennd. í lita-
hringjum táknar fjólublár
gjarnan iður jaröar eða
óveður og í auglýsingum er
hann undantekningalaust
notaður sem bakgrunnslitur.
RAUÐUR
Tengist hita, eldi og blóöi.
Hann undirstrikar metnað,
athyglisgáfu og mikla mögu-
leika. Á karlmenn virkar
rauður kraftmikill og á tíöum
árásargjarn litur. Á konur
virkar hann náttúrulegur,
jjaröbundinn og móðurlegur.
Rauður er mikiö notaöur f
snyrtivöruauglýsingar, enda
binst hann kynferöi og erótík
Isterkum böndum. Rautt
bendir líka oft til hættu, sam-
anber aö sjá rautt. . .! og
stöðvunarskilti. Stríösmáln-
ing er oftast rauö.
SVARTUR
Tengist myrkrinu, skuggum,
dýpt og dauöa. Svart skír-
skotar til kynþokkans, sam-
anber svartar sokkabuxur og
undirföt. Liturinn þýöir einnig
ákveöiö hlutleysi og blokker-
ingu, fyrir suma algjör tak-
mörk eöa tómleika. í sál-
fræöi táknar svart alla þá
skugga sem eru í sálartetr-
inu. í auglýsingum eru svart-
ar (svart/hvítar) myndir not-
aöar til að leggja einstaka
áherslu á annars litríka
myndaveröld. Svart örvar þá
sem vilja standa á sínu og
segja nei.
HVÍTUR
Er fyrir okkur flest táknrænn
fyrir heilindi og hreinleika.
Þýðir einnig skort á tilfinning-
um sem undirstrikar óöryggi,
tómleika og óhamingju. [
reynd er hvítur litur hiö
óhreyfða, táknar bæði upp-
haf og endi. □
4. TBL. 1996 VIKAN 53